Bæjarins besta


Bæjarins besta - 03.03.1999, Blaðsíða 12

Bæjarins besta - 03.03.1999, Blaðsíða 12
 Sparisjóðirnir á Vestfjörðum Virka daga kl. 09 ■ 21 Laugardaga kl. 10 -18 l/ericí iceiéomin/ W/Émmm AUSTURVEGI 2 • SÍMI 456 5460 Framsóknarflokkurinn Kristinn H. Gunn- arsson í fyrsta sæti Framboðslisti Framsókn- arflokksins á Vestfjörðum var samþykktur á þingi kjör- dæmisráðs, sem haldið var álsafirði sl. laugardag. Eins og við var búist var þar kosið um skipan fyrsta sætisins milli Kristins H. Gunnars- sonar og Magnúsar Reynis Guðmundssonar. Urslit urðu þau, að Kristinn fékk 51 at- kvæði en Magnús Reynir 21 atkvæði. Ekki kom til kosninga um skipan annarra sæta. Tiilaga meirihluta uppsti 11 ingarnefndar var því samþykkt. Listinn er þannig skipað- ur: 1. Kristinn H. Gunnars- son. 2. ÓlöfValdimarsdóttir. 3. Björgmundur Guð- mundsson. 4. Anna Jens- dóttir. 5. Svava Friðgeirs- dóttir. 6. Jóhannes Haralds- son. 7. Agnes L. Magnús- dóttir. 8. Haraldur Jónsson. 9. Þórunn Guðmundsdóttir. 10. Sigurður Sveinsson. Kjördæmisþing Framsóknarfiokksins Sjáifstæðisfiokkurinn á Vestfjörðum - segir Kristinn H. Gunnarssnn um úrslitin í knsningunni um 1. sætifl hjá Framsnkn atkvæðum og engin mótat- kvæði.“ - Hvernig leggst framhald- ið í þig? „Bara vel. Listinn er vel skipaður og ég veit að fram- bjóðendur eiga eftir að standa sig vel. Það eru mikil sóknar- færi fyrir Framsóknarflokkinn á Vestfjörðum og við stefnum ótrauð að því að auka okkar hlut.“ - Hefurðu einhverja tilfinn- ingu fyrir því, hversu mikill hluti af þínum gömlu stuðn- ingsmönnum í Aiþýðubanda- laginu muni fylgja þér og hversu mikill hluti þeirra muni styðja Samfylkinguna eða Græna framboðið? „Það er ntjög erfitt að segja og raunar getur enginn slegið máli á hvernig það leggst. Það verður bara að koma í ljós“, sagði Kristinn H. Gunnarsson. „Þetta var nú meiri munur en ég átti von á og kom mér þægilega á óvart. Þingið var ágætt og fór vel og friðsam- lega fram. Menn voru í senn skeleggir og kurteisir í mál- flutningi", sagði Kristinn H. Gunnarsson alþingismaður í samtali við BB að loknu kjör- dæmisþingi Framsóknar, þar sem hann sigraði Magnús Reyni Guðmundsson í kosn- ingu um skipan efsta sætisins á framboðslista flokksins við alþingiskosningarnar í vor. - Var þetta samt átakaþing undir niðri? „Nei, það getur ekki risið undir því nafni. Vissulega voru um það skiptar skoðanir hver ætti að vera í fyrsta sæti, eins og oftast er. Stundum er leyst úr slíku í prófkjöri og það heitir ekki átök! Það voru ekkert frekar átök þó að menn Kristinn H. Gunnarsson. kysu þarna á þinginu. Síðan var listinn að öðru leyti sam- þykktur með öllum greiddum TILBOÐ á Christian Dior snyrtitöskum Athugið! Emilía komin aftur til starfa Nýr opnunartími: Vlrkadagakl. 13-18 Laugardaga eftir samkomulagi Hafnarstræti 9 • ísafirði Sími 456 5280 „Niðurstaðan kom mér pægilega á ðvart“ Kvennamálin vefjast fyrir við skipan lista Um fyrri helgi var fundum í kjördæmisráðum Sjálfstæðis- flokks og Framsóknarflokks á Vestfjörðum frestað vegna samgönguerfiðleika.Tilgang- ur beggja átti að vera að ákveða framboðslista flokk- anna við þingkosningarnar í vor. Framsóknarmenn héldu sinn fund um síðustu helgi en þegar þetta er ritað hefur ekki enn verið boðað til fundar hjá Sjálfstæðismönnum. Samkvæmt heimildum blaðsins mun það helst vefjast fyrir mönnum þar á bæ, að konur innan flokksins hafa tekið afar illa tillögu uppstill- ingamefndar að skipan list- ans. Samkvæmt henni eru karlar í fjórum efstu sætunum (svokallaður „jakkalakka- veggur“) en uppstillingar- nefndin var raunar skipuð karlmönnum einum. Einhver áhöld munu þó vera um lög- mæti þess, hvernig nefndin var skipuð. Ef tillaga nefndarinnar verður lögð óbreytt fyrir fund kjördæmisráðs er fullvíst að konur (og stuðningsmenn þeirra) munu gera það sem í þeirra valdi stendur til að hnekkja henni. Verði tillagan samþykkt óbreytt er talið víst að ýmsar sjálfstæðiskonur muni ekki styðja flokkinn í komandi kosningum. Vestfirskar sjálfstæðiskon- ur hafa einkum nefnt tvær úr sínum röðum sem góða kosti í eitthvert af efstu sætum á lista flokksins, þær Guðrúnu Stellu Gissurardóttur í Bol- ungarvík og Ragnheiði Há- konardóttur á Isaftrði, forseta bæjarstjórnar Isafjarðarbæjar. Þær hafa báðar langa og mikla reynslu af pólitík og öðrum félagsmálum. Þessar hug- my ndir virðast samt hafa feng- ið lítinn hljómgrunn hjákarla- klúbbnum sem stillir upp. r r Islandsmeistarar BI fá viðurkenningu frá Landsbankanum Landsbanki Islands á Isa- viðurkenningu, Sport- firði bauð sl. föstudag ný- klúbbsbol og derhúfu. Á bökuðum íslandsmeisturum myndinni eru drengirnir BÍ í innanhússknattspyrnu ásamt Matthíasi þjálfara 5. flokks í samsæti á efstu sínum og þeim Helgu hæð bankans. Snorradóttur og Bryndísi Auk hefðbundinna veit- Baldursdóttur hjá Lands- inga fengu piltarnir svolitla bankanum á Isafirði.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.