Bæjarins besta - 03.03.1999, Síða 5
Framhaldsskóli Vestfjarða
Súlrisuhátfli
heflst á morgun
Dagur túnlístarskðlanna
Dagur tónlistarskólanna var haldinn liátíðlegur síðasta
laugardag. Þrennir tónleikar voru lialdnir á vegum
Tónlistarskóla Isafjarðar auk þess sem aðrir tónlistar-
skólar minntust dagsins veglega. Meðfylgjandi mynd
var tekin á einum tónleikum Tónlistarskóla Isafjarðar
02 sýnir uppremtandi fiðlusnillinga leika fyrir gesti.
Jórvík
Hefuráætl-
unarflug milli
Patreksfjarðar
og ísafjarðar
Flugfélagið Jórvík hóf í
gærdag reglulegt áætlun-
arflug milli Patreksfjarðar
og ísafjarðar. Flugið er
styrkt af samgönguráðu-
neytinu á tímabilinu frá 1.
mars til 30. apríl og verður
flogið tvær ferðir á viku, á
mánudögum og föstudög-
um.
Til flugsins notar félag-
ið 10 sæta flugvél af gerð-
inni Cessna-402 en hún er
einnig í áætlunarflugi fé-
lagsins milli Reykjavíkur
og Patreksfjarðar, en fé-
lagið flýgur sex sinnum í
viku á þeirri leið; alla daga
nema laugardaga.
Flugfélagið Jórvík var
stofnað 1993 og hóf flug-
rekstur ári síðar, einkum
útsýnisflug með ferða-
menn. Frá því í nóvember
1997 hefur félagið jafn-
framt sinnt áætlunarflugi
milli Reykjavíkur og Pat-
reksfjarðar.
JJin árlega sólrisuhátíð
Framhaldsskóla Vestfjarða
hefst á morgun, fimmtudag.
Ein og áður kennir margra
grasa á dagskrá hátíðarinnar
og er ljóst að nemendur skól-
ans hafa lagt sig vel fram um
að gera hátíðina sem glæsileg-
asta.
Á meðan að hátíðin stendur
yfir verður opið kaffihús í hús-
næði gamla apóteksins og
verður það opið alla daga. Á
föstudag kl. 16 mun Gabríela
Friðriksdóttir opna sýningu á
verkum sínum í Slunkaríki og
kl. 21 verður skemmtikvöld
og tískusýning á vegum Herra-
fataverslunar Kormáks og
Skjaldar í Edinborgarhúsinu.
Kl. 20:30 ásunnudag verður
bókmenntavaka á Hótel Isa-
firði þar sem Andri Snær
Magnússon og Davíð Stefáns-
son lesa úr verkum sínum. Á
mánudag kl. 20 mun Magnús
Skarphéðinsson ljalla um líf
eftir dauðann í fyrirlestrarsal
FVÍ og kl. 23 verður sýnd
kvikmyndin City of lost
Children í Isafjarðarbíói.
Kvöldið eftir verður Rocky
Horror sýnd í Ísafjarðarbíó og
kl. 20 á miðvikudagskvöld
verður umræðufundur um
vímuefnavarnir í fyrirlestrar-
sal FVÍ. Fimmtudaginn 11.
mars kl. 20 verður leikritið
Lýsistrata eftir Aristofanes
frumsýnt í uppfærslu nem-
endafélags skólans og kl.
20:30 verða Sólrisutónleikar
á vegum Tónlistafélags Isa-
fjarðar í Isafjarðarkirkju. Þar
mun Hljómskálakvintettinn
leika.
Á laugardag kl. 17 verða
neðansjávartónleikar Múm í
Sundhöll ísafjarðar og kl. 22
verða Sólrisutónleikar í Al-
þýðuhúsinu. Þar munu Sigur-
rós og Klamedia X skemmta.
Kl. 17, sunnudaginn 14. mars,
mun BlásarakvinttettTónlist-
arskóla Akureyrar skemmta í
sal frímúrara og kl. 12 á há-
degi, mánudaginn 15. mars,
mun Skari skrípó heilsa upp á
framhaldsskólanemendur í
hádegishléi. Hér hefur aðeins
verið greint frá nokkrum af
þeim atriðum sem í boði verða
á Sólrisuhátíð sem hefst á
morgun.
Framkvæmdastjóri Bakka hf. Bolungarvík söólar um
Kaupir nær priðjung i „Rauða hernum"
af Katli Helgasyni ug Eypúri HaraHssyni
Vestfiróir
Bflvelta í fin-
undarfirði
Rétt eftir hádegi á mánu-
dag fór bifreið út af vegin-
um í Önundarfirði, rétt við
Kaldá.
Ökumaður bifreiðarinn-
ar mun hafa misst stjórn á
henni í hálku með þeim
afleiðingum að hún hafn-
aði á hvolfi fyrir ofan veg.
Hann slapp án meiðsla.
Agnar Ebenesersson, fram-
kvæmdastjóri Bakka hf. í Bol-
ungarvík, hefur keypt nær
þriðjung í fyrirtækjum þeim
semjafnan eru kennd við Ketil
Helgason eða Rauða herinn,
þ.e. Rauðsíðu á Þingeyri,
Rauðfeldi á Bíldudal, Rauð-
hamri á Tálknafirði og Bol-
fiski í Bolungarvík. Hann læt-
ur af störfum hjá Bakka hf.
um miðjan mánuðinn en fram
að því mun hann vinna við
hlið nýráðins framkvæmda-
stjóra Bakka, Guðmundar
Hólm Indriðasonar, og koma
honum inn í starfið.
Aðaleigendur „Rauða hers-
ins“ hafa verið Ketill Elíasson
og Eyþór Haraldsson, sem
rekur útflutningsfyrirtækið
Norfisk hf. í Reykjavík. Þeir
hafa átt jafnstóra hluti eða
tæpan helming hvor, en Guð-
mundur Franklín verðbréfa-
miðlari í New York á um 6%.
Agnarkeypti sinn hlutafKatli
og Eyþóri, þannig að nú eiga
þeir þrír liðlega 31 % hver en
Guðmundur Franklín á eftir
sem áður sinn hluta óskertan.
Bolfiskur í Bolungarvík hefur
reyndar verið að öllu leyti í
eigu Ketils Helgasonar en
Rauðsíða kaupir nú fyrirtækið
af honum þannig að sama
eignaraðild verður að öllum
fyrirtækjunum fjórum.
Ekki er búið að ganga end-
anlega frá verkaskiptingu í
fyrirtækinu eftir inngöngu
Agnars, en það verður vænt-
anlega gert fyrir eða um helg-
ina. Guðmundur Franklín er
væntanlegur vestan um haf á
næstu dögum til fundar við
aðra eigendur um skipulags-
mál. Ketill hefur verið einn
yfirstjórnandi í öllum þessum
fyrirtækjum en sívaxandi
umsvif kalla á fleiri stjórn-
endur. Velta Rauða hersins var
milli 1.700og 1.800 milljónir
króna á síðasta ári og stefnt er
að því að fara yfir tvo milljarða
á þessu ári. Starfsmenn eru
um 250 talsins.
Þessi fyrirtæki eiga engan
kvóta og eru þess vegna ekki
með neitt fjármagn bundið í
honum. Nægilegt framboð
hefur verið af erlendum fiski,
ekki aðeins Rússafiski heldur
miklu víðar að, jafnvel úr
Kyrrahafinu. Flutningskostn-
aðurinn er mjög lítill hluti af
fiskverðinu og hráefnisöflun
fiskvinnslufyrirtækjar í sívax-
andi mæli á heimsvísu.
Norfisk hf. annast sölumál-
in að mestu leyti og hefur selt
upp undir 80% framleiðslunn-
ar á Bandaríkjamarkað.
Áfram verður selt gegnum
það fyrirtæki en leitað verður
frekari markaða í Evrópu.
f , ^
Auglýsingar
og áskrift
sími 456 4560
V J
Atvinna
Starfsmaður óskast til starfa við intemet-
verslun. Þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Æskilegt er að viðkomandi geti unnið sjáif-
stætt.
Upplýsingar eru gefnar í síma 861 1406
og hjá unnur@kaup.is
Æskulýðsdagar
í Bolungarvík
Síðasta sunnudag hóf-
ust svonefndir æskulýðs-
dagar kirkjunnar í Bol-
ungarvík með poppmessu
sem haldin var í Hóls-
kirkju. Rúmlega fjörutíu
manns komu að messunni
og voru þeir á aldrinum
frá 12-70 ára.
Þar stigu á svið ung-
lingakór Tónlistarskóla
Bolungarvíkur undir
stjórn Soffíu Vagnsdóttur, en
kórinn var að koma fram í
fyrsta skipti. Þá söng kirkju-
kórinn negrasálma undir
stjórn organistans Guðrúnar
B. Magnúsdóttur en einsöng
með kórnum sungu Guð-
finna Magnúsdóttir og
Guðmundur Reynisson. Þá
lásu unglingar ritningar-
lestur og ljós.
Á morgun, fimmtudag,
hittast unglingarnir og fara í
leiki, syngja og biðja auk
þess sem æskulýðsmessa
sem halda á nk. sunnudag
kl. 14 í Hólskirkju verður
undirbúin. I henni munu
unglingar bæjarins sjá um
messuhald auk þess sem
fermingarbörn munu standa
fyrir kaffisölu í safnaðar-
heimilinu. Allir ágóði af
henni n.un renna í sjóð til
Frá poppmessunni síðasta sunnudag. A myndinni er
unglingakór Tónlistarskóla Bolungarvíkur sem kom fram
í fyrsta sinn við þetta tœkifœri.
fermingarferðalags. Allir eru
velkomnir í messuna og
kaffið.
Æskulýðsdögum í Bol-
ungarvík lýkur fimmtu-
daginn 18. mars með
pizzuveislu í safnaðar-
heimilinu á staðnum.
ísafjörður
Vestfjarðamót
í skíðagöngu
Vestfjarðamót í skíða-
göngu fór fram á Selja-
landsdal sl. sunnudag. Ur-
slit á mótinu urðu sem hér
segir:
I 1 km göngu drengja 8
ára og yngri sigraði Ey-
vindur Atli Ásvaldsson á
10:09. í sömu vegalengd
og í sama aldursflokki
stúlkna sigraði Katrín Sif
Kristbjörnsdóttir á 9:05,
önnur varð Sigrún Arnars-
dóttir á 9:45 og þriðja
varð Silja Rán Guðmunds-
dóttir á 10:13.
í flokki 9-10 ára drengja
í 1,5 km göngu sigraði
Brynjólfur Óli Árnason á
5:09, annar varð Ómar
Halldórsson á 5:46 og
þriðji varð Bjarki Bárðar-
son á 9:05. í sama aldurs-
flokki og í sömu vega-
lengd stúlkna sigraði
Helga Margrét Marsellíus-
ardóttir á 9:19.
í 2,5 km göngu 11-12
ára drengja sigraði Krist-
ján Óskar Ásvaldsson á
13:27, annar varð Óskar
Halldórsson á 14:25 og
þriðji varð Sindri Gunnar
Bjarnason á 17:01.1 sama
aldursflokki og sömu
vegalengd stúlkna sigraði
Gerður Geirsdóttir á
13:16, önnur varð Dagný
Hermannsdóttir á 13:27
og þriðja varð Jóhanna
Bárðardóttir á 14:09.
í 5 km göngu í flokki
13-14 ára sigraði Markús
Þór Björnsson í drengja-
tlokki á 23:16 og Aðal-
björg Sigurjónsdóttir í
stúlknaflokki á tímanum
19:21.
ísafjörður
Stefnumótun í
atvinnumálum
Hal'inn er undirbúningur
að stefnumótun Isafjarðar-
bæjar í atvinnumálum. At-
vinnuþróunarfélag Vest-
fjarða stýrir verkefninu en
ráðgjafar frá Iðntækni-
stofnun leiða vinnuna og
veita faglega ráðgjöf.
Verkefninu er skipt í
þrjá flokka: 1. Fyrirtæki.
2. Menning, menntun og
rannsóknir. 3. Stjórnsýsla.
Hverjum málefnaflokki er
skipt í undirflokka og
skipaður sérstakur vinnu-
hópur um hvern fyrir sig.
Fjölmargir hafa undan-
farið fengið bréf frá bæjar-
stjórn þar sem þess er ósk-
að að þeir taki þátt í starfi
einstakra vinnuhópa og
hófust fundahöld þeirra í
gær. Að loknum fimm
stuttum fundum með ráð-
gjafa kemur til kasta verk-
efnisstjórnar að samræma
tillögur þátttakenda. Þann-
ig er ætlunin að móta
heildstæða stefnu í at-
vinnumálum í bæjarfélag-
inu.
MIÐVIKUDAGUR 3. MARS 1999 5