Víðförli - 15.12.1984, Síða 5

Víðförli - 15.12.1984, Síða 5
Bein lína frá Æskulýðsstarfi kirkjunnar Námskeið fyrir reykvísk fermingarbörn höfn Það hefur staðið lengi til að vísitera íslenska söfnuðinn í Kaup- mannahöfn, og það gerði ég á heim- leið frá Póllandi 1.-2. des. Þar var guðsþjónusta í St. Pálskirkjunni, en þar eru messur mánaðarlega. Vísi- tasían fór fram með hefðþundnum íslenskum hætti þótt í öðru landi væri. Ég prédikaði og ávarpaði söfnuðinn eftir messu, séra Ágúst Sigurðsson sendiráðsprestur þjón- aði fyrir altari en dóttir hans María 16 ára gömul var organleikari og stýrði kirkjukórnum sem hún hafði æft, meðhjálpari er Halldór Leifs- son sem er við nám í Kaupmanna- hafnarháskóla. Þarna var mikið fjölmenni og sendiherrahjónin meðal gesta. Á fundi með sóknar- nefnd kom fram að prestshjónin, séra Ágúst og frú Guðrún Lára Ásgeirsdóttir vinna umfangsmikið og mikilvægt starf í þágu íslendinga í Kaupmannahöfn og víðar. Sér- staklega varð ég var við þá miklu ánægju sem ríkir yfir starfi þeirra hjóna meðal aldraðra og einstæðra í Höfn. En séra Ágúst annast einn- ing kirkjulega þjónustu annars staðar á Norðurlöndum, bæði embættisverk og ýmsa aðstoð. Sendiráðsprestur hefur verið í Kaupmannahöfn í 20 ár, en söfnuð- urinn var stofnaður formlega 1979. í sóknarnefnd eru nú: Eiríkur Vals- son, skrifstofumaður, Gísli Engil- bertsson rafvirki og Ragnhildur Ólafsdóttir rithöfundur. Það var kirkjukaffi eftir messu í Jónshúsi, en deginum áður voru ná- kvæmlega 10 ár síðan safn Jóns Sig- urðssonar var opnað. Ég minntist Jóns Sigurðssonar og frelsishug- sjónarinnar þar við samveruna. Mér var frelsisbaráttan svo ofarlega í huga eftir Póllandsferðina. Mjög ánægjulegt var að kynnast hinu blómlega starfi íslenska safnaðarins í Kaupmannahöfn og finna þann hlýja hug, sem bæði yngri og eldri báru til kirkju sinnar og heima- lands. Undanfarin ár hefur farið fram mikil umræða innan kirkjunnar um fermingarstörfin, innihald þeirra og markmið. Flestir eru sammála um að fermingarstörfin feli ekki aðeins í sér fræðslu varðandi kristna trú, heldur einnig samfélag, tilbeiðslu og þjónustu. Nokkuð hefur skort á að aðstaða hafi verið fyrir hendi til að rækja þessi viðfangsefni öll svo þau verði börnunum styrkur og hvatning til að öðlast trúna á Guð og viðhalda henni. Námskeið Til að koma til móts við börnin og fræðara þeirra hefur verið ákveðið að bjóða upp á námskeið í Skálholtsbúðum fyrir öll fermingar- börn Reykjavíkurprófastsdæmis, í byrjun næsta árs. Eru það ábyrgð- araðilar Skálholtsbúða, æskulýðs- fulltrúi þjóðkirkjunnar og Skál- holtsbúðanefnd, sem standa fyrir þessu. Ráðskona verður á staðnum og fastur starfsmaður, sem sjá mun um að allt sé til reiðu, jafnframt því að aðstoða við fræðslu barnanna. Einnig er gert ráð fyrir því að prest- ur fylgi sínum hópi, svo og tveir til þrír sjálfboðaliðar úr söfnuðunum. Ef erfitt reynist að fá sjálfboðaliða úr söfnuðunum mun Æskulýðs- starfið útvega fólk, en í því sam- bandi hefur verið talað við forsvars- menn Guðfræðideildar, Ungs fólks með hlutverk og Kristilegra skóla- samtaka. Daglegar ferðir Gert er ráð fyrir að fyrsti hópur- inn fari frá Reykjavík mánudaginn 28. janúar 1985 kl. 17.00 og verði í einn sólarhring, en þá komi næsti hópur. Bílar frá Teiti Jónassyni fara frá Reykjavík kl. 17.00 mánu- dag til föstudags, þannig að fjórir hópar komast að yfir vikuna. Síð- asti hópurinn mun fara frá Reykja- vík fimmtudaginn 21. mars. Upplýsingar og innritun fer fram á skrifstofu æskulýðsfulltrúa, s. 12445. Þegar hafa nokkrir prestar skráð sig og sinn hóp til þátttöku. — Árum saman var mér haldið föngnum í klefakytru. Einu tengslin við annað fólk voru við þá sem beittu mig pyntingum. Ég sá ekki mannsandlit, hvað þá grænt laufblað, í tæp 3 ár. Eini félagsskapur minn var af músum og veggjalúsum. Efst á einum veggja kytrunnar var lítið gat, innum það smaug eina dagsbirtan sem ég sá árum saman. Ég var bundinn á höndum og fótum í átta mánuði. Á aðfangadagskvöld, voru klefadyrnar opnaðar og einn af vörðunum kastaði til mín kryppluðum miða. Þrátt fyrir að hendur mínar og fætur vœru bundin tókst mér að lesa miðann, þar sem hann lá á gólfinu. Þar stóð einfaldlega: ,,Constan- tino, gefstu ekki upp. Við vitum aðþú ert á lífi”, Undirskriftin var ,,Monica” og merki Amnesty International var á miðan- um. Þessi orð björguðu lífi mínu og geðheilsu. Átta mánuðum síðar var ég frjáls maður. En hvað hrœrði fangavörðinn til þess að rjúfa einangrun mína þarna á aðfangadagskvöld — ? __________ — Úr bréfi samviskufanga til Amnesty — VÍÐFÖRLI — 5

x

Víðförli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.