Víðförli - 15.12.1984, Síða 15

Víðförli - 15.12.1984, Síða 15
Sókn er besta vörnin VIÐ ERUM í SOKN Hjálparstofnunin fundar með safnaðarfólki Hjálparstofnuninni er það mikið áhugaefni að efla tengsl hjálpar- starfs og safnaðanna. Söfnuðir landsins leggja starfsgrundvöll Hjálparstofnunarinnar. Héraðs- fundir prófastsdæmanna kjósa stjórnarmenn stofnunarinnar auk Kirkjuráðs. Söfnuðirnir hafa jafn- an sýnt hjálparstarfinu mikinn áhuga og veitt ómetanlega aðstoð í starfinu. Hjálparstofnunin vill leitast við að koma samskiptunum við söfnuð- ina á fastari grundvöll. Hefur því verið efnt til landshlutaráðstefna með safnaðarfólki til að efla tengsl og kynna störf Hjálparstofnunar- innar. Nú hafa fjórar slíkar landshluta- ráðstefnur verið haldnar, þ.e. fyrir Austurland, Norðurland, Vestur- land og Kjalarnesprófastsdæmi. Ráðstefnurnar hafa tekist mjög vel. Fjöldi nýrra hugmynda hefur kom- ið fram og umræður snarpar og frjóar. Áætlað er að haldnar verði ráð- stefnur fyrir Suðurland, Reykjavík og Vestfirði fljótlega eftir áramót. Nýr prófastur Eyfirðinga Eyfirskir prestar hafa kosið sér prófast og samkvæmt því hefur sera Bjartmar Kristjánsson verið skipaður prófastur Eyfirðinga, en sr. Stefán Snævarr fyrrum prófast- ur hefur fengið lausn frá embætti. Séra Bjartmar er fæddur 14. apríl 1915. Hann vígðist 14. júlí 1946 til Mælifellsprestakalls en hefur þjón- að Laugalandsprestakalli í Eyjafirði síðan 1968. Kona hans er Hrefna Magnúsdóttir og eiga þau sex börn. Dr. Per Erik Person kynnir BEM skýrsluna. Hinn kunni sænski guðfræðingur Per Erik Person verður í heimsókn hjá Guðfræðideild Háskólans síðari hluta febrúarmánaðar í boði stjórn- ar Elliheimilisins Grundar. Per Erik Person kennir við há- skólann í Lundi og er meðal þekkt- ustu guðfræðinga Svía. Hann hefur m.a. verið helsti talsmaður frá Norðurlöndum i guðfræðinefnd Al- kirkjuráðsins sem vann að gerð eins merkasta plaggs í einingarstarfi kirkjunnar, BEM skýrslunnar svo- nefndu. Hún hefur verið þýdd á íslensku og var lögð fyrir síðasta Kirkjuþing sem ákvað að leggja skuli mikla áherslu á kynningu hennar hérlendis. Dr. Einar Sigur- björnsson prófessor þýddi skýrsluna, sem ber nafnið Skírn - Máltíð Drottins - Þjónusta. Dr. Per Erik mun flytja fyrir- lestra við guðfræðideild háskólans og ræða við áhugamenn um títt- nefnda BEM skýrslu. Nefnd vegna dagvistunar vandans Kirkjuráð hefur skipað nefnd til þess að kanna á þéttbýlissvæðum áhuga og þátttöku safnaða, þar sem húsnæði er fyrir hendi, til að leysa dagvistunarvanda barna. Sr. Jón Bjarman flutti tillögu um þetta á Kirkjuþingi og hefur hann verið skipaður í nefndina ásamt Unni Halldórsdóttur og Málfríði Finn- bogadóttur. Staða óvígðra starfsmanna kirkjunnar könnuð Þeir Hermann Þorsteinsson, sr. Jón Bjarman og Otto A. Michelsen hafa tekið sæti í nefnd sem Kirkju- ráð hefur skipað til þess að kanna stöðu þeirra starfsmanna kirkjunn- ar sem ekki hafa tekið vígslu. Snert- ir þessi könnun m.a. launakjör, líf- eyrissjóðsrétt o.fl. Sr. Jón Bjarman flutti mál þetta á Kirkjuþingi og fékk það hraða og góða afgreiðslu. Fjármenn hrepptu fögnuð þann, þeir fundu bæði Guð og mann, í lágan stall var lagður hann, þó lausnarinn heimsins væri. Með vísnasöng ég vögguna þína hræri. vfrYcrSm T

x

Víðförli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.