Víðförli - 15.12.1988, Page 8

Víðförli - 15.12.1988, Page 8
Frá Hjálparstofmm „Brauö handa hungruðum heimi“ er yfirskrift hinnar árlegu landssöfnunar Hjálparstofnunar kirkjunnar. Að þessu sinni hófst söfnunin 4. desember og stendur fram til jóla. í byrjun desember var gíróseðlum, ásamt söfnunarbaukum dreift inn á öll heimili í landinu. Vonum við að landsmenn taki þessari beiðni okkar vel nú sem undanfarin ár. Á síðasta ári söfnuðust nær 17 miljónir króna. Verkefni ársins. Á árinu sem er að ljúka hefur Hjálparstofnun kirjunnar haft starf- semi í allnokkrum löndum í Afríku og Asíu. Þessi verkefni eru margvís- leg, stór og smá. Meðal annars höfum við, í samvinnu við Kirkens nödhjælp í Noregi, byggt barna- heimili fyrir munaðarlaus börn í Eþíópíu. Verkefnið er komið á loka- stig og loksins fá þessi börn öruggt heimili, en þau hafa í langan tíma hafist við í tjöldum. í öðru Afríkulandi, Mósambik, höfum við ásamt systurstofnunum hinna Norðurlandanna, séð um dreifingu á matvælum og sáðkorni. Það er alvarlegur matarskortur í nokkrum héruðum landsins og er ákaflega erfitt að koma vistum á áfangastað. Nauðsynlegt hefur verið að fljúga með varninginn, en síðustu fréttir herma að Iandleiðin sé að opnast. Þar með verður auðveldara og kostnaðarminna að halda hjálp- arstarfinu áfram. í Víetnam tókum við á árinu þátt í kostnaði við stíflugerð sem stuðlaði að uppskeru þúsunda smábænda. Þeir geta nú brauðfætt sig sjálfir og er þessu verkefni lokið. Hjálparstofnun kirkjunnar sinnir ekki einungis hjálparbeiðnum er- lendis frá. Við styrkjum einnig, eftir því sem tök eru á, neyðarstarf á ís- landi. Nýlega barst neyðaróp frá Kvennaathvarfinu í Reykjavik, en aðstandendur þess sáu fram á lokun vegna fjárhagsörðugleika. Hjálpar- stofnun kirkjunnar hljóp undir bagga með dágóðum styrk. Starf- semi Kvennaathvarfsins er því miður nauðsynleg í okkar þjóðfélagi og var styrkurinn veittur til að koma í veg fyrir að 6 ára uppbyggingarstarf þessarar stofnunar leggðist niður. Hjálpin kemst til skila. Öll starfsemi Hjálparstofnunar kirkjunnar hefur það markmið að 8 — VÍÐFÖRLI

x

Víðförli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.