Víðförli - 15.12.1988, Qupperneq 9

Víðförli - 15.12.1988, Qupperneq 9
kirkjunnar stuðla að bættum kjörum þeirra sem líða skort. Nær daglega berast okkur hjálparbeiðnir víðsvegar að úr heiminum. Ástæðurnar eru mis- munandi, náttúrhamfarir, stríð og átök, uppskerubrestur, félagsleg neyð og annars konar harðindi. Okkar litla stofnun getur ekki sinnt öllum þeim neyðarköllum sem ber- ast. En við vitum að sú hjálp sem við leggjum af mörkum er lóð á vogar- skálar mannúðar og réttlætis. Það er stefna okkar að veita aðstoð, bæði i neyðartilfellum, þ.e.a.s. á hungur- og hörmungasvæðum — og í fyrir- byggjandi starf, sem hjálpar fólki til sjálfshjálpar. Val á verkefnum er ákaflega erfitt og er þar að mörgu að hyggja. Við þurfum í hverju tilviki að fullvissa okkur um að hjálpin berist þeim sem þarfnast hennar og sérhver króna nýtist eins vel og auðið er. Þar höfum við ávallt haft mikið gagn af góðu samstarfi við systurstofnanir á Norðurlöndunum og við alþjóðlegar hjálparstofnanir, ásamt ýmsum stofnunum og einstaklingum á hjálparsvæðunum. Þannig getum við tryggt að hjálpin komist ævin- lega til skila. Hvað er framundan? Framundan blasa við mörg hjálp- arverkefni. Ein af þeim hjálpar- beiðnum sem eru afar aðkallandi, er uppbyggingarstarf vegna stórfelldra flóða i Bangladesh sem urðu á síð- astliðnu hausti. Þessi flóð hafa gert 25 miljónir manna heimilislausa og er mikil hætta á að sjúkdómar breið- ist út. Þetta er annað árið í röð, þar sem gifurleg flóð hafa skollið á í þessu fátæka Asíulandi. Ástandið er því mjög alvarlegt. Matvælaaðstoðinni í Mosambik verður haldið áfram í samvinnu við systurstofnanir á Norðurlöndunum, svo lengi sem þörf og aðstæður krefjast þess. Af öðrum væntanleg- um verkefnum má nefna skólabygg- ingu fyrir fátæk börn á Indlandi og heimili fyrir vangefin börn í sama landi. Hjálparstarfið er þó vissulega undir okkur öllum komið. Án stuðn- ings þjóðarinnar er Hjálparstofnun kirkjunnar einskis megnug. Megin fjáröflun okkar er á jólaföstu. Við stöndum og föllum með söfnuninni „Brauð handa hungruðum heimi“. Það er okkar einlægasta von að sem flestir leggi okkur lið eftir efnum og aðstæðum. Hver króna sem fer í hjálparstarf, margfaldast að gildi í hinum fátæku löndum heimsins. Með ósk um gleðileg jól Mataruppskriftir eru ekki beinlín- is það sem fólk tengir við Hjálpar- stofnun kirkjunnar. Ef til vill þykir sumum það beinlínis óviðeigandi af Hjálparstofnuninni að birta matar- uppskriftir frá 3ja heiminum, þar sem miljónir manna svelta. En við hjá Hjálparstofnun kirkjunnar telj- um það mikilvægt að þjóðir 3ja heimsins séu ekki einungis nefndar í tengslum við hungur og eymd. Veru- leiki þessara þjóða er vissulega margbreytilegri en svo og það er svo sannarlega þess virði að kynnast menningu þeirra. Matur er menning og víða í 3ja heiminum er matar- menningin ótrúlega fjölbreytileg og spennandi. Við teljum það vera spor í rétta átt til að auka skilning okkar á þjóðum 3ja heimsins að kynnast þeirri hlið á menningu þeirra. Aukin kynni af menningu þessara þjóða ættu jafnframt að kynna vilja okkar til að hjálpa og styðja þær í barátt- j unni fyrir réttlátari skiptingu hinna efnislegu gæða heimsins. Eftirfarandi uppskriftir eru frá Indlandi og Pakistan. Lambakarrý með jógúrt. (fyrir 4-6 persónur). Vi kíló lambakjöt 2 stk. grænn chilipipar (má sleppa) 2-3 stk. laukur olía eða smjörlíki 1 stk. ferskt engifer (má sleppa) 1 lauf hvítlaukur 1 stk. koriander Zi stk. gurkemeje 1 stór tómatur, skorinn í báta '/2 Iíter jógúrt 1 stk. garam masala svolítið af kardemommu (malaðri), negul og kanel 1 tsk. malað kúmen 1 tsk. salt Skerið lambakjötið í lítil stykki. Hakkið chilipipar og lauk. Hitið olíu/smjörliki á stórri pönnu eða í potti. Steikið chili og lauk og hrærið vel í á meðan. Bætið engiferi og pressuðum hvítlauk útí. Setjið kjötið þarnæst útí og steikið í um 10 mínút- ur. Koriander, gurkemeje, negull og tómatur bætast við og skal þetta sjóða þar til vökvinn af tómatinum hefur blandast vel við. Bætið þá við jógúrt, salti og afganginum af kryddinu. Rétturinn á að malla þar til kjötið er orðið meyrt og jógúrt og grænmeti orðin að þykkri sósu (um 40 mínútur). Athugið að chilipipar og engifer gera réttinn sterkari. Chapatti (8-10 stykki) 200 gr. hveiti 200 gr. heilhveiti Vi tsk. salt um 2 Vi dl. vatn Blandið saman mjöli, salti og volgu vatni. Hnoðið deigið vel. Geymið það hlýjum stað í um það bil hálftíma. Hnoðið deigið tvisvar sinnum á meðan það hvílir. Skiptið deiginu í 8-10 jafnstóra hluta. Form- ið hvern hluta í litla bollu og þrýstið þær síðan flatar og rúllið út í þunnar kökur fyrir steikingu. Steikið á þurri pönnu við millihita. Ef það myndast loftbólur, pressið þær þá úr með t.d. viskustykki. Snúið brauðunum eftur um 5 mínútur. Leggið brauðin hvert ofan á annað eftir steikingu og hald- ið þeim heitum með að setja klæði utan um þau. Berið fram heit. Chapatti passar vel með lamba- karrý. Starfsmenn Hjálparstofnunar kirkjunnar. VÍÐFÖRLI — 9

x

Víðförli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.