Víðförli - 15.12.1988, Síða 13

Víðförli - 15.12.1988, Síða 13
Af þér vildi ég okið brjóta, allar slár til höfða og fóta, opna hurðu heljarljóta, höggva niður svartan stafn. Láta iðu Ijóssins fljóta, lokka þinna geisla safn. Þeir hjuggu eina stíflu í öðrum áfanga Laxárvirkjunar. Og stóðu svo þétt saman að enginn einn varð kærður. Þá var ég hrifin. Þá fyrst var tekið mark á náttúruverndarmönn- um.“ Eins og fyrr er getið kom út bókin „Leyndar ástir í Njálu“ út fyrir síð- ustujól. Égspyr frú Rósu hverjarséu helstu niðurstöður, sem hún setur fram í bókinni. „Þú spyrð um niðurstöður mínar af athugunum á innviðum Njálu. Bókin svarar því. í stuttu máli get ég sagt þér þetta. Njáll átti þrjár dætur, ein var gift Katli í Mörk, þau bjuggu þar. Tvær dætur Njáls voru ógiftar heima, þeg- ar Njáll tók þungt á því að Gunnar hefði fest sér konu. Njáll sagði að af Hallgerði mundi allt hið illa standa. Njáll varð fyrir vonbrigðum að fá ekki Gunnar fyrir tengdason. Ég segi, Njáll vissi fyrir, að Berg- þóra og dætur þeirra mundu grípa til óhæfu gagnvart Hallgerði, þegar þær sæju þessa fögru konu, sem Gunnar tók fram yfir dóttur besta vinar síns. Ég segi að þessa ástæður séu eina skýringin á vinslitaveislunni sem Bergþóra hélt. Menn slíta ekki langa vináttu að ástæðulausu. Berg- þóra gekk þannig frá, að boð fóru aldrei milli Bergþórshvols og Hlíðar- enda. Njáll undurbjó Gunnar á þingi, og taldi honum trú um, að sökin væri Hallgerðar, ef boð legð- ust af milli þessara vinabæja. Aug- ljóst er einnig að Gunnar snýst strax í veislunni á móti konu sinni. Allt hið gamla heimilisfólk á Hliðarenda virðist frá byrjún vera á móti Hall- gerði.“ Hvað hét svo þriðja dóttir Njáls? Frú Rósa Ieiðir að því sterk rök í bók sinni, að Þorgerður Njálsdóttir, sem gekk úr brennunni á Bergþórshvoli, hafi ekki verið kona Ketils í Mörk, sem var einn af forystumönnum brennumanna, heldur alnafna henn- ar og systir. Þriðja dóttir Njáls er hvergi nefnd með nafni, nema ef vera skyldi í þessu tilfelli. Leiðir hún að RÓSA B. BLÖNDALS: Leyndar ástir í NJÁLU íslendingasaga skoðuð í nýju ljósi þessu allflókin en sannfærandi rök í bókinni. Ef til vill var hún sú, sem ætluð var Gunnari en hún kemur hvergi við atburði. „Höfundur sögunnar sveipar dætur Njáls einkennilegri hulu, einkum þó þessa, sem ég álít að hafi verið alnafna systur sinnar í Mörk. Jafnvel helstu söguskoðendur Njálu létu sér ekki til hugar koma, að þær hafi átt neinn þátt í vinslitaveislunni og óförum Hallgerðar í Rangár- þingí. “ Ég hef heyrt því haldið fram, að umfjöllun þessarar bókar sé dæmi um hvernig koma megi fornsögun- um á framfæri við ungt fólk, sem ekki hikar við að lesa sögurnar eins og þær liggja fyrir. Frú Rósa hefur mikla reynslu af að kenna íslensku og ég spyr hvernig hún telji unnt að glæða sögurnar lífi í hugum unga fólksins. „Ég hygg best til þess að vekja áhuga á íslendingasögunum að stofna leshópa áhugafólks á öllum aldri, til þess að lesa sögurnar og spjalla um þær. Ég álít að það ætti að Iesa skemmtilega kafla fyrir yngri börnin úr íslendingasögunum og tala við þau um það. Ég lét börn í Barnaskól- anum á Laugarvatni lesa eina íslend- ingasögu á vetri. Þegar ég kenndi á Drangsnesi einn vetur, kenndi ég níu og tíu ára börnum saman. Ég sagði við þau í sögutíma að hérna úti fyrir Húnaflóa hefði hinn frægi Flóa- bardagi átt sér stað, og las Flóabar- daga úr Sturlungu. Þau hlustuðu all- an tímann mjög vel, hvert einasta barn. Dr. Þórir Kr. Þórðarson skrif- aði athyglisverða grein um bókina mína. Hann vonaðist til að hún gæti vakið umræðu.“ Frú Rósa telur að slík bók hefði valdið miklu meiri umræðu fyrir þrjátíu árum. Þá átti Hallgerður sér enn óvini og formælendur meðal alþýðu manna. Þeir, sem nefna sig fræðimenn, láta sér fátt um finnast í skjóli þess að höfundurinn hefur ekkert háskólapróf. Hún telur þó að vanræksla þess að kenna fólki um sögu sína og trú svifti einstaklingana möguleikum þeirra til viðsýni og lífs- nautnar. „Kristinfræði og kvæðanám og saga, eru þau fög sem ég er þakklát- ust fyrir að hafa lært í barnaskóla. Það er mitt álit að kenna ætti kristin- fræði í þrjá tíma í viku í barnaskóla. Kristinfræði kennir öllum börnum að hugsa. Hún bendir til himins og út um allan heim. Ég hefði haft lítið gagn af því að koma til Jerúsalem, ef ég hefði ekki lært kristinfræði sem barn. Barnabiblían, sem ég lærði, er besta kristinfræðibók sem ég hef les- ið. Biblíutextinn er auðskilinn af því að hann er svo vel unninn. Það sama er að segja íslendingasögurnar. Ég var einu sinni að lesa úr Heims- kringlu fyrir 5 ára barn. Og þar kom fyrir „í lýsingu“. Ég hugsaði, þetta orð skilur barnið ekki. En það gerir ekkert til. Þá gerði barnið um leið broslega athugasemd, sem sýndi að það skildi þetta orð af sambandinu, eins og við yfirleitt skiljum málið af samböndum. Það er þetta sem ég vil undir- strika. Það á ekki að halda börnum við orðfæðarbækur. Ég var mjög ung, þegar ég fylgdist með fornsögu, sem lesin var. Efnið hafði slík áhrif á mig, að ég lét brúðurnar mínar heita eftir sögupersónum.“ Hér verður nú staðar númið. Frú Rósa B. Blöndals hefur ekki sagt sitt síðasta orð. Að eiga með henni stund er að sitja við fræðabrunn. Arndís Jónsdóttir VÍÐFÖRLI — 13

x

Víðförli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.