Víðförli - 15.12.1988, Qupperneq 14

Víðförli - 15.12.1988, Qupperneq 14
að er eftirvænting í lofti. Finnið þið? Eftirvænting sem hefur verið í farteski mannsins líklega frá byrjun. Maðurinn er sífellt að þróast og í leiðinni að leita að guði, guði til að trúa á og treysta, falla í faðm þess guðs að úthella angist sinni og þrá. Aðventan er byrjuð. Einkenni hennar nú er vitundin um komu frelsarans og vitundin um endur- komu Krists á efsta degi. Eftirvænt- ing ríkir sumsstaðar ein, þar sem felldar eru niður skemmtanir og trú- aðar sálir skynja að Guð er með oss. Við þessa eftirvæntingu miðar allt í helgihaldinu, eftirvænting sem horf- ir fram til þess mikla dags þegar al- veldi Guðs birtist með komu sonar hans í mætti og dýrð. Við látum okkur oft nægja að- ventukrans með fjórum kertum sem tendruð eru sem táknmál eftirvænt- ingar um ljós heimsins- frelsarann. Höldum í vonina. Á tímum hins gamla sáttmála, tímum gamla testamentisins, voru fyrirheit gefin lýði Guðs um frelsara. Jesaja spámaður spáði þegar hann sagði: Sjá, yngismær verður þunguð og fæðir son og lætur hann heita Immanuel, sem þýðir: Guð er með oss. Enginn veit fæðingardag frelsar- ans en menn völdu dag til minningar dag, sem hafði táknræna merkingu: Sólhvarfadagur í Róm eftir tímatali þeirra og vegna tengsla hans við gang sólar. Frelsarinn var hin raunveru- lega sólarupprás fyrir heiminn — Ljós heimsins. Þá jókst birta sólar æ meir. Myrkrið gat ekki sigrað sólina. Drottinn sigraði dauðann. Við eigum eftirvæntinguna inn- réttaða í hjarta. Vonina. Maðurinn veslast upp ef hann hættir að vona og vænta. Þá visnar lífsþráður hans, sem bindur í fléttu sál og líkama. Augun hætta að gleðjast, byrja að grána með hversdagsleikanum. Við verðum að halda í vonina, hún er andleg móðurmjólk. Flún er tengd kristni. Menn biðu frelsarans lengi og við höldum áfram að bíða þótt hann fari ekkert, sé alltaf nálægur. Immanuel. Við erum alltaf börn í hjarta þótt búkur Iáti á sjá. Fátt er það sem gleð- ur okkur og vekur barnslega eftir- Jónas Jónasson Eftir- væntingin deyr aldrei Á aðventu 1988 væntingu, meir en aðventan. Þrá eft- ir kærleika og fúsa þrá eftir að geta sýnt öðrum kærleik. Kertin kasta birtu lifandi ljóss á glampandi augu í andlitum sem eru snöggvast með yfirbragði barns. Ljósin öll munu höggva rauf i rökkr- ið, dökkur hugur lýsast, bros fæðast og fylgja fólki, sem í þessari til- hlökkun gengur götur borga og bæja, stikar snjóveg í fjárhúsin þar sem kannski þjóðtrúin býr best í bás- um og menn leggja við eyru á jóla- nótt eða nýárs - eða er það á þrett- ándanum sem kýr mæla? Það voru dýr sem vottuðu fæð- ingu frelsarans. Vitringarnir þurftu langveg til að finna barnið í jötu og votta því lotningu. Síðan fóru þeir laumulegan krók úr vegi Herodesar svo þetta barn mætti lifa. Já, allir biðu hans, sumir óttuðust hann, þennan son Guðs sem fæddist á fæð- ingarstofu dýranna án þess að frétta- menn biðu við glugga. Kannski þögðu dýrin þessa heilögu nótt, kannski heyrðist ekkert hljóð nema hönd vindsins sem strauk þakið og stunur verðandi móður sem heyrðust og svo fegursti grátur sem heyrst hef- ur í heimi. Engir komu útvarpsmenn. f þögn nætur og kulda sem kemur á þessum slóðum, þegar enn ein sólin er dáin, stóðu hirðingjar óttaslegnir þegar þeirra tíma fréttaþulur talaði þeim tíðindin mjúklega: Þeim var frelsari fæddur. Og þeir fóru að sjá barnið í jötunni. Enginn útvarps- maður tók viðtal við guðsmpður, enginn yfirheyrði vitni, samt fóru þessi tíðindi um heimsbyggðina með hraða ljóssins. Við minnumst þessa á hverjum jólum, munum frelsrann á páskum, stundum á sunnudögum, sjaldnar á hvítasunnu ef við höfum eitthvað annað að muna, til dæmis hvert við erum að skreppa, hvar sé útihátið með nógu miklu fjöri. Æjá, við höf- um öll verið ung og gleymin. Dags- önnin er orðin svo óskapleg, allt þetta sem þarf að muna, allt sem þarf að gleyma. Svo byrjum við að muna Hann á stund hörmunga og harma. Því nafn Hans er stimplað í hjörtu okkar með ósýnilegu bleki og verður aldrei afmáð. Á jólanótt lifum við aftur merki- legustu fæðingu barns sem ekkert átti af jarðnesku, en hlaut í vöggu- gjöf neista Guðs sem varð að jarðar- báli og logar enn. Barnið innra með okkur. Hverja jólaföstu byrjum við að blandast barninu sem í okkur býr, jafnvel þó við reynum að vera áhuga- laus og kennum um kaupgleðinni og skrautinu, jólalögum dægurlanda. Syngjum þó sjálf hina heilögu nótt, 14 — VÍÐFÖRLI

x

Víðförli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.