Víðförli - 15.12.1988, Qupperneq 15

Víðförli - 15.12.1988, Qupperneq 15
jólasálmana sem góðir menn ortu okkur í sakleysi augnabliksins og grunaði víst ekki eilífðina í söngvun- um þeim. Þó að við streitumst í móti, sogumst við með í hringiðu nútíma eftirvæntingar, fjöldagleðina og kalla nú enn og aftur gleðileg jól til annara, halda enn og aftur gleðileg jól hvað sem þau kosta. Auðlegð virðist vera næg í allri fátæktinni. Löngu liðin sú tíð er nægja þótti að gefa börnum landsins kerti til að kveikja loga eftirvæntingar og friðar og hvitta myrkrið sem bjó í hverju horni og í löngum göngum húsa. Ef vel lá á guði kveikti hann himneskt kertaljós og setti í stjörnuglugga sina og útiljósið á bæ hans lifði í formi tungls og birtan dansaði á kristal- hjarni svo að menn komust leiðar sinnar í fjárhúsin án þess að villast út í auðnina. Enn lifir eftirvænting í fénu sem kveikir augnljós í myrku fjárhúsi eins og þessi ókyrri hópur sé að biða eftir einhverju stórkostlegu. Það sem hefur gerst getur hæglega gerst aftur. Þegar búið var að gefa á garðann, jólin liðin burtu og grár hversdags- leikinn tekinn við, byrjuðu menn að bíða enn og aftur. Bíða frelsarans þó hann sé löngu kominn og hafi ekkert farið. Við eyðum oft tíma aðventu í kvartanir um hjóm í undirbúningi jólanna, menn renna fótskriðu á dögum sem deyja hver af öðrum og eru mismikið til minnis. Á sjálfu aðfangadagskvöldi enda menn þreyttir og leiðir, búnir að týna gleð- inni í einhverri stórverslun, jóla- gleðin situr kannski aðeins eftir á jólakortum sem svo hafna í ruslinu þegar dagur vaknar í austri grár og orðinn venjulegur. Augnabliki jólanna verður aldrei eytt. En okkur mun aldrei takast að eyða augnabliki jólanna, augnabliki aðfangadagskvöldsins, þegar klukk- ur heimsins kalla alla menn til að nema staðar í erlinum og finna að það er heilagt. Já, takið bara eftir því, þegar klukkan segir okkur að aðfangadagur sé að breytast í kvöld, þá verður eitt ólýsanlegt augnablik, rétt einsog allur heimur standi á önd- inni og bíði í þegjandi eftirvæntingu. Hjarta okkar slær örar, ljós kvikna og eru lifandi en jafnvel loginn er kyrr. Fuglar hætta að tina í heims- búrinu, leggja höfuð á fönn til að brjóta af sér storminn og fuglar í búri húsa stillast og klemma klær um rimla, þrýsta nefi og augum milli þeirra og horfa til einhvers sem er væntanlegt. Allt svo kyrrt og agn- dofa, og við, sem eigum öll þessi ár á baki, við byrjum að breytast í börn aftur og byrjum að elska upp á nýtt. Þegar vígamenn urðu jólabörn. Ég átti vin sem nú er látinn. í síðari heimsstyrjöldinni var hann óvelkominn túristi á vegum ferða- skrifstofu þýska stríðsins. Ein jól dvaldi hann í skotgröfum. Samt komu jólin þangað. Hann sagði mér hvernig eftirvæntingin byrjaði að ná tökum á þeim öllum og lifði á milli skothvellanna og þegar var orðið heilagt um heimsbyggðina, hættu menn einfaldlega, einn af öðrum, að þrýsta á gikki, augu að leita óvina, heldur leitaði hugur heim gegnum lokuð augu, því allir áttu sér ein: hversstaðar heima, annarsstaðar. Snöggvast ríkti algjör þögr, í báðum skotgröfum, menn héldu niðrí sér andanum í ólýsanlegri eftirvænt- ingu. Svo byrjaði einhver að syngja Heims um ból. Fleiri raddir tóku undir og loks var sungið um allan vígvöllinn á tveimur tungum og helgi stundarinnar þrýsti sér í eyru vina og óvina og út um varir í voldugum tón- um þessa einfalda lags. Vinur minn fékk enn tár í augun þegar hann minntist þessarar jólanætur og aldrei hafði hann heyrt svo magnað- an söng. Vinur minn lagði byssuna á frosna jörðina og tárin runnu og byrjuðu að þíða frera jarðar og frera hjartans meðan hann þrýsti óhreinu enni sínu á jörðina. Sálmur jólanna fyllti tómið milli skotgrafa, síðan allt tómið milli himins og jarðar og herskari engla sveif yfir og kallaði þessum hirðingjum vopna: Verið óhræddir, yður er í dag frelsari fæddur, ef þið voruð kannski búnir að gleyma því. Elskið hann, elskið óvini yðar, réttið fram hina kinnina, sá ykkar sem syndlaus er skjóti fyrstu kúlunni. Ekkinn bjó í brjósti hvers her- manns, varir mæltu orð og bænir til mæðra. Svo byrjuðu hermennirnir að kallast á, gleðileg jól, gleðileg jól! Það heyrðist meira að segja hlátur. Menn kveiktu óhræddir í vindling- um. Allir urðu þessir vígamenn jóla- börn þessa heilögu nótt. Einhvers- staðar þarna úti, í fjárhúsi langt frá gististöðum manna, lá frelsarinn í jötu sinni og vitringarnir lutu hon- um í auðmýkt. Þegar dagur lyfti sól nýfæddri upp á austurhimin, voru vígamenn enn búnir að gleyma honum, sem fæddist um nóttina þarna rétt hjá þeim. Sálmur jólanna hafði dáið út, þögnin lifði á nástráum. Svo byrjuðu þeir aftur að skjóta. Frelsarinn fór ekkert. Meðan lífsklukkan tifar okkur tímann, er ljúf huggun að vita að frelsarinn fór ekkert. Hann stendur á meðal okkar. Hann mun strjúka unga vanga og rjóða, renna mjúkum fingrum um hrukkur ellinnar, slá strengi hvers hjarta, blása burt tárum einmanaleikans, strjúka gullin hár og grásprengd og sinfónía lífsins verður flutt á hverjum degi og heyrist um víða veröld og allir munu þekkja hana því hún er samin á himnum, æfð á jörðinni og flutt í hugum fólks og ber nafnið Gleðiboðskapur. í nafni Hans byrjum við að halda aðventuna á dimmustu dögum árs- ins. Þetta er tími eftirvæntingar og gleði, tími gjafa í nafni elsku og vin- áttu. Sum okkar kvíða árlega fargi þessara daga og kvarta sáran og segj- ast ekki hafa vilja til að halda jól, hafi ekki efni á því að halda jól. En jú, öll getum við gefið hvert öðru dýrmætar gjafir: Við getum gefið hlýtt handtak, fallegt bros, orð búin til úr varma, vináttu gjörða úr hjartablóði. Jesúbarnið í jötunni frægu, er lif- andi tákn um gæsku Guðs, von um framtíð án enda. Hvað er að óttast? Með trú og von og kærleik í hjarta: Hvað er að óttast? Eftirvæntingin deyr aldrei. Guð veri með okkur öllum. Gang- ið héðan í gleði, fylgið stjörnunni, þá finnið þið Hann, fyrr eða síðar, Immanuel. Jónas Jónsson útvarpsmadur flutti þessa hugleiðingu á aðventu- kvöldi Dómkirkjunnar 27. nóvem- ber. VÍÐFÖRLI — 15

x

Víðförli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.