Víðförli - 15.12.1988, Qupperneq 18
Fjárhúsið
í Betlehem
Á mörgum heimilum eru til lítil
fjárhús með Maríu, Jósef og Jesú-
barninu, fjárhirðum, lömbum,
englum og vitringum, sem standa
frammi um jólin. Tilvalið er að búa
til slíkt fjárhús sjálf sem getur hvort
sem er staðið á heimili, í kirkju eða
safnaðarheimili. Vel má nota slíkt
fjárhús þegar sagt er frá atburðum
atburðum jólanna. Þátttakendur
geta þá hjálpast að stilla upp hlutun-
um um leið og frásagan er sögð.
Þetta er ekki hægt að gera í stórum
hópi.
Ákjósanlegast er að búa til fjár-
húsið og fólkið í hópvinnu. Þetta er
kjörið verkefni fyrir elstu börnin í
barnastarfi, þ.e. þau sem eru 11 og 12
ára. Fjárhúsið fær svo að standa yfir
jólin í kirkjunni og hægt er að láta
atburði jólanna „gerast“ þar með
því að breyta uppstillingunni allt
eftir því sem jólin líða. Ef til vill má
byrja þegar á aðventunni og láta
Maríu og Jósef vera á Ieið til Betle-
hem. Vitringarnir koma þá ekki að
fjárhúsinu fyrr en á þrettándanum.
Flér verður hver og einn að finna sína
leið en láttu hugmyndaflugið vinna
með þér. Börnin kunna að meta það.
Fjárhúsið.
Fjárhús og fólk verða að vera í
stærðarhlutföllum hvert við annað.
Flér eru gefnar 3 hugmyndir allar úr
pappa. Einnig er hægt að smiða fjár-
hús og væri gaman að heyra ef ein-
hver ræðst í slíka framkvæmd.
I. Efni: Pappakassi utan af 18.
litlum Svala fernum.
Strigi/lím og/eða málning.
Aðferð: Langhliðar kassans eru
notaðar sem gólf og þak. Sú hlið sem
er þak er spennt upp. Hylja þarf
textann á hliðunum á einhvern hátt,
t.d. með striga eða málningu. Þetta
hús hentar vel fyrir klósettrúllufólk.
II. Efni: Karton, heftari, strá
(bast), lím, skæri, stjörnur, þráður.
Aðferð: Klippið ca. 10 cm breiðan
og 100 cm langan renning sem heftur
er saman eins og myndin sýnir. Strá
límd á bogann. Hengið upp stjörnur
á bogann til skrauts. Þessi stærð er
ágæt fyrir klósettrúllufólk en mjög
auðvelt er að breyta stærðinni.
III. Efni: Karton (t.d. úr pappa-
kassa), breitt límband, strá (bast),
lím, skæri.
Aðferð: Klippið út alla hlutina.
Límið hliðar og langvegg saman með
límbandinu. Langveggurinn er lágur
til að birta komist þar inn. Þakinu er
svo þrýst ofan á. Límið strá á þakið.
Stærð þessa húss hentar vel fyrir lítið
fólk, t.d. fólk úr eggjabökkum.
2 stk.
Jata.
Jötu má auðveldlega búa til úr
þykkum pappír, eins og þessi mynd
sýnir.
0 fl
þak 13cm
0 22.5cm (1
18 — VÍÐFÖRLI