Víðförli - 15.12.1988, Side 24

Víðförli - 15.12.1988, Side 24
Kirkjuþing 1988. Fremsta röð: Agnes Ýr Þorláksdóttir starfsmaður, Halldór Finnsson, Gunnlaugur Finnsson, sr. Sigurður Guð- mundsson vígslubiskup, herra Pétur Sigurgeirsson biskup, sr. Ólafur Skúlason vígslubiskup, sr. Jón Einarsson, sr. Svavar Stefánsson, Þórir Jökull Þorsteinsson starfsmaður. Miðröð: Sr. Þorbergur Kristjánsson, Jón Guðmundsson, sr. Jónas Gíslason, sr. Hreinn Hjartarson, Halldóra Jónsdóttir, Margrét K. Jónsdóttir, sr. Jón Ragnarsson, Guðmundur Magnússon. Aftasta röð: Kristján Þor- geirsson, lngimar Einarsson, Ottó A. Michelsen, sr. Jón Bjarman, sr. Þórhallur Höskuldsson, sr. Árni Sigurðsson, dr. Gunnar Kristjánsson, sr. Magnús Guðjónsson ritari þingsins. Tveir varamenn sátu Kirkjuþing að þessu sinni, þeir sr. Jón Ragnarsson í Bolungarvík og sr. Svavar Stefánsson á Neskaup- stað. Víðförli spurði þá um viðhorf þeirra og reynslu af þingsetunni. Sr. Svavar Stefánsson Sr. Svavar Stefánsson, Neskaup- stað var annar fulltrúi Austfirðinga í fjarveru sr. Einars Þórs Þorsteins- sonar prófasts. Hvernig kom Kirkjuþing þér fyrir sjónir séð að innan? Þetta Kirkj uþing sem nú er ný lok- ið er það fyrsta sem ég sit en ég er varamaður sr. Einars Þorsteinssonar á Eiðum. Ég get ekki sagt að ég hafi verið kunnugur störfum Kirkjuþings að öðru leyti en því sem maður les í „Gjörðum Kirkjuþings“. Það var því mjög fróðlegt að sitja þetta þing og taka þátt í störfum þess. Þarna var verið að fjalla um málefni kirkjunn- ar með nokkrum öðrum hætti en maður á að venjast. Þar á ég við ýmsa þætti er snerta þá löggjöf sem kirkjuna varðar. Mér er það ljósara en áður hve mikilvægt það er að þar sé vandað til. Og þar sem ég sat í fjárhagsnefnd Kirkjuþings þá gafst mér tækifæri til að kynnast vel fjár- málum kirkjunnar og þeirra stofn- ana sem tengjast henni. Það var mjög athyglisvert og gleðilegt að sjá í fyrsta lagi hve tekjur kirkjunnar og safnaðanna hafa aukist og í öðru lagi hve góður rekstur virðist vera orðinn á stofnunum kirkjunnar. Vakti sérstaka athygli mína hve Út- gáfan Skálholt hefur tekið miklum stakkaskiptum og vænt þess að hún eigi eftir að gera marga góða hluti. Hvaða mál þingsins fundusl þér alhyglisverðust? Mestur tími Kirkjuþings að þessu sinni fór í umræður um frumvarp til laga um skipan prestakalla og prófastsdæma. Þar er m.a. gert ráð fyrir nokkrum breytingum á presta- kallaskipan. Ég verð að segja eins og er að ég varð fyrir nokkrum von- brigðum með það frumvarp. Ég hafði búist við viðameiri breytingum en þar er gert ráð fyrir. Þegar breyta þarf skipan prestakalla og prófasts- dæma finnst mér að það þurfi að byrja á því að skoða hvern fjórðung með tilliti til samgangna, félagslegra aðstæðna o.fl. Til þess að prófasts- dæmi verði virk starfseining, eins og stefnt er að í þessu frumvarpi, þá þurfa söfnuðirnir og starfsmenn þeirra að eiga auðvelt með að hittast og starfa saman. Ég get nefnt sem dæmi, að hér fyrir austan erum við með tvö prófastsdæmi (reyndar þrjú í kjördæminu) og skipting þeirra gengur þvert á samgönguleiðir. Þessi skipting hefur torveldað samstarf. Ég hefði viljað sjá Héraðið og firð- ina í einu prófastsdæmi og að prófastur fengi aðstoðarprest til að geta sinnt sínum prófastsstörfum eingöngu. Þannig vildi ég að nefndin hefði skoðað allt landið. En ég geri 24 — VÍÐFÖRLI

x

Víðförli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.