Víðförli - 15.12.1988, Blaðsíða 27

Víðförli - 15.12.1988, Blaðsíða 27
Fermingarnámskeið á Núpi hamingjusamur. Flest annað er varðar hagi okkar skiptir minna máli en þetta um það hvort við erum hamingjusöm eða ekki. Nú gæti það þótt órómantísk skilgreining að hamingjan sé fólgin í starfi, en flest- ar eða allar visanir til innri verðmæta eða ytri gæða reynast haldlitlar, því ríkt og frægt fólk sem og miklir gáfu- og listamenn kljást ekki síður við geðræn vandamál en sauðsvartur almúginn. Með „starfi“ er hér ekki einungis átt við launað starf því mörg er vinnan þó ólaunuð sé sbr. orðalagið „það er mikil vinna að vera með stóran garð.“ Raunar kemur fátt af sjálfu sér í lífinu. Fjöl- mörg dæmi mætti nefna um hin ýmsu svið sem krefjast starfsemi til huga og/eða handa. Lítum til dæmis á hvaða sagnir eru notaðar til að lýsa því hvernig hjónaband megi vera gott: ástunda, hlúaað, rækta, byggja upp. Þær lýsa mikilli virkni og krafti. Hamingjutilfinningin tengist hvers konar starfsemi einstaklings sem hefur tilgang fyrir hann, þann tilgang að ná ákveðnu markmiði sem honum finnst verðugt. Lífsskilning- ur manna er ólíkur og væntingar þeirra til lífsins og sjálfra sín jafn misjafnar og mennirnir eru margir. Þess vegna er engin ein uppskrift til að hamingjusömu lífi. Listin er að gera sitt besta, eins og íþróttafólkið segir, án þess að ofgera sér. Sátt við hlutverkið. Summu allra starfa einstaklings- ins, í þeirri víðu merkingu sem áður er lýst, er hægt að nefna „hlutverk". Hamingjusamt lífshlaup hans felst þá í því hvort hann er sáttur við hlut- verk sitt í lífinu yfirleitt. — Fólk deyr og við segjum að það hafi verið sátt við að deyja. Við segjum svo um fólk sem sýnir af sér ró því það hefur skilað vel sínu hlutverki. Það deyr hamingjusamt! Sjónvarpsþátturinn „Maður vik- unnar“ er ólíkur þætti eins og „Það er leið út“. Hann leiðir nær alltaf fram á sjónarsviðið fólk sem Iifir „sólarsumar“. Það er ekki hægt annað en fyllast aðdáun á þessu at- orkusama og bjartsýna fólki. Öll eigum við okkar atorku og okkar bjartsýni. Séð frá því sjónarmiði erum við öll brot af manni vikunnar. Herbjört Pétursdóttir. Eins og kunnugt er fjallaði presta- stefnan í sumar um fermingar- fræðsluna og taldi nauðsyn á að enn meiri áhersla yrði lögð á hann en ver- ið hefur. Viðbrögð prestanna á Vest- fjörðum voru m.a. þau að bjóða upp á námskeið í upphafi fermingar- fræðslunnar á Núpi í Dýrafirði dag- ana 5. og 6. eða 8. og 9. september. Á dagskrá voru fermingarfræðslu- stundir með venjulegu sniði, vinna með svokallað þemaverkefni, úti- vist, kvöldvaka og helgistundir. Námskeiðahald þetta heppnaðist að sögn prestanna sérstaklega vel. Þátttaka var mjög góð og mættu nær öll börn af smærri stöðunum. Mikið vannst á þessum tiltölulega stutta tíma. Fimm kennslustundir voru hafðar með venjulegu sniði og skiptust prestarnir á að taka til sín börnin í hópum og kenndi hver þeirra sitt efni. Einnig var unnið með þemað: Sköpunin — Maðurinn — Guð; á margvíslegan hátt. Sýndar voru myndir og einnig búnar til, sungnir söngvar og rætt um málin. Guðsþjónustur við hæfi barna voru kvölds og morgna og var eftirtektar- vert hvernig söngurinn magnaðist með hverri guðsþjónustu eftir því sem söngvarnir lærðust betur og börnin stilltust betur saman. Ekki var vanrækt að nýta sér það senr Núpur hefur uppá að bjóða: Fagurt umhverfi, góða iþróttaað- stöðu, prýðileg húsakynni og frá- bærlega notalegan og heimilislegan mat. Það er ánægjulegt að sjá þær framfarir sem eru að verða á Núpi þessi árin og tilhlökkunarvert að eiga þar í hús að venda með vest- firskt mannræktarstarf. Þess starfs vegna var Núpsskóli stofnaður af merkisklerkinum og skólafrömuðin- um Sigtryggi Guðlaugssyni. í fermingarfræðslunni er treyst sú lífsundirstaða sem foreldrar, kirkja og skóli hafa þegar lagt og telja prestarnir þetta gott upphaf á vetrar- starfinu. Mörg hafa börnin sjálfsagt verið í sumarbúðum á Núpi og hafa því eflaust haft gaman af að heim- sækja staðinn og rifja upp gömul kynni. Einnig er þetta kjörið tæki- færi fyrir vestfirsk börn til þess að kynnast hvert öðru. Þeir prestanna sem reynslu hafa af fermingarbarnanámskeiðum á miðj- um vetri fermingarfræðslunnar segja reynsluna af þessu námskeiði ótvírætt benda til þess að heppilegra sé að hafa þessi námskeið á haustinu í upphafi vetrar. Börnin eru fersk eft- ir sumarleyfið, samstarfið við fræð- arana nýnæmi og þau ómótaðri sem hópur. Myndin sýnir hversu henl er gaman af fermingarfræðurunum á Núpi: F.v. sr. Jakob Hjálmarson Isafirði, sr. Karl Matthíasson Suðureyri, sr. Gunnar Hauksson Þingeyri, sr. Sigurður Jónsson Patreksfirði og sr. Jón Isleifsson Sauð- lauksdal. VÍÐFÖRLI — 27

x

Víðförli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.