Víðförli - 15.08.1989, Side 9
Góður hagur
Það er leikur að læra, leikur sá er mér kær ...
Aðalfundur Hjálparstofnunar
kirkjunnar var haldinn fyrir
skömmu. Fundinn sóttu fulltrúar
s
víðsvegar að af landinu. A
fundinum kom fram að árið 1988
voru tekjur stofnunarinnar
tæplega 30 milljónir króna og
munaði þar mest um tekjur af
jólasöfnuninni “ Brauð handa
hungruðum heimi”, sem voru
tæplega 20 milljónir króna, og er
hagur stofnunarinnar góður um
þessar mundir.
A fundinum kom fram að
fyrirtækið Kaupþing hefur
ákveðið að leggja fram tiltekna
fjárhæð árlega til að styrkja fátæk
börníþróunarlöndum. Kaupþing
hefur leitað til Hjálparstofnunar
kirkjunnar um samvinnu vegna
þessa máls.
Helstu verkefni
Helstu verkefni á síðasta ári
voru neyðaraðstoð vegna
jarðskjálftanna í Armeníu og
aðstoð til hungursvæða í
Mósambik og Suður-Súdan,
stíflugerð í Víetnam og jafnframt
styrkti Hjálparstofnun kirkjunnar
þróunarverkefni í Zimbabwe og
Eþíópíu. Á þessu ári bætast við
ný verkefni. Bygging á skóla
fyrir 400 böm og bygging á
heimili fyrir vangefin böm á
Suður-Indlandi. Einnig verður
átak vegna sjálfstæðis Namibíu.
Kosningar fara þar fram 1.
nóvembern.k. Hjálparstofnanirá
Norðurlöndum hafa ákveðið að
vera með söfnunaratak undir
kjörorðunum “Æska-Menntun-
Þróun” og er markmiðið að safna
fjármunum til styrktar
skólakerfmu í Namibíu og að
styðja tómstundastörf og
stúdentahreyfingar í landinu.
Hjálparstofnunin veitti einnig
talsverða aðstoð innanlands, m.a.
til kvennaathvarfsins.
Þjóðþrif
Hjálparstofnun kirkjunnar
hefur ákveðið að taka þátt í sam-
starfi um Þjóðþrif ásamt Banda-
lagi íslenskra skáta og Landssam-
bandi hjálparsveita skáta.
Þjóðþrif verður rekið undir
kjörorðinu “Við endurnýtum
verðmæti.” Með þessu átaki ætla
félagasamtökin að stuðla að auk-
inni umhverfisvernd og
endumýtingu verðmæta ásamt
því að afla fjár til starfsemi sinnar.
Þjóðþrif mun standa að söfnun
einnota umbúða undan
drykkjarvöm og gefa almenningi
kost á að losa sig við þær í
sérstaka gáma sem ganga undir
heitinu “Dósakúlan.” Þjóðþrif
mun síðan koma umbúðunum til
skila til Endurvinnslunnar h.f. og
innheimta skilagjaldið. Dósa-
kúlunum verður komið upp við
allar bensínstöðvar og við
stórmarkaði á höfuðborgar-
svæðinu fyrst til að byrja með.
Einnig verður komið upp
söfnunarkössum í fyrirtækjum og
á veitíngastöðum.
Fræðsla
Hjálparstofnun kirkjunnar
leggur stóraukna áherslu á
ffæðslustarf. Hafin er útgáfa á
fféttablaði “Margt smátt.” Með
útgáfu þessa blaðs vonumst við til
að koma upplýsingum um
hjálparstarfið á framfæri sem
viðast. Einnig hefur verið komið
upp litskyggnusafni til útlána og í
undirbúningi er textun á erlend-
um fræðslumyndum um
þróunarlönd og þróunarstarf
Stjórn stofnunarinnar var
endurkjörin en hana skipa, Ámi
Gunnarsson formaður, Haraldur
Olafsson, sr. Þorbjörn Hlynur
Ámason, Hanna Pálsdóttir og sr.
Ulfar Guðmundsson.
Sigríður Guðmundsdóttir
framkvæmdastjóri.
9