Víðförli - 15.08.1989, Side 21
ræða. Minn hópur átti að ræða
“réttlæti í Biblíunni”. Við rædd-
um það að vísu aldrei því að allur
tíminn fór í að ræða loka-
ályktunina sem samþykkja átti. I
hópnum voru margir frá Austur
Evrópu og að þeirra mati var
plaggið skrifað of mikið út ffá
Vestur Evrópsku sjónarhorni.
Svo greindi kirkjudeildimar líka
stundum á þó að minna bæri á því
en hinu.
ÖIl eiga þau að vera eitt
Lokaályktunin var gefin út á
þinginu og er nokkurs konar
stefnuskrá fyrir kirkjudeildimar
sem tóku þátt í því, rómversku
kaþólsku kirkjuna, rétttrúnaðar
kirkjuna og mótmælendur.
Þar er fyrst rætt um þá ógn sem
steðjar að réttlæti, friði og
náttúmnni í heiminum og á hvem
hátt þessi hætta er áskomn til
kirkjunnar að hefjast handa og
gera eitthvað. Síðan er ábyrgð
kirkjunnar skilgreind frekar og þá
ekki síst hinnar vestrænu kirkju,
sem er að hluta ábyrg fyrir því
hvemig málum er háttað í þriðja
heiminum í dag. Þá er vitnað til
hinnar kristnu vonar um nýjan
himinn og nýja jörð. Þessi von
hinstu tíma leysir þó kristna menn
ekki undan þeirri ábyrgð að starfa
í ríki Drottins að því að allir menn
verði eitt í Kristi og eigi mögu-
leika á mannsæmandi lífi.
Ályktunin felur í sér von um
sameinaða Evrópu, lausa undan
skuggum fortíðar. Þegar farið er
yftr ályktunina, sem er nærri 30
síður, vekur undmn að allar þes-
sar kirkjudeildir skyldu geta
sameinast um hana. Það kveikir
jafnframt von um að bæn Krists
verði einhvem tíman að raunver-
uleika: “Ölleigaþau aðveraeitt.”
Adda Steina Björnsdóttir
erfréttamaður og vinnur
nú að ritgerð sinni til
embættisprófs í guðfœrði
Frá söngmálastjóra
Þjóökirkjunnar
Barnakórar í
kirkjunni.
Á undanfömum ámm hefur
öðm hvom skotið upp bama-
kómm við kirkjur hér á landi. Þó
að skólakórar hafi náð góðri
fótfestu, hefur það því miður ekki
verið svo í kirkjunni.
A organistanámskeiðinu í
Skálholti í haust verður byrjað að
kynna nýtt kirkjulegt efni ætlað
bamakómm. íslenskir kórstjórar
munu miðla af reynslu sinni og
frá Danmörku kemur John Hpjby
sömu erinda, en hann hefur haldið
mörg alþjóðleg námskeið. Síðast
en ekki síst er þama tækifæri til að
tala saman um þetta verkefni og
✓
skiptast á hugmyndum. I þeim
tilgangi verður haldinn fundur í
lok námskeiðsins sunnudaginn 3.
sept. kl. 10.30. Á hann þyrftu að
koma allir þeir sem málið varðar.
Ekki styttir það líf bamakórs ef
tilvist hans er áhugamál kirkju-
stjómaráhverjumstað. Fulltrúar
þessa hóps em því boðaðir á
fundinn. Eins og áður er nám-
skeiðinu líka þörf á kirkjukórs-
söngvumm sem geta verið alla
vikuna og myndað kór.
Nytsamleg atriði sem þurfa að
vera í umræðunni em t.d.:
1. Hlutverk bamakórs íkirkjunni.
2. Verkaskipting bamakórs og
kirkjukórs.
3. Starfskjör kórstjóra.
4. Aðstoðarfólk kórstjóra.
5. Samvinna kórstjóra og organ-
ista þegar þannig stendur á.
Ýmislegt er um að hugsa áður
en bamakórinn kemst á flot. En
ekki aðeins fyrir barnakór-
stjórann sjálfan, heldur einnig
fyrir safnaðarstjórnir sem fýsir að
sjá bamakór dafna við kirkjuna
sína. Ekki verður komist hjá
auknum útgjöldum og fyrirhöfn
við að fá tugi bama tvisvar í viku
í kirkjuna auk ferðalaga sem em
nauðsynlegur þáttur.
Ef öll þessi verkefni bæði
númemð og ónúmeruð ættu að
hvfla á einum manni, sem jafn-
ffamt æfir og stjómar og leikur
undir hjá öðmm kór, þá þarf ekki
að spyrja að endalokum bama-
kórsins. Ef sóknarnefnd ákveður
að reynt skuli að stofna barnakór
við kirkju, ætti hún því að velja
fulltrúa sem yrði í tengslum við
organistann eða þann sem tekur
að sér starfið. Stuðningur hans er
ómissandi.
Mönnum ber saman um að 9-
11 ára böm megi ekki æfa lengur
en 45-50 mínútur í einu. Hver
mínúta erþvíafardýrmæt. Bama-
kórsæfing á þess vegna að vera
með sama lagi og leikfimitími af
gamla skólanum þar sem eitt
tekur við af öðm án nokkurs hiks.
Þetta þýðir að undirbúningur
verður að vera afar nákvæmur,
viðfangsefni markviss og stund-
vísi algjör. Ef þessi grunnatriði
agaðra vinnubragða eiga að nást,
þarf kórstjórinn að ætla drjúgan
tíma í að undirbúa sjálfan sig áður
en fyrsta kóræfingin er boðuð.
Sá undirbúningur gæti m.a.
verið í því fólgin að sækja nám-
skeiðið í Skálholti 27. ág.-3. sept.
n.k. Þátttaka er boðuð fyrir hádegi
í síma 91-14018.
Glúmur Gylfason.
21