Bæjarins besta


Bæjarins besta - 05.05.1999, Blaðsíða 2

Bæjarins besta - 05.05.1999, Blaðsíða 2
Skoóanakönnun Gallups vegna alþingiskosninga Útgefandi: Ábyrgðarmenn: H-prent ehf. Sigurjón J. Sigurðsson Sólgötu 9, 400 ísaflörður Halldór Sveinbjörnsson n 456 4560 Ritstjóri: 0456 4564 SigurjónJ. Sigurðsson Netfang prentsmiðju: Blaðamaður: hprent@snerpa.is Hlynur Þór Magnússon Stafræn útgáfa: Netfang ritstjórnar: http ://www. snerpa.is/bb bh@snerpa.is Bæjarins besta er í samtökum'bæjar- og héraðs- fréttahlaða. Eftirprentun, hljoðritun, notkun Ijósmynda og annars efnls er óheimil nema heimilda sé getið. í hinsta sinn Áfastan liðpólitískrarumræðufyriralþingiskosningar síðan kjördæmabreytingin átti sér stað 1959, ofurvald Vestfirðinga á þjóðþinginu þar sem vægi hvers og eins þeirra er á við marga höfuðborgarbúa og þess valdandi að sögn, að stjómvöld sáu enga leið til að taka á vanda- málum samfélagsins áratugum saman, hefur ekki verið minnst að þessu sinni. Ástæðan er sú að nú hefur verið settur plástur á þetta þjóðfélagsmein. Vestfirðingar ganga nú að kjörborði í hinsta sinn sem sérstakur þjóðflokkur. Vestfjarðakjör- dæmis bíða sömu örlög og litlu sveitarfélaganna sem á undanförnum árum hafa verið að ganga hvert inn í annað, þar sem þau áttu ekki annarra kosta völ, tilneydd í fjandsamlegu umhverfi þar sem allt er vegið og mælt eftirarðsemisstikufjármagnsins.Væntanlegirþingmenn munu næstum sem einn maður samþykkja kjördæma- breytinguna fyrirhuguðu. Er þá væntanlega greiðfært að koma í framkvæmd öllum þjóðþrifamálum sem hvílt hafa á herðum landsfeðranna og vestfírska atkvæða- vægið á þingi hefur staðið í vegi fyrir. Þetta stendur sem sagt til bóta og er vonandi árangur fyrir alla. Síðustu skoðanakannanir benda til að æ fleiri dragi fram á síðustu stundu að gera upp hug sinn til flokka og frambjóðenda. Kannski hafa glansmyndirnar þar sem fölvinn hefur komið í stað sterkra frumlita fyrri ára þessi seinlætisáhrif. Meira að segja þeir allra rauðustu eru allt í einu orðnir grænvistvænir. Þá bendir ýmislegt til að flokkseignin fari minnkandi þótt sjálfsagt sé þar munur á. Það er nú einu sinni svo að mannkindin er misjafnlega sauðtrygg í eðli sínu og svo er nú hvergi nærri eins á garðana gefið á öllum bæjum. Kosningaaðdragandinn var með styttra móti að þessu sinni. Þó var hann yfrið nægur miðað við innihald. Kannski er ekki við því að búast að stjórnmálamenn taki sig hátíðlega meðan skoðanakannanir eru á þann veg að kompási sem skilaði sömu fjölbreytni í stefnu- vísun og þær hafa gert væri umsvifalaust hent. En þrátt fyrir allt verða kosningarnar á laugardaginn spennandi. Þær munu halda frambjóðendum í spenni- treyju kvíðans uns yfir lýkur. Hverjir halda velli og hverjir liggja í valnum þegar morgnar að nýjum degi eftir kosninganótt skal ósagt látið. Og kannski er best að vita sem minnst um það fyrirfram eins og svo margt annað. Hingað til hefur það gefist mörgum vel að láta hverjum degi nægja sína þjáningu. - s.h. ODÐ VIKUNNAD Frúarkirkja Frúarkirkjur (kirkjur vorrar frúar) eru víða um lönd. Meðal hinna þekktustu eru Frúarkirkjan í París (Nötre- Dame) og Frúarkirkjan í Kaupmannahöfn. Frúin sem kirkjurnar eru helgaðar er María guðsmóðir. Á íslensku hefur hún löngum verið nefnd vor frú. Nötre- Dame þýðir einfaldlega okkar frú eða vor frú, rétt eins og Vor Frue á dönsku. 2 MIÐVIKUDAGUR 5. MAÍ 1999 Vestfirðingar hafa ákveðnar skoðanlr Vestfirðingar virðast hafa mun ákveðnari skoðanir í póli- tík en aðrir landsmenn, ef marka má skoðanakönnun Gallups um fylgi stjórnmála- flokka og framboða á Vest- fjörðum sem birt var í sfðustu viku. Þar kom fram, að ein- ungis 3,7% væri óákveðnir í afstöðu sinni og aðeins 8,l% neituðu að taka afstöðu. Þetta er ekki síst athyglisvert í ljósi þeirra miklu hræringa sem hafa orðið í pólitíkinni og hvergi meiri en í Vestfjarða- kjördæmi. Fylgi framboðanna hjá þeim sem afstöðu tóku í skoð- anakönnun Gallups var þetta (tala kjördæmiskosinna þing- manna innan sviga): B-listi 26,8% (l maður), D-listi 31,7% (2 menn), F-listi 9,8%, H-listi 0,4%, S-listi 25,2% (1 maður) og U-listi 6,0%. Þingmenn Vestfírðinga eru fimm. Fjórir þeirra eru kjör- dæmiskosnir en sá fimmti er jöfnunarmaður. Hver hann verður ræðst af heildarúrslit- um á landinu Af tölum úr Vestfjarðakjördæmi einu sam- an er engin leið að segja til um það. Urtakið í könnun Gallups á Vestfjörðum var 800 manns á Vestfjörðum, 18 ára og eldri, og var valið með tilviljun úr þjóðskrá. Svörfengustfrá584 manns eða 73% úrtaksins. I síðustu Alþingiskosning- um fékk Framsóknarflokkur 19,8% og einn mann. Sjálf- slæðisflokkur fékk 32,5% og tvo menn. Þá fékk Vestfjarða- listinn 13,l%(klofningsfram- boð út úr Framsóknarflokkn- um) og vantaði hann aðeins hluta úr einu prósenti til að ná inn manni. Þeir fjórir flokkar sem nú standa að Samfylk- ingunni fengu þá samtals 34,6%. Þar af fékk Alþýðu- flokkurinn 13,7% og einn mann og Alþýðubandalag 11,9% og jöfnunarmanninn, fimmta mann kjördæmisins. Flokkshollusta mælist mest hjá þeim sem kusu Alþýðu- flokkinn í síðustu kosningum (rúmlega 76% þeirra ætla að kjósa Samfylkinguna) og Framsóknarflokkinn (tæplega 76% þeirra ætla að kjósa hann núna). Rúmlega 73% þeirra sem kusu Sjálfstæðisflokkinn fyrir fjórum árum ætla að gera það núna. Við annan tón kveð- ur hjá þeim sem kusu Alþýðu- bandalagið fyrir fjórum árum. Aðeins rúm 39% þeirra ætla að kjósa Samfylkinguna núna. Tæplega 29% þeirra ætla að kjósa Vinstri hreyfinguna - grænt framboð, rúmlega 12% ætla að kjósa Frjálslynda flokkinn og rúmlega 12% ætla að kjósa Framsóknarflokkinn. Nokkur munur er á fylgi flokkanna eftir búsetu í kjör- dæminu. Framsóknarflokkur- inn hefur langmest fylgi á Ströndum en minnst á ísafirði. Fylgi Sjálfstæðisflokksins er langminnst á Ströndum. Fylgi Samfylkingarinnar er lang- mest á fsafirði. Ekki er marktækur munur á fylgi framboðanna eftir kynj- um. Hins vegar er nokkur fylgismunur eftir aldurshóp- um. Hjá Samfylkingunni er ekki munurá fy lgi eftir aldurs- hópum. Framsóknarflokkur- inn hefur hlutfallslega mest fylgi meðal þeirra sem eru 55 ára og eldri en fylgi Sjálf- stæðisflokksins er aftur á móti minnst í þeim hópi. Gallup leggur áherslu á, að könnunin er ekki spá um úrslit kosninganna, heldur er henni ætlað að sýna fylgi framboð- anna þegar hún var gerð. ÍSAFJARÐARBÆR FRÁ GRUNNSKÓLUM ÍSAFJARÐARBÆJAR - INNRITUN i Innritun nýrra nemenda í grunn- skólum Isafjarðarbæjar fyrir næsta skólaárfer fram í skólunum dagana 10.-14. maí nk. Innrita skal: -Börnsemeigaaðhefjanámí l.bekk (fædd 1993).. - Nemendur sem vegna aðsetursskipta koma til með að eiga skólasókn í Isa- fjarðarbæ haustið 1999. Flutningur milli skóla. Eiginemenduraðflytjastámilliskóla i nnan ísafjarðarbæjar ber að ti I ky nna það viðkomandi skólum fyrir 14. maí. Athugiðað mjög áríðandi er að allar nýskráningarásamttilkynningumog óskum um flutning milli skóla þurfa að berast fyrir ofangreind tímamörk þar sem undirbúningur næsta skólaárs erhafinn. INánari upplýsingar veitir skóla- og menningarfulltrúi í síma 456 7665 millikl. 10-12 dagana 10.-14. maí. Atvinna Starfskraftur óskast til starfa í verslunirmi Metró í sumar. Um er að ræða heilsdags starf frá 1. júní til 1. september. Umsækjandi þarfað hafa þjónustulund og góða framkomu. Æskilegt er að umsækjandi sé ekki yngri en 18 ára. Upþlýsingar í verslun í síma 456 4644. Bolungarvík Alþingiskosningar 1999 Kjörfundur vegna alþingiskosninga, þann 8. maí 1999, verður haldinn í fundarsal Ráðhúss Bolungarvíkur að Aðalstræti 12. Kjörfundurhefstkl. 10:00 árdegis ogstend- ur til kl. 22:00 síðdegis. Kjörstjórn í Bolungarvík, Elías Jónatansson, Elías H. Guðmundsson, Sólrún Geirsdóttir. ÍSAFJARÐARBÆR TILKYNNING FRÁ ÍSAFJARÐARBÆ VEGNA REFAVEIÐA_________________________ ■■■■■ ísafj arðarbær hefur ráðið þá Val Richter, Fjarðarstræti 13, ísafirði og Arnfinn A. Jónsson, Öldugötu 44, Hafnarfirði, sem skotmenn til refaveiða í ísafjarðarbæ frá og með 1. maí til og með 31. júlí 1999. Um er að ræða allt svæðið að undan- skildum hinum forna Snæfjallahreppi og Grunnavíkurhreppi utan friðlands. Öllum öðrum en ráðnunr skotmönnum er óheimil refaveiði á þessum tíma samkvæmt lögum. Þó geta bændur og æðarræktendur skotið ref, sem búfénaði eðaæðarvarpi stafarbein hættaaf. Skulu viðkomandi tilkynna ráðnum skot- mönnum um slíka veiði svo fljótt sem auðið er. IEkki er tekið á móti skottum frá öðrum aðilum á þessum tíma. Bæjarstjórinn í ísajjarðarbæ.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.