Bæjarins besta


Bæjarins besta - 05.05.1999, Blaðsíða 11

Bæjarins besta - 05.05.1999, Blaðsíða 11
Byggðastefnan í reynd Ég fór á framboðsfund á sunnudagskvöldið. Þar var m.a. forsætisráðherra bæði með tölu og einnig var fund- argestum gefið tækifæri til að koma með fyrirspurnir til fsrh. og frambjóðenda Sjálfstæðis- flokksins.Tækifærið upplagt. hugsaði ég að reyna að hafa jákvæð áhrif og lauma að þessum mönnum og fá jafn- framt fram hjá þeim viðbrögð við hugmynd minni um að flytja Landhelgisgæsluna vestur. Davíð er jú búinn að vera yfirmaður Byggðastofn- unar, byggðamálaráðherra ef rnenn vilja kalla það svo, sl. átta ár og hlýtur að hafa áhuga á málefninu sem slíkur. Fyrir- spurn mín hljóðaði nokkuð á þessa leið: „Nýlega var sjósett nýtt haf- rannsóknaskip í Perú og eitt það fyrsta sem ég tók eftir á mynd af skipsskrokknum var að málaðir höfðu verið um- dæmisstafirnir RE á síðuna. Nú langar mig að vita hvernig forsætisráðherra líst á að nýtt varðskip Islendinga verði með heimahöfn á Vestfjörðum? Eða enn betur, ef að svona erfiðlega gengur að flytja rík- isstofnanir út á land, af hverju að taka þá ekki hreyfanlegustu ríkisstofnun á Islandi og flytja vestur á fírði? Hér höfum við í fyrsta lagi gjöfulustu fiski- miðin, nóg af höfnum, tvo flugvelli á tveimur veðra- svæðum, stórt flugskýli, tvö raunar í eigu ríkissjóðs tilbúin, myndarlegt húsnæði á Norð- urtanga og ekkert að vanbún- aði. Við höfum allt sem til þarf til að hýsa þessa stofnun. Þar að auki vilja Reykvíkingar ólmir losna við flugumferð á Reykjavíkurflugvelli. Hvern- ig líst þér á þetta?” Skemmst er frá því að segja að forsætisráðherra leist ekki á hugmyndina. Hann byrjaði á að hissa sig á Hæstarétti á að hafa dæmt stjórnina fyrir að flytja Landmælingar og taldi frekari flutning ríkis- stofnana út á land vera útilok- aðan. Einnig að skip eins og nýja hafrannsóknarskipið og varðskip ættu að sjálfsögðu heimahöfn þar sem aðalað- setur viðkomandi stofnunar væri. Er eitthvað að hjá forsætis- ráðherra? - Hér er verið að benda á að ein lausn byggða- vandans er að flytja opinber störf út á land og ef Davíð getur ekki siglt skipum Land- helgisgæslu eða Hafrann- sóknastofnunar út á land, hvers er hann þá megnugur? - Er ekki bara dagljóst öllum Vestfirðingum að oddamaður sjálfstæðismanna er Reykvík- ingur í húð og hár og hefur Björn Davíðsson kerfisstjóri hjá Snerpu ehf., skrifar nákvæmlega engan áhuga á lausnum okkar Vestfirðinga, vegna þess að ekkert má hreyfa af opinberum störfum frá Reykjavík? Þetta er sú stefna sem flokkurinn í heild hefur staðið fyrir. Er það þetta sem við Vestfirðingar viljum kjósa yfir okkur? Er þetta byggðamálaráð- herraefni Vestfirðinga á næsta kjörtímabili? Munið orð for- sætisráðherra. Kjörkassinn er þannig í laginu að þegar þú ert búinn að láta ofan í hann atkvæðið, er alveg djöfullegt að ná því upp aftur. Ef þú hefur hugsað þér að kjósa Sjálfstæðisflokkinn í komandi kosningum, hugsaðu þig þá vel um. Ertu að kjósa yfir þig holdi klætt Reykjavíkurvaldið sem byggðamálaráðherra? Ég vel samfylkinguna - XS. Björn Davíðsson. Atvinna Óskum að ráða nú þegar mann vanan flökunarvélum. Upplýsingar í síma 450 4606. Hraðfrystihúsið hf. Hnífsdal. mmn-wsimi Framtíð nýrrar sókn- ar með Frjálslyndum Niðurstöður fyrstu skoð- anakönnunar liggja nú fyrir. Tölurnar segja sína sögu. En þetta er bara fyrsti þáttur, bar- áttan er rétt að byrja. Þetta segir okkur að við þurfum að bíta í skjaldarendurnar og taka á öllu því sem við eigum, til að ná betur til fólks. En það er gaman að glímunni. Samstarf okkar frambjóðendanna er gott. Við erum í góðum gír og skemmtum okkur bara vel. Við trúum ekki niðurstöð- unum því það er allt önnur tilfinning sem við höfum í okkar viðtölum við fólkið í kringum okkur. Enda vorunt við rétt byrjuð að starfa þegar könnunin var gerð, ekki einu sinni búin að gefa út blaðið okkar. Til þess er stríðið að heyja það. Ég hef sagt það áður, fólk á ekki að láta neinn segja sér að atkvæði greitt öðrum flokki sé að kasta því á glæ. Það gera menn eingöngu með því að sitja heima á kjördag. Slík- urmálflutningurflokkastund- ir pólitík, sem menn grípa til í hræðslukasti. Mérfinnst sorg- iegt að vita til þess ef Lilja blessunin Rafney telur þessa leið vænlegasta til árangurs. Þá fer nú lítið fyrir málefnun- um. I útvarpinu í viðtölum við forystumenn flokkanna sendu þeir allir Frjálslynda flokkn- um kaldar kveðjur. Hvers vegna? Það er vegna þess að þeir eru hræddir við Frjáls- lynda, telja þá ógna sér. Enda er það von, við erum rétt að byrja baráttuna. En þess ber að geta að við höfum ekki aðgang að digrum sjóðum. Þess vegna höfum við ekki efni á flenniauglýsingum í blöðum og útvarpi og verðum að reyna að ná til fjöldans með persónulegum hætti. Ég trúi því ekki fyrr en ég tek á því að fólk sjái ekki í gegnum skrum Framsóknarflokksins um milljarð í vímuefnavarnir og breytingar á kvótakerfinu, sem frambjóðendur geta ekki útskýrt nánar. Eða þunglama- legt drottnunaryfirbragð Sjálf- stæðisflokksins, þar sem gælt er við sátt um kvótakerfi en sem þeir þora ekki að ræða nánar. Sumt af því sem Sam- fylkingin segirerhægt aðtaka undir en breytingar á kvóta- kerfinu í þeirra útfærslu eru of seinvirkar að okkar mati. Við munum því halda áfram á okkar braut, bjartsýn á fram- tíðina og bjartsýn á betra gengi í úrslitum kosninganna. Stjórnmál Ásthildur Cesil Þórðardóttir, fjóröi maður á lista Frjáls- lynda flokksins skrifar Við ætlum að halda áfram að vinna saman af heilindum og útskýra okkar málstað enn- þá betur. Og ég er viss um að þrumuraust Adda Kitta Gauj mun drynja í sölum Alþingis svo undir tekur í vestfirskum fjöllum: Kvótabraskið burt! Við viljum fá að fiska í okkar eigin sjó. Rollu- og mjólkur- kvótann út í hafsauga. Látum þar markaðinn ráða. Við þurfum tækifæri til að geta unt frjálst höfuð strokið. Það er einfaldlega ekki rétt að ef menn leiðréttakvótabraskið sé allt í voða. Það er hægt að snúa ofan af þessu kerfi á margan hátt en ef þessir tveir flokkar, Framsóknarflokkur- inn og Sjálfstæðisflokkurinn, fá það fylgi sem þeim er gefið í skoðanakönnuninni er það þeim sönnun þess að engu þarf að breyta. Erum við sátt við það? Er- um við tilbúin til að viður- kenna að svona skuli þetta vera? Ekki ég. Ég vil breyta og einhversstaðar þurfum við að byrja. Þess vegna sendum við skýr skilaboð til stjórnarflokk- anna með ósk um breytingar með því að krossa við þann eina flokk sem hefur skorið upp herör gegn núverandi kvótaútfærslu. Með því send- um við þeim þau boð að við viljum að þeir breyti kerfinu til hagsbóta fyrir okkur öll, til hagsbóta fyrir hinar dreifðu byggðir landsins. Og það er einfaldlega ekki rétt að það rústi dreifbýiinu eða setji allt á hausinn. Þess vegna segi ég enn og aftur: Sameinaðir stöndum vér, sundraðir föllum vér. Með baráttukveðjum. Asthildur Cesil Þórðardóttir. Kjörfundur f ísafjarðarbæ Kjörfundur vegna alþingiskosninga fer fram laugardaginn 8. maí 1999. Kjörfundur hefst í öllum kjördeildum kl. 10:00 oglýkurkl. 22:00. Kosið verðuríísafjarðarbæ ísjö kjördeildum á eftirtöldum stöðum: ísafjörður: (1.-4. kjördeild) Kosið verður í Grunnskólanum á ísafirði og íBarnaskólanum ÍHnífsdal. íGrunnskólanum á ísafirði verða þrjár kjördeildir fyrir þá sem kosningarétt hafa á ísafirði og búa utan Hnífsdals. íBarnaskólanum ÍHnifsdalverður ein kjördeild fyrir þá sem kosningarétt hafa og búa í Hnífsdai. Suðureyri: ( 5. kjördeild) Kosið verðurí Félagsheimilinu á Suðureyri. Þessi kjördeild er fyrir þá er búa á því svæði er áður afmarkaðist af Suðureyrarhreppi. Flateyri: ( 6. kjördeild) Kosið verður í Grunnskólanum á Flateyri. Þessi kjördeild er fyrir þá er búa á því svæði er áður afmarkaðist af Flateyrarhreppi og Mosvallahreppi. Þingeyri: ( 7. kjördeild) Kosið verður í Félagsheimilinu á Þingeyri. Þessi kjördeild er fyrir þá er búa á því svæði er áður afmarkaðist af Mýrahreppi og Þing- eyrarhreppi. Yfirkjörstjórn vekur athygli kjósenda á ákvæði 81. gr. laga nr. 80/1987 sbr. 27. gr. laga nr. 10/1991, en þar segir: ,,Er kjósandi kemur inn í kjörfundar- stofuna gerir hann kjörstjórn grein fyrir sér með því að framvísa nafnskírteini eða á annan fullnægjandi hátt. Ef hann þannig á rétt á að greiða atkvæði sam- kvæmt kjörskránni afhendir oddviti hon- um einn kjörseðil.“ Yfirkjörstjórn ísafjarðarbæjarhefurá kjördag aðsetur í félagsmiðstöð Grunnskóians á ísa- firði, sími 456 3808. Yfirkjörstjórn ísafjarðarbæjar Björn Jóhannesson, Fylkir Ágústsson, Smári Haraldsson. AUGLÝSINGAR OG ÁSKRIFT SÍMI 456 4560 Amar G. Hinriksson hdl. Silfurtorgi 1 • ísafirði • Sími: 456 4144 • Fax: 456 4243 F asteigna viðskipti Hef til sölu fasteignir víöa á Vestfjörðum Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu MIÐVIKUDAGUR 5. MAI 1999 11

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.