Bæjarins besta


Bæjarins besta - 30.06.1999, Qupperneq 1

Bæjarins besta - 30.06.1999, Qupperneq 1
Bæarins besta B _■ ■■■ jnno nn i■ ■ jn * Miövikudagur 30. júní 199! 3 • 2B. tbl . • 16. árg. Stofna014. növember 1SB4 • Sími 4SB 45BB • Fax 456 45B4 • Netfang: bb@snerpa.is • Verð kr. 2BB m/vsk Tvö hundruð fermetra stórt Islandskort var myndað í sandinn við Holt í Onundar- firði á laugardag og inn á það settir krossar, 751 tals- ins, sem táknuðu þá sem lát- ist hafa í umferðarslysum á landinu frá árinu 1966. Það var Jálius Olafsson, umferð- aröryggisfulltrúi Vestfjarða sem átti hugmyndina að kortinu. Af þeim 751 sem látist hafa í umferðarslysum á tímabilinu, notuðu 263 ekki bílbelti. Til að undir- strika það voru krossar þeirra í öðrum lit og einnig var bílbelti „strengt" yfir Islandskortið. A meðfylgj- andi mynd sem Egill Egils- son, Ijósmyndari á Flateyri tók, sjást unglingarnir inni í Islandskortinu að verki loknu. Öflugt sjávarútvegsfyrirtæki verður tii á Vestfjöröum H raðfrystihúsið, Gunnvör og Ishúsfélagið sameinast - öllu starfsfólki íshúsfélags ísfírðinga sagt upp störfum. Fiskvinnslu verður hætt í húsnæði íshúsfélagsins. íslandsbanki eignast 40% hlut í hinu sameinaða fyrirtæki Stjórnir Hraðfrystihússins hf., Gunnvarar hf. og Ishúsfé- lags Isftrðingahf., semerdótt- urfélag Gunnvarar hf., hafa skrifað undir viljayfirlýsingu um sameiningu félaganna. Markmiðið með samein- ingunni er að skapa öflugt og arðsamt sjávarútvegsfyrirtæki á Vestfjörðum sem verði eft- irsóknarverður fjárfestingar- kostur. Stefnt verður að því að ljúka samruna félaganna fyrir 1. september nk. og að félagið fari á aðallista Verð- bréfaþings Islands fyrir ára- mót. Um nokkurt skeið hefur verið unnið að sameiningu fé- laganna í eitt fyrirtæki sem verður með öflugri sjávarút- vegsfyrirtækjum landsins. Kvótastaða hins sameinaða fyrirtækis verður 13-14 þús- und þorskígildistonn. Islandsbanki - Fyrirtæki og Markaður, er þátttakandi í sameiningu félaganna og keypti hann á mánudag 18,5% hlut í Hraðfrystihúsinu hf. og 67% hlut í Gunnvöru hf. Aðrir hluthafar í Gunnvöru eru Kristján Jóhannsson og faðir hans Jóhann Júlíusson. Með kaupunum fær ís- landsbanki - F&M, tæplega 40% eignarhlut í hinu sam- einaða félagi. Bankinn hefur þegar selt af þessum bréfum er nemur 20% eignarhlut. Kaupendur að þeim hluta cru að jöfnu Þormóður rammi- Sæberg hf. og Ránarborg ehf., sem er félag í eigu Þorsteins Vilhelmssonar. Til hagræðingar verðurbol- fiskvinnsla sameinuð á einn stað í húsi Hraðfrystihússins hf. og starfsfólki þar fjölgað. Fiskvinnslu verður því hætt í húsi Ishúsfélagsins og verður starfsfólki þess sagt formlega upp störfum um mánaðamót- in. I beinu framhaldi verður hluta þess starfsfólks boðin störf hjá Hraðfrystihúsinu hf. á næstu vikum. Til að greiða fyrir þeim ráðningum mun Hraðfrystihúsið hf. fækka lausráðnu starfsfólki og þeint sem hafa aðeins starfssamn- inga fram á haustið. Þá er ætlunin að endur- skipuleggja reksturinn og selja eignir sem ekki nýtast félaginu. Sameiginleg velta fyrirtækjanna þriggja var um 3,4 milljarðarásíðastliðnu ári. NÓEKÞA9 SVAKT... K0LSVA9T! ÞAV S€M MAVUR ven em eerun vmv VANVKNV. HAMRABORG Simi: 456 3166

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.