Bæjarins besta - 30.06.1999, Blaðsíða 2
Útgefandi: Ábyrgðarmenn:
H-prent ehf. Sigurjón J. Sigurðsson
Sólgötu 9, 400 ísaflörður Halldór Sveinbjörnsson
■b 456 4560 Ritstjóri:
O 456 4564 Sigurjón J. Sigurðsson
Hetfang prentsmiðju: Blaðamaður:
hprent@snerpa.is Hlynur Þór Magnússon
Stafræn útgáfa: Netfang ritstjómar:
http ://ww. snerpa. is/bh hh@snerpa.is
Bæjarlns besta er í samtökum bæjar- og héraðs-
fréttablaða. Eftirprentun, hljóðritnn, notkun ljósmynda
og annars efnls er óheimil nema helmllda sé getlð.
Ekki benda á mig!
Sjaldan er ein báran stök. Starfsfólk „Rauða hersins”
hefur ekki fengið laun sín greidd svo vikum skiptir.
Það virðist ekki nóg. Fókið, sem það eitt hefur til saka
unnið að missa atvinnuna og fá ekki laun sín greidd,
er orðið bitbein félagsmálaráðuney tisins og ráðamanna
í héraði.
Þessi kaldranalegi veruleiki liggur á borðinu. Og
það þótt beggja megin þess keppist fylkingarnar við
að gefa viljayfirlýsingar að um gera þurfi allt sem
hægt er fyrir þolendur í málinu, innlenda sem erlenda.
Af fréttum má þó ráða að verkalýðshreyfíngin brást
vel og drengilega við með því að greiða götu fólksins
tjárhagslega í einhverjum mæli. Það liðsinni getur þó
aldrei orðið annað en aðstoð á neyðarstundu. Það er
annarra að leysa málið til frambúðar.
Fólk, sem á ekki til hnífs eða skeiðar, nærist ekki á
pexi um hverjum beri lagaleg skylda til að aðstoða
það; að þetta og hitt hefði verið gert ef aðrir ættu hlut
að máli; að þessi eða hinn hafi ekki kynnt sér málin og
viti ekki hvað hann er að segja. Nei, þetta fólk þarf á
allt öðru að halda en innihaldslausu karpi um keisarans
skegg. Og þetta blessað fólk skiptir heldur engu hvort
einhver telur sig þekkja þennan eða hinn rétt og þar
með sé björninn unninn!
Fyrirtækin, sem ganga undir nafninu „Rauði herinn”
hafa fengið greiðslustöðvun til 3ja vikna. Vandséð er
að sá tími breyti einhverju um stöðu þeirra. Líklegra
er að niðurstaðan verði hin sama að þeim tíma liðnum
og nú blasir við. Á meðan sitja félagsmálaráðuneytið
og vinnumálastofnun föst í flækjum laga, sem virðast
til annars ætluð en gagnast atvinnulausu fólki. Hand-
járnaður í bak og fyrir beinir félagsmálaráðherra síð-
an spjótum sínum að Vestfirðingum, sem hann segir
hafa haldið þessu umrædda fólki í spennitreyju í
fyrirtækjum, sem hvorki lifa né deyja, þannig að hann
kemst hvergi að með alla aðstoðina sína!
Og meðan sandurinn rennur úr 3ja vikna stunda-
glasinu leggja bæjaryfirvöld ofuráherslu á, að á Þing-
eyri verði unninn fiskur áfram og sjá það eitt sem
grundvöll þess að hjól atvinnulífsins fari að snúast af
fullum krafti að nýju. Þessum sömu yfirvöldum eru
þó allar bjargir bannaðar með að ræða við nýja aðila
um aðkomu að málinu. Ekki er heldur ljóst hvaðan
allur þessi fiskur á að korna.
Þrjár vikur eru skammur tími í orlofi á sólarströnd.
Þrjár vikur eru langur tími fyrir fólkið á Þingeyri, sem
með hendur í skauti bíður þess eins að örlög þess verði
ráðin. _ s h
ODÐ VIKUNNAD
Morgunsár
Þekktasta ljóðabók Jónasar Svafár heitir „Það blæðir
úr morgunsárinu“. Þetta er orðaleikur hjá Jónasi, enda er
kemur ekkert sár við sögu þegar talað er um t.d. að leggja
af stað í morgunsárið.
Síðari hluti orðsins er ár í merkingunni snemma, sbr.
árla, árdegis, árrisull, árbítur (morgunverður) eða árgali
(fugl sem galar snemraa, þ.e. hani). Morguns-ár merkir
einfaldlega snemma morguns.
ÍSAFJARÐARBÆR
ÍBÚAR Á SUÐUREYRI
Bað- og búningsklefar við sundlaugina
verða formlega teknir í notkun með
stuttri athöfn föstudaginn 2. júlí nk.
kl. 16:30.
Að lokinni þeirri athöfn verða Vest-
fjarðavíkingarmeðsýninguílauginni.
IEftir það verður frítt í sund til kl. 21.
Bæjarstjóri ísafjarðarbœjar.
Staöbundnar upplýsingar
inn á hvert heimili
SkjáVarp hefur
útsendingar á
ísafirði á UHF29
Minnismerki
Sigvalda
Ka/dalóns
Herþyrlan
sneri við
Chinook-þyrla bandaríska
hersins lagði síðdegis á mánu-
dag af stað frá Reykjavík
áleiðis vestur í Kaldalón við
Isafjarðardjúp með minnis-
merki um Sigvalda Kaldalóns
tónskáld.
Vegna bilunar varð ferðin
ekki lengri en upp í Melasveit.
Þar var minnismerkið skilið
eftir en þyrlan sneri til baka.
Til stóð að halda flutningnum
áfram í gær en fyrir hádegi
var tilkynnt að Bandaríkja-
mennirnir, sem voru hér á
landi við heræfingar, væru að
pakka saman og halda heim.
Minnisvarðinn yrði því fluttur
vestur með öðrum hætti.
Minnisvarði Sigvalda er
öllu þyngri en tónlist hans.
Um að ræða tæplega sjö tonna
bjarg, tilhöggvið af Páli
myndhöggvara á Húsafelli.
Sigvaldi Stefánsson Kalda-
lóns (1881-1946) var héraðs-
læknir í Nauteyrarlæknishér-
aði frá 1910 til 1922. Hann
bjó í Ármúla innanvert við
Kaldalón og tók þá að kenna
sig við þann stað, sem var
honum mjög kær og upp-
spretta margra af bestu söng-
lögum hans.
Minnisvarðanum er ætlaður
staður á Seleyri við Kaldalón
en þar staldraði Sigvaldi oft
við á gönguferðum sínum að
sækja sér innblástur í Lóninu.
Vegagerðin hefur útbúið sæti
fyrir minnismerkið og bfla-
stæði skammt frá.
Á föstudag hefst uppsetn-
ing á útsendingarbúnaði
fyrir SkjáVarp á Isafirði.
Sendir SkjáVarps verður
staðsettur á Arnarnesi og
verður útsendingartíðnin
UHF 29.
SkjáVarpið er staðbundinn
upplýsingamiðill, sjónvarps-
rás, sem dreift er í gegnum
venjulegt sjónvarpstæki inn
á heimili, fyrirtæki og opin-
bera staði. í frétt frá að-
standendum SkjáVarpsins
segir að „ staðbundið, þýði
að SkjáVarpið verði sniðið
sérstaklega að hverju byggð-
arlagi fyrir sig og að það
muni miðla upplýsingum
sem taldar eru eiga erindi
til íbúanna og annarra sem
þar dvelja.
Hægt verður að fylgjast
með SkjáVarpi á öllum
heimilum á fsafírði, auk
þess sem settir verða upp
SkjáVarps skjáir í fyrirtækj-
um og stofnunum víðsvegar
um bæinn. ísafjörður er
fjórði staðurinn sem
SkjáVarp hefur starfsemi
sfna á, en áformað er að
hefja starfsemi á 25 stöðum
á landinu fyrir haustið.
Bakki hf.
Þorbjörn
selur 40%
eignarhlut
Þorbjörn hf. í Grindavík
seldi á mánudag 39,76%
eignarhlut sinn í Bakka hf.
í Bolungarvík. Kaupand-
inn var Nasco ehf„ sem
átti fyrir 60,24% hlutafjár
í Bakka hf. Nasco ehf., er
því orðið eigandi alls hluta-
fjár í Bakka hf.
I fréttatilkynningu frá
Bakka hf. (sem fyrirtækið
sá reyndar ekki ástæðu til
að senda þessu blaði) kem-
ur fram að unnið sé að
stækkun rækjuverksmiðju
fyrirtækisins úr þremur
vélum í sex, og er gert ráð
fyrir að í ágúst nk. verði
mánaðarleg afköst verk-
smiðjunnar orðin 220 tonn.
Gert er ráð fyrir að hag-
kvæmni verksmiðjunnar
muni aukast verulega við
þessar breytingar.
ísafjörður
Börn í
sjálfheldu
Þrjú lítil börn sem voru í
fjallgöngu í Kubbanum of-
an við Holtahverfið á fsa-
firði í fyrradag lentu í sjálf-
heldu uppi í klettum og
komust hvergi.
Lögreglan leitaði til
björgunarsveitarmanna á
fsafirði og fóru reyndirklif-
urmenn í Kubbann og náðu
börnunum. Þeim varð þetta
ævintýri ekki að meini.
Rauði herinn fékk greiðsiustöðvun
Pattstaða í ófyrirsjáanlegan tíma
Greiðslustöðvun sú sem
fyrirtæki Rauða hersins svo-
nefnda á Vestfjörðum fengu í
síðustu viku er að líkindum
versti kosturinn fyrir flesta
starfsmenn þeirra, sem hafa
ekki fengið greidd laun hátt á
annan mánuð. Á meðan eru
þeir í pattstöðu og fá hvorki
laun né atvinnuley sisbætur og
auk þess er framtíðin í full-
kominni óvissu. Greiðslu-
stöðvunin var veitl í þrjár vik-
ur eða til 13. júlí en síðan er
vissulega mögulegt að hún
verði framlengd um lengri eða
skemmri tíma.
Agnar Ebenesersson,
stjórnarformaður og annar af
stærstu hluthöfum íRauðsíðu,
sagði sig úr stjórninni í síð-
ustu viku vegna þeirrar
ákvörðunar meirihluta stjórn-
ar, þeirra Ketils Helgasonar
og Eyþórs Haraldssonar, að
óska eftir greiðslustöðvun. I
stað Agnars var Guðmundur
Franklín verðbréfamiðlari í
New York kjörinn í stjórnina
en Eyþór Haraldsson tók við
stjórnarformennsku.
Úrskurðurinn var kveðinn
upp sl. fimmtudag, sama dag
og fram átti að fara endanlegt
uppboð á húseign Rauðham-
ars á Tálknafirði. Hann hefur
það í för með sér, að ekkert
verður af uppboðinu á meðan
greiðslustöðvun stendur.
Lögmenn hafa verið ráðnir
til að leita leiða til þess að
koma fyrirtækjum Rauða
hersins í gang á ný. Á meðan
telur félagsmálaráðuneytið
sig ekki geta gert neitt í mál-
efnum starfsfólksins, sem er
að miklum hluta Pólverjar,
heldur vísar í staðinn á sveitar-
félögin. Atvinnuleyfi Pólverj-
anna hér á landi er aftur á
móti gefið út af ráðuneytinu.
Sjóður tii minningar um Margréti Leósdóttur
Stofnaður á 85 ára afmælinu
Stofnaður hefur verið
sjóður til minningar um
Margréti Leósdóttur, Hafn-
arstræti 7 á Isafirði, en hún
andaðist 11. ágúst á síðasta
ári. Tilgangur sjóðsins er
að stuðla að endurmenntun
starfandi hjúkrunarfræð-
inga og sjúkraliða við
Fjórðungssjúkrahúsið á
ísafirði. Þeim tilgangi skal
m.a. náð með beinum styrkj-
um til endurmenntunar,
námskeiðahaldi og kaupum
á fræðsluefni og tækjum.
Sjóðurinn var stofnaður
við hátíðlega athöfn á FSÍ á
þriðjudaginn í síðustu viku,
þann 22. júní, en þá hefði
Margrét heitin orðið 85 ára.
Stofnandi sjóðsins er
eftirlifandi eiginmaður
Margrétar, Jóhann Júlíus-
son, og leggur hann fram kr.
500.000 sem stofnfé. Tekjur
sjóðsins til framtíðar verða
gjafafé, frjáls framlög, and-
virði minningarspjalda,
vaxtatekjur og aðrar tekjur
sem stjórn sjóðsins aflar.
Stjórn Minningarsjóðs
Margrétar Leósdóttur skulu
skipa þrír menn, einn
tilnetndur af ættingjum Mar-
grétar Leósdóttur og tveir
tilnefndir af stjórn Heil-
brigðisstofnunar ísafjarðar-
bæjar. Skal annar þeirra vera
starfandi læknir við Fjórð-
ungssjúkrahúsið á ísafirði
og hinn starfandi hjúkrunar-
fræðingur eða sjúkraliði við
sjúkrahúsið.
2
MIÐVIKUDAGUR 30. JUNI 1999