Bæjarins besta - 30.06.1999, Blaðsíða 9
Fjölmargir gestir voru í vígsluhófinu. Hér má m.a. sjá Birnu Lárusdóttur, bœjarfulltrúa, Þórunni Guðmundsdóttur, eiginkonu Tryggva Guðmundssonar formanns GoIJklúbbs ísa-
fjarðar og Olaf Gunnarsson lœkni.
Tryggvi Guðmundsson fœrir Gylfa Guðmundssyni, framkvœmdastjóra klúbbsins þakk-
lœtisvott fyrir vel unnin störf. A myndinni er einnig Pétur Bjarnason, varaformaður.
Golfspilarar létu sig ekki vanta við opnunina fremur en aðrir gestir.
Við vígsluathöfnina á laugardag fékk Gunnar Pétur Ólason afhent gjafabréf frá Flug-
leiðum upp á Evrópuferð fyrir tvo fyrir að hafa farið holu í höggi á golfmóti fyrir stuttu.
Gunnar Pétur (tv)er hér ásamtformanni Golfklúbbs Isafjarðar, Tryggva Guðmundssyni.
Ólafur Helgi Kjartansson, Þórunn Guðmundsdóttir, Arnar Geir Hinriksson og Halldór
Margeirsson, útibússtjóri Islandsbanka á Isafirði voru á meðal gesta.
Nýi golfskálinn í
Tunguda/ vfgöur
Stærstu bá
skil í sögu
Vígsluhátíð eins glæsi-
legasta golfskála landsins
var haldin í Tungudai í
Skutulsfirði á laugardag.
Og skálinn er ekki aðeins
glæsilegur, heldur veldur
tilkoma hans gjörbyltingu
í þeirri þjónustu sem Golf-
klúbbur ísafjarðar getur
veitt. Hér er vissulega um
að ræða stærstu þáttaskil í
tuttugu og eins árs sögu
hans.
Hátíðin var ákaflega
skemmtileg og vel heppn-
uð og voru milli 90 og 100
manns í samkvæminu.
Forntaður Golfklúbbs Isa-
fjarðar, Tryggvi Guð-
mundsson lögfræðingur,
ávarpaði gesti og fór
lauslega yfir byggingar-
söguna en fyrir hönd fsa-
fjarðarbæjar Ilutti Birna
Lárusdóttir klúbbnum
heillaóskir.
Skálinn er á tveimur
hæðum og grunnflötur um
130 m2 fyrir utan verönd
sem er um 100 m2. Neðri
hæðin er steinsteypt og var
lokið við að steypa hana upp
nálægt síðustu áramótum.
Efri hæðin er aftur á móti
einbýlishúsið sem áður var
að Fitjateigi 6 í Hnífsdal,
eilt af uppkaupahúsunum
svonefndu. Það var flutt í
heilu lagi á sinn stað í
byrjun ársins og sett ofan á
neðri hæðina.
Nýi skálinn leysir af
hólmi bláa skúrinn sem
keyptur var af Hafnarnefnd
ísafjarðar árið 1985 og var
áður viktarskúr. Nú getur
Golfklúbbur ísafjarðar boðið
félagsmönnum sínum og
gestum upp á glæsilega og
rúmgóða veitingaaðstöðu og
Stjórn Golfklúbbs Isafjarðar hafði ústœðu til að brosa á laugardaginn er nýr golfskáli klúbbsins var formlega tekinn í
notkun. F.v. Kristín Karlsdóttir, sem á sœti í varastjórn, Kristinn Kristjánsson, meðstjórnandi, Tryggvi Guðmundsson,
formaður, Birgir Valdimarsson, meðstjórnandi, Finnur Magnússon, meðstjórnandi, Guðríður Sigurðardóttir, ritari,
Sigurjón Guðmundsson, gjaldkeri, Gylfi Guðmundsson, framkvœmdastjóri en liann á einnig sœti í varastjórn og Pétur
Bjarnason, varaformaður.
geymslur fyrir áhöld og
tæki, auk margs annars sem
ekki var fyrir hendi í gamla
skálanum.
Um kvöldið var síðan
haldið hið hefðbundna
Jónsmessumót, sem er
raunar nokkuð óhefðbundið
í framkvæmd þó að það sé
hefðbundið. Ekki er venja
að greina frá höggafjölda á
Jónsmessumótum GI.
MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ 1999 9