Bæjarins besta - 30.06.1999, Síða 12
GOLFVÖRUR
í ÚRVALIf
MUNI0 PLASTTAKKANA!
VAstwCfoport
AÐALSTRÆTI 27 j/ SÍMI 456 3602
ísafjörður
Sumarkvöld-
in hafín á ný
Fyrsta sumarkvöldið í
Neðstakaupstað í ár verður
haldið annað kvöld í Tjöru-
húsinu og hefst kl. 20:30. Á
kvöldunum sem haldin
verða alla fimmtudaga í júlí
verður bryddað upp á ýms-
um nýjungum, tónlist, þjóð-
legum fróðleik og skemmti-
legri afþreyingu í tali og
tónum.
Á fyrsta sumarkvöldinu
munu Hrafnhildur Hagalín
Guðmundsdóttir og Pétur
Jónasson halda gítartón-
Ieika. Kvöldin eru jafnt
ætluð heimamönnum og
ferðamönnum, íslenskum
sem erlendum. Nánari
upplýsingar um kvöldin eru
veittar hjá Vesturferðum.
Flateyri
r
Utsýnispallur
ofan byggðar
Fyrirtækið Afrek ehf. á
Flateyri annast í sumar gerð
útsýnispalls á varnargörð-
unum ofan Flateyrar og
stígagerð að honum. Verkið
var boðið út og barst aðeins
eitt tilboð. Kostnaðaráætlun
hönnuðar var kr. 2.951.800
en tilboð Afreks ehf. var kr.
2.995.000 eða aðeins um
1% yfir áætluninni.
Hlutdeild bæjarsjóðs Isa-
fjarðarbæjar í þessari fram-
kvæmd er 10% eða rétt um
kr. 300.000.
ísafjörður
Sturla Böðvarsson samgönguráðherra heimsótti í síðustu viku sunia af merkustu viðkomustöðum ferðamanna á
norðanverðum Vestfjörðum. Hann kom fœrandi hendi í hinn bráðum aldargamla Skráð í Dýrafirði,og naut leiðsagn-
ar Geirs Guðmundssonar í Osvörinni í Bolungarvík. A myndinni er ráðherrann ásamt Geir og öðrum úr hópi inn-
fœddra Bolvíkinga, Einari K. Guðfinnssyni alþingismanni.
Karl Ásgeirsson, einn eigenda SKG-veitinga á ísafirði var á meðal fyrstu viðskiptavina bankans sem prófuðu Itið nýja af-
greiðslukerfi. I gjaldkerastúkunni er Inga María Guðmundsdóttir.
Básafell hf.
selur eignir
Afgreiðsluhraðinn í Landsbankanum eykst um 30%
Rafræn og pappírslaus viðskipti
Stjórn Básafells hf. ákvað
á fundi á mánudag að selja
verulegar eignir til að
minnka skuldir félagsins og
styrkja þannig stöðu þess.
Stjórnarformanni og fram-
kvæmdastjóra fyrirtækisins
var falið að vinna að því á
næstu mánuðum að selja
skip, varanlegar veiðiheim-
ildir og fasteignir fyrir að
minnsta kosti 1,5 milljarða
króna.
„Þetta er allt orðið rafrænt,
úttektir og innlegg og milli-
færslur, og ekki þarf að útfylla
nein eyðublöð lengur. Við-
skiptavinurinn kvittar fyrir af-
greiðslunni á rafrænni plötu
og fær síðan útprentaða kvitt-
un, svipað og í verslunum.
Þar koma fram i nn- og útfærsl-
ur og allt sundurliðað sem gert
er“, segir Hafsteinn Sigurðs-
son, aðstoðarútibússtjóri
Landsbanka Islands á Isafirði
um nýtt afgreiðslukerfi sem
þar var tekið í notkun á mánu-
daginn. Nú er úr sögunni að
fyrst þurfi að taka eyðublað,
útfylla það og fara síðan með
það til gjaldkera, heldur er
farið beint til gjaldkerans.
„I byrjun sparar þetta fyrst
og fremst pappír, auk þess að
gera viðskiptin öll öruggari,
en þegar starfsfólkið er orðið
þjálfað má búast við að af-
greiðsluhraðinn aukist um
30%, þannig að fljótar gengur
að afgreiða hvern og einn við-
skiptavin. Tölvukerfið hjá
okkur hefur verið endurnýjað
og er nú allt orðið ntjög raf-
rænt og eins fullkomið og völ
er á samkvæmt nýjustu
tækni“, segir Hafsteinn.
Utibúið á ísafirði er eitt af
fyrstu útibúum Landsbankans
þar sem þessi búnaður er tek-
inn í notkun. Hann er kominn
í nokkur útibú í Reykjavík en
t.d. ekki enn áAkureyri. Stefnt
er að því að þessi tækni verði
komin í öll útibú bankans í
nóvember.
Virka daga
kl. 09 - 21
Laugardaga
kl. 10 -18
i/en'Á
v&é’/omin/
AUSTURVEGI 2 • SÍMI 456 5460
Oáýrt fltíé til
Kaupmanna-
Samvinnuferðir
Landsýn
Söluskrifstofa • Hafnarstræti 7
ísafiröi • Sími 456 5390
m
AGUST S FLOSI
ehf
BYGGINGAVERKTAKAR
Árnagata 3 • ísafirði • Sími 456 5500
ILLT PORT AF SÓLPALLAEFNI
FRÁBÆRU VERÐI!
MUNIÐ ÁHALDALEIGUNA!