Víðförli - 01.10.1998, Síða 1
VIÐFORU
FRÉTTABRÉF BISKUPSSTOFU 6. ÁRG. I.TBL. OKTÓBER 1998
Útgefándi: Skálholtsútgáfan, útgáfufélag
þjóðkirkjunnar, Laugavegi 31, 101 Reykjavík
Ritstjóri og ábm.:Örn Bárður Jónsson
Umbrot, prófarkalestur: Skerpla ehf.
Prentun: Steindórsprent-Gutenberg ehf.
^SusaFnJs^
'^ÍÍ2LABÓKASj^/
Bæn fyrir kirkjunni
Eftirfarandi bæn, sem Alkirkju-
ráðið biður aðildarkirkjur sín-
ar að bera fram fyrir samtök-
unum,skulum við gera að
okkar bæn fyrir kirkjunni okk-
ar og þeim tímamótum sem
hún lifir nú og því samfélagi
sem við erum hluti af:
Guð einingar og kærleika.
Gjör það sem varir vorar
mæla að sannfæringu hjartna
vorra. Lát það verða lifandi
veruleika í lífi voru sem vér
samsinnum í huganum. Send
oss anda þinn að biðja um það
sem vér vogum ekki að biðja,
að krefjast meira af sjálfum
oss en vér eigum að venjast,
að halda oss föstum er vér
freistumst til að fara eigin leið-
ir.
Leið oss áfram, leið oss sam-
an, leið oss til að gjöra vilja
þinn, vilja Jesú Krists, vilja
Drottins vors.Vér biðjum í
nafni hans. Amen.
Kveðja
Víðförli heilsar nú enn á ný eftir nokkurt hlé og hefur tekið talsverðum breyting-
um. Það er afar mikilvægt fyrir kirkjuna að eiga sameiginlegan vettvang upplýs-
inga og frétta. Það verður honum ætlað, hinum endurreista Víðförla. Ætlunin er
að leggja megináherslu á að hann flytji fréttir af Biskupsstofu og vettvangi kirkj-
unnar heima og vil ég hvetja þá sem lesa að senda viðbrögð, fréttir og upplýsingar
sem að gagni mega koma. Víðförli verður og aðgengilegur á netinu.
Þjóðkirkjan stendur á miklum tímamótum. Hún hefur fengið nýja löggjöf að
starfa eftir. Nýkjörið kirkjuþing með aukið vald og verksvið kemur senn saman og
samningur hefur verið gerður við ríkið um fjármál þjóðkirkjunnar þar sem sjálf-
stæði hennar er staðfest. Þetta leggur kirkjunni mikinn vanda á herðar við að
skipa málum sínum og móta starfshætti. Guð gefi okkur náð til þess að hefja nýja
sókn til þjónustu sem sameinuð, sterk þjóðkirkja á Islandi, í nýrri sókn hins
kristna málstaðar, hins kristna trúarlífs, þjóðinni til heilla.
Víðförli mun flytja fréttir af Biskupsstofu. En það mikilvægasta í kirkjunni ger-
ist ekki þar. Það sem úrslitum veldur er að gerast í söfnuðunum um land allt. Fæst
að því verður nokkurn tíma fréttnæmt. Þar sem lífið grær, þar sem fólk safnast
saman um orð Guðs og borð, þar sem fólk leitast við að lifa í ljósi Jesú Krists og
kærleiksboða hans, þar sem fólk leitast við að kenna hinum ungu að elska Guð
og biðja, þar er kirkjan að starfi, sáning og uppskera á akri Guðs kristni. Guð
blessi það allt og gefi ávöxt nafni sínu til dýrðar og jarðar bömum til blessunar.
Karl Sigurbjömsson
Nýtt upphaf
Nú, þegar Víðförli birtist aftur á prenti í nýrri mynd, er rétt og skylt að upplýsa
um breytta stefnu blaðsins, en efni þess er nú skipt í fjóra meginþætti:
Undir yfirskriftinni Fréttir og fróðleikur verður miðlað fréttum úr starfi kirkj -
unnar heima og erlendis.
I þættinum Lesið, heyrt og séð verður sagt frá athyglisverðum bókum, mynd-
böndum, kvikmyndum og efni á öðrum miðlum.
í Sjónarhomi gefst þeim sem vilja vekja athygli á einhverju sem þeim liggur á
hjarta og varðar hag kirkjunnar og safnaðanna tækifæri til að leggja orð í belg.
Heilbrigð skoðanaskipti eru mikilvæg fyrir vöxt og viðgang kirkjunnar. Sýnum
gagnrýna samstöðu innan kirkjunnar með uppbyggingu að markmiði.
Loks er kaflinn Innan skamms með upplýsingum um það sem helst er á döfinni.
Prestar og starfsfólk kirkjunnar eru hvattir til þess að senda efni til Víðförla.
Netfangið er frettir@kirkjan.is en ritstjóri áskilur sér allan rétt hvað varðar val á
efni. Efni þarf að berast fyrir 20. hvers mánaðar eigi það að birtast í næsta tölu-
blaði.
Það er von mín að blaðinu verði tekið sem kærkomnum gesti er flytur góð tíð-
indi af mikilvægu starfi kirkjunnar í veröld Guðs.
Óm Bárður Jónsson