Víðförli - 01.10.1998, Qupperneq 4
VÍÐFÖRLI
OKTÓBER 1998
heimsálfum. Birtar eru upplýsingar um 8 grundvallaratriði
sem einkenna söfnuði sem vaxa og dafna. Ráðgert er að
bókin komi út á næsta ári á vegum fræðslu- og þjónustu-
deildar og safnaðaruppbyggingar. Þýðandi er Valdimar
Hreiðarsson.
Verkefnabók fyrir æskulýðsstarf
Einu sinni ungur er heiti verkefnabókar fyrir æskulýðs-
starf sem Ragnar Schram hefur þýtt og kemur út á vegum
fræðslu- og þjónustudeildar og Skálholtsútgáfunnar í byrj-
un vetrar.
Starfsmannahandbók kirkjunnar
Starfsmannahandbók kirkjunnar hefur verið í vinnslu
um nokkurt skeið á vegum fræðslu- og þjónustudeildar.
Bókin bíður lokavinnslu sem helgast af því að beðið er
eftir afgreiðslu kirkjuþings á starfsreglum. Aætlað er að
hún komi út síðar í vetur. Hróbjartur Árnason guðfræð-
ingur hefur unnið verkið og byggt að hluta til á eldra
verki Guðmundar Guðmundssonar sem hann vann fyrir
kirkjuráð.
Heimsókn í Miðstöð fólks í atvinnuleit
Miðstöðin flutti í sumar í nýtt húsnæði að Ægisgötu
7. Toshiki Toma, prestur innflytjenda, og Ragnheiður
Sverrisdóttir djákni, bæði á fræðslu- og þjónustudeild,
heimsóttu miðstöðina í byrjun september. Það kom á
óvart að frétta að atvinnuleysi meðal kvenna er 4,4%
og 1,8% meðal karla. Það er augljóst að enn er þörf
fyrir þessa miðstöð. í vetur verður boðið upp á nám-
skeið sem kallast starfsleitarnámskeið. Atvinnulausu
fólki er boðið upp á námskeið sem er ígildi vinnu og er
fólkið á fullum bótum á meðan. Þá getur fólk komið
og notað tölvu og síma í atvinnuleit sinni. Einnig er
þarna verkstæði og ýmis önnur aðstaða sem hægt er
að nýta sér og gefa lífinu innhald á meðan á atvinnu-
leysinu stendur.
Tíu djáknanemar í starfsþjálfun
Frá 15. september til 15. nóvember eru 10 djáknanemar í
starfsþjálfun í fimm söfnuðum á Stór-Reykjavíkursvæð'
inu. Námskeið var haldið fyrir presta og djákna sem taka
á móti nemum. Fyrirlestur var um leiðsagnarhlutverkið og
farið yfir hvað djáknanefndin teldi að nemi ætti að gera á
þjálfunartímabilinu.
Kirkjusókn í Danmörku
Gallup'könnun gerð í Danmörku sýnir að skipta má Dön-
um í þrjá hópa hvað varðar afstöðu til kirkjunnar. Ríflega
þriðjungur sækir aldrei kirkju, nær helmingur þjóðarinnar
sækir kirkju í tengslum við skím, fermingu, hjónavígslu
eða útför. Þriðji hópurinn, um 10% Dana, sækir guðs-
þjónustur reglulega. Meirihluti þeirra sem svömðu spum-
ingum jákvætt (76%) eru konur.
Fáir samkynhneigðir óska
blessunar dönsku kirkjunnar
Einungis 6 pör samkynhneigðra í skráðri sambúð hafa
þegið blessun eftir að biskupar kirkjunnar gáfu leyfi til
þess fyrir um ári, án þess þó að gefa út sérstakt ritúal í því
sambandi. Nærri 250 pör em skráð árlega í sambúð og því
kemur á óvart hversu fá þeirra óska eftir blessun, sé tekið
mið af mikilli umræðu sem varð um málið innan kirkj -
unnar og á meðal almennings.
Sóknarnefndir
Námskeið fyrir sóknarnefndir verða haldin um land allt í
vetur. Rætt verður um ný lög og starfsreglur, erindisbréf
sóknamefnda og safnaðaruppbyggingu. Lögfræðiþáttinn
annast þau Ragnhildur Benediktsdóttir og Guðmundur
Þór Guðmundsson, en Sigurður Ámi Þórðarson, Þorvald-
ur Karl Helgason og Om Bárður Jónsson ræða um safnað-
aruppbyggingu. Tveir kennarar úr ofangreindum hópi
kenna hverju sinni.
Börn Abrahams, Söru og Hagar
- stríðsmenn, friðarsinnar
Dagana 2.-4- nóvember nk. verður haldið málþing á
Stiftsgarðinum í Rattvik í Svíþjóð sem fjallar um trúar'
bragðadeilur og leiðir til lausnar. Málþingið tengist verk-
efni á vegum Evrópusambandsins, A Soul for Europe. AL
kunnar em deilurnar í Jerúsalem, Sarajevo og Belfast þar
sem trúarhópar blandast í pólitískar deilur. En það em
líka til trúarhópar og leiðtogar innan ólíkra trúarbragða
sem leita lausna og vilja frið. Á málþinginu verða fyrirles-
arar úr hópi Gyðinga, múslima og kristinna: Ronnie
Cahana, rabbíni frá Toronto, Cenap Turunc, múslimi frá
Gautaborg, Sigfrid Deminger, sænskur prestur, Trevor
Williams frá Belfast, Jan Hjárpe, prófessor í íslömskum
fræðum í Lundi, Anna-Karin Hammar stiftsaðjúknt og
Jean Zaru, starfsmaður Alkirkjuráðsins frá Palestínu. Nán-
ari upplýsingar veitir Öm Bárður í s. 535-1500.
Skoðana- og trúfrelsi
Ráðstefna um skoðana- og trúfrelsi var haldin í Óslo í
ágúst sl. Þar kom fram að um 6000 manns eru teknar af
lífi á ári hverju vegna trúarskoðana og milljónir sæta of-
sóknum. Á meðal ræðumanna var Mary Robinson, fyrr'
um forseti írlands, yfirmaður mannréttindaskrifstofu Sam-
einuðu þjóðanna. (Kirkeaktuelt, nr. 4, 1998.)
Sautjándu aldar kvöldverður í Skálholti
Um nokkurt skeið hefur verið boðið uppá sautjándu aldar
kvöldverð í Skálholti og hefur tiltækið vakið athygli og