Víðförli - 01.12.1999, Síða 7
DESEMBER 1999
VÍÐFÖRLI
Námsefni handa föngum
Fræðsludeild þjóðkirkjunnar hefur gefið út í möppu náms-
efni handa föngum sem sr. Hreinn S. Hákonarson, fanga-
prestur þjóðkirkjunnar, hefur samið og tekið saman. Heiti
námsefnisins er: Opinn hringur - umhugsun, umræða og
umhyggja: Málefhi skoðuð út frá sjónarhorni kristinnar trú-
ar - og lífssýnar. Efnið skiptist í tvennt og er annars vegar
um að ræða fjörutíu samverur þar sem margvísleg málefni
eru tekin fyrir, eins og t.d. frelsi, miskunnsemi, reiði, ham-
ingja, Guð, samviska, ofbeldi o.s.frv., og hins vegar greinar
til umhugsunar þar sem fjallað er um ýmis mál er snerta
fangelsi og fangavist. Fangar geta notað námsefni þetta ým-
ist í einrúmi eða rætt það í hópi undir stjóm fræðara.
Sérstakt námsefni handa föngum hefur ekki verið gefið
út áður hér á landi og er því um nýjung að ræða. Arið 1993
kom út bænabók ætluð föngum, Hjálparorð fangans - orð
til íhugunar og bænir, og var höfundur núverandi fanga-
prestur. Þessi bænabók er löngu uppurin en endurskoðun
hennar stendur fyrir dyrum. Þá gefur fangaprestur út rnán-
aðarlegan fréttapistil sem hver fangi fær í hendur og sömu-
leiðis þeir er starfa í fangelsiskerfinu. Fréttapistillinn ber
heitið Á leiðinni og hefur hann komið út í eitt ár en um
næstu mánaðamót kemur út 1. tölublað 2. árgangs.
Leiðrétting
I síðasta hefti Víðförla urðu mistök í kaflanum um samein-
ingu prestakalla. Þar var ranglega hermt að Mælifells-
prestakall yrði sameinað Glaumbæjarprestakalli. Þetta var
ekki samþykkt. Einu prestaköllin sem verða sameinuð eru
sem hér segir: Desjarmýrarprestakall verður sameinað Eiða-
prestakalli, prestssetur Eiðar. Vatnsfjarðarprestakall er sam-
einað Staðarprestakalli, prestssetur Suðureyri.
Mistökin eru frá hendi ritstjóra Víðförla og eru allir
hlutaðeigandi beðnir velvirðingar.
Andlát
Séra Kristján Einar Þorvarðarson, sóknarprestur í Hjalla-
prestakalli í Kópavogi, andaðist á Landsspítalanum í
Reykjavík þriðjudaginn 2. nóvember sl., 41 árs að aldri.
Eftirlifandi eiginkona hans er Guðrún Lára Magnúsdóttir
og eiga þau fjögur börn á aldrinum 6-18 ára.
Kristján Einar fæddist 23. nóvember 1957. Hann lauk
embættisprófi í guðfræði frá HI 1986 og vígðist sama ár
til prestsþjónustu á Eskifirði og Reyðarfirði. Hann var
valinn prestur í nýrri sókn í Kópavogi, Hjallaprestakalli,
árið 1987 og gegndi því embætti til dauðadags. Hann
gegndi trúnaðarstörfum fyrir samtök presta og var
formaður Félags presta á höfuðborgarsvæðinu.
Víðförli vottar aðstandendum Kristjáns Einars
einlæga samúð.
ÞRETTÁNDAAKADEMÍA ÁRSINS 2000
Ambátt Drottins í aldarlok
Þrettándaakademía ársins 2000 ber yfirskriftina „Ambátt
Drottins í aldarlok - Þjónusta íslensku þjóðkirkjunnar“.
Þrettándaakademían verður haldin 5.-6. janúar 2000, en 7.
janúar gengst Rannsóknarstofnun um helgisiðafræði í
Skálholti fyrir fyrirlestrahaldi. Gestur rannsóknarstofnun-
arinnar, Gordon W. Lathrop, mun einnig halda erindi á
þrettándaakademíu. Dagskráin verður sem hér segir:
5. janúar - miðvikudagur:
15:00 Kaffi.
16:00 „Sjá, ég er ambátt Drottins“, embætti og þjónusta
að lútherskum skilningi. Sr. Kristján Valur Ingólfsson.
18:00 Vesper / Kvöldmatur.
Um kvöldið mun sr. Þorvaldur Karl Helgason fjalla um
breytingar á íslensku þjóðkirkjunni undanfarna áratugi.
22:00 Completorium.
6. janúar - fimmtudagur.
9:00 Prima.
Morgunmatur.
10:00 „Þjóðkirkjuguðfræði og þjónusta safnaðarins.“ Dr.
Pétur Pétursson.
12:00 Hádegismatur.
Eftir hádegi mun dr. Gordon W. Lathrop halda fyrirlest-
ur. Lathrop er höfundur bókarinnar „Holy People. A litur-
gical ecclesiology.“ (1993) Fyrirlestur hans er unninn út frá
efni bókarinnar.
Síðdegis munu einnig verða flutt erindi af akrinum:
„Þjónusta, tilbeiðsla, vitnisburður í strjálbýli, þéttbýli og á
stofnun.“ Sr. Sigríður Guðmarsdóttir, sr. Þórhallur Heimis-
son o.fl.
18:00 Messa á birtingarhátíð Drottins.
Kvöldverður.
Um kvöldið verða umræður og niðurstöður.
Föstudaginn 7. janúar býður Rannsóknarstofnun um
helgisiðafræði í Skálholti upp á tvo fyrirlestra með prófess-
or Gordon W. Lathrop sem verða framhald af efni þrett-
ándaakademíunnar sem og af fyrirlestri hans frá því á
fimmtudeginum.
Gordon W. Lathrop er prófessor við Lutheran Theolog-
ical Seminary í Philadelphia, höfundur margra bóka, hefur
skrifað greinar í merk uppflettirit og er þekktur fyrirlesari
víða um heim á sviði litúrgískrar guðfræði. Hann er einnig
Nýja testamentisfræðingur. Prófessor Lathrop þekkir vel
samkirkjulega umræðu síðustu áratuga og hefur tengt sam-
an kirkjufræði, litúrgísk fræði og samfélagsfræði. Lathrop
heldur annan fyrirlestur sinn á föstudagsmorgni og þann
þriðja eftir hádegið. Þrír kaflar í hinni nýju bók Lathrop’s
eru: A People - Church in Liturgical Perspective, One
People - Liturgy and Church Unity, Holy People - Litur-
gical Assemblies amid Earth’s Peoples.
Nánari upplýsingar um akademíuna má fá í Skálholts-
skóla hjá dr. Pétri Péturssyni og þar er einnig skráning.
7