Bæjarins besta - 10.11.1999, Page 3
Úrskurðarnefnd þjóðkírkjunnar:
,Staða mála í
ItsprestakaUi
óviðiinandi“
- en telur sig skorta vald til að leysa vandann
Holtskirkja í Önundarfirði.
Urskurðarnefnd þjóðkirkj-
unnar hefur skilað niðurstöðu
í máli sóknarnefndar Holts-
sóknar í Önundarfirði og
nokkurra sóknarbarna í Holts-
prestakalli gegn sóknarprest-
inum, sr. Gunnari Björnssyni,
vegna margvíslegra ætlaðra
ávirðinga í starfi. Einnig bein-
ist málið í nokkrum atriðum
að eiginkonu prestsins.
Brostið traust
I niðurstöðu úrskurðar-
nefndar og rökstuðningi segir
m.a.: „Málshefjendur í máli
þessu eru sóknarnefnd Holts-
sóknar og nokkur sóknarbörn
í Holtsprestakalli. I greinar-
gerðum þeirra hafa verið rakin
nokkur ágreiningsefni um at-
riði er snerta kirkjulegt starf.
Þar er sérstaklega tilgreindur
ágreiningur um verkaskipt-
ingu milli sóknarprests og
sóknarnefndar, greiðslur
vegna tónlistarflutnings gagn-
aðila við kirkjulegar athafnir
og hlutverk maka í sóknar-
starfí. Þá hafa málshefjendur
haldið því fram, að gagnaðili
[presturinn] hafi brotið trúnað
gagnvart sóknarbömum. —
- Við efnislega meðferð
málsins hefur komið í ljós, að
kjarni þessa máls snýst um
fleira en að framan er rakið.
Málshefjendur búa í samfé-
lagi sem varð fyrir mann-
skæðu snjóflóði haustið 1995.
Málshefjendur segjast þegar
á þeim tíma hafa misst traust
á sóknarpresti sínum. Máls-
hefjendur telja sig hvergi hafa
getað leitað sálusorgunar í
kjölfar áfallanna og fullyrða
að stór hluti íbúa þessa samfé-
lags sé sömu skoðunar. Máls-
hefjendur telja að endurteknar
óskir þeirra til þjóðkirkjunnar
um úrbætur hafi verið huns-
aðar og upplifa viðbrögð
kirkjunnar sem stuðning við
gagnaðila og skilningsleysi á
vanlíðan sóknarbarna.“
Ásakanir um aga-
eða siðferðisbrot
Varðandi ásakanir um aga-
eða siðferðisbrot segir m.a. í
niðurstöðu nefndarinnar:
„Málshefjendur fullyrða að
gagnaðili virði að takmörkuðu
leyti þá trúnaðarskyldu sem á
honum hvíli sem presti og að
hann hafi brotið trúnað við
sóknarbörn.-----Urskurðar-
nefndin telur að þar sem engar
sannanir hafi verið lagðar
fram um ætluð trúnaðarbrot
sé ekki unnt, gegn eindregn-
um mótmælum gagnaðila, að
fallast á með málshefjendum
að hann hafi brotið trúnað við
sóknarbörn. Málshefjendur
fullyrða að ágreiningsatriði er
snerta páskamessu, hlutverk
maka, meðferð gagnaðila á
gjöfum kirkna og námsleyfi
og Bandaríkjaför feli í sér aga-
brot og til vara siðferðisbrot.
Urskurðarnefndin telur þessi
ágreiningsatriði snerta ágrein-
ing á kirkjulegum vettvangi
án þess að teljast aga- eða
siðferðisbrot.“
Verkaskipting prests
og sóknarnefndar
Hvað snertir „ágreining á
kirkjulegum vettvangi“ segir
m.a. í niðurstöðum nefndar-
innar um verkaskiptingu
sóknarprests og sóknarnefnd-
ar: „I máli þessu er ágreining-
ur um verkaskiptingu milli
sóknarnefnda annars vegar og
sóknarprests hins vegar. Snýr
sá ágreiningur einkum að mót-
töku gjafa og umsjón með
kirkjum, en málshefjendur
hafa einnig nefnt ráðningu
starfsmanna sókna, þátttöku
Sr. Gunnar Björnsson.
sóknarprests í sóknarnefndar-
fundum og ákvarðanir hans
sem skuldbundið hafa sókn-
arnefndirnar fjárhagslega.
Á fundi úrskurðarnefndar
með gagnaðila 24. ágúst sl.
var gagnaðili spurður um
þessi ágreiningsefni og stað-
hæfingar málshefjenda um
þau. Gagnaðili staðfesti að
sennilega hefði hann ekki allt-
af gætt þess nægilega vel að
hafa sóknarnefndir með í ráð-
um þegar honum hefðu borist
tilkynningar um fyrirhugaðar
gjafir til kirkjunnar. Hann
kannaðist einnig við að hafa
látið falla tilgreind ummæli
við einstaklinga sem voru að
þrífa kirkjuna í Holti og hirða
kirkjugarðinn þar. Hann kann-
aðist einnig við að hafa skipt
um lás á kirkjunni í Holti. Þá
viðurkenndi gagnaðili að
hann hefði af alhugunarleysi
áritað reikning sem formaður
sóknarnefndar hefði átt að
árita. Hann staðfesti einnig
að hafa fest kaup á skáp án
þess að kanna fyrirfram hvern-
ig fjárhagsstaða sóknarinnar
var áður en hann réðst í kaup-
in. Hann viðurkenndi loks að
hafa hvorki sótt sóknarnefnd-
arfundi frá vori 1998 þar til
hann fór í leyfi né frá 1. júní
1999 eftir að leyfi lauk.“
Varðandi greiðslurfyrirtón-
listarflutning prestsins við
kirkjulegar athafnir: „...al-
mennt gildir sú vinnuregla að
starfsmaður getur ekki gert
launagreiðanda reikning fyrir
vinnu sem fellur utan daglegra
skyldustarfa nema um slíkar
greiðslur hafi verið samið
áður.“
Afskipti maka
af málefnum
prestakallsins
Um hlutverk maka prests í
safnaðarstarfi: „I máli þessu
liggur fyrir að ýmsar umkvart-
anir málshefjenda beinast
fremur að maka gagnaðila en
að gagnaðila sjálfum. Eru þar
tilgreind afskipti maka af mál-
efnum prestakallsins og sím-
töl og önnur samtöl við máls-
hefjendur.-----Maki prests
erekki starfsmaðurþjóðkirkj-
unnar. Takist maki prests á
hendur að styðja prest í starfi
verður presturinn að setja
stuðningnum skýr mörk og
gæta þess að stuðningur maka
gangi ekki svo langt að hann
skarist við embættisskyldur
hans. Prestur verður að gæta
þess að maki hans blandi sér
ekki inn í störf hans með þeim
hætti að ágreiningi geti valdið
við sóknarböm.-----Þar sem
gagnaðili hefurekki mótmælt
þeim umkvörtunum sem
málshefjendur nefna vegna
afskipta maka hans telur úr-
skurðarnefnd að þær umkvart-
anir eigi við rök að styðjast."
Stóð ekki við loforð
I samantekt úrskurð-
arnefndar segir svo m.a.: „Úr-
skurðarnefnd telur að staða
mála í Holtsprestakalli sé
óviðunandi. Gagnaðili hefur
ekki staðið við loforð sem lög-
maður hans gaf fyrir hans
hönd í bréfi til biskups í febr-
úar sl. þar sem fram kom að
hann myndi leggja sitt af
mörkum til að ná sáttum við
sóknarbörnin eftir að hann
sneri aftur til starfa í júní. I
greinargerðum málshefjenda
kemur fram að gagnaðili hefur
engar slíkar tilraunir gert og
aðspurður viðurkenndi hann
á fundi með úrskurðarnefnd
24. ágúst sl. að svo væri ekki.
Úrskurðarnefnd telur að finna
þurfi lausn á þeim vanda sem
við er að etja í Holtsprestakalli
en nefndin hefur ekki vald til
að koma fram með slíka lausn,
eins og mál þetta er vaxið.
Tilraunir nefndarinnar til að
leita sátta reyndust árangurs-
lausar. Úrskurðamefnd telur
að biskup hafi að lögum vald
tilað leysa vanda Holtspresta-
kalls, sbr. 11. gr. þjóðkirkju-
laga. Úrskurðarnefnd beinir
þeim tilmælum til biskups að
lausn verði fundin í málum
Holtsprestakalls.“
Almennur safnaðarfundur í
Holtssókn, haldinn í Holts-
skóla sl. laugardag, ályktaði
eftirfarandi vegna niðurstöðu
úrskurðarnefndar sem hér hef-
ur verið gripið niður í: „Fund-
urinn harmar það að úrskurð-
arnefnd þjóðkirkjunnar skuli
ekki hafa vald til að koma
fram með lausn í málinu, þó
hún taki í öllum aðalatriðum
undir sjónarmið Holtssóknar,
en vísar málinu til biskups
Islands. Fyrir liggur að biskup
Islands benti Holtssókn á að
fara með málið til úrskurðar-
nefndar í apríl sl. eftir að hafa
verið með málið til úrlausnar
í eitt ár. Fundurinn tekur að
svo komnu máli ekki afstöðu
til áfrýjunar til áfrýjunar-
nefndar þjóðkirkjunnar.“
Jólagjafahandbók
Ráðgert er að Jólagjafahandbók BB komi út
föstudaginn 10. desember nk. Líkt og undanfar-
in ár verður hún öll litprentuð og dreift ókeypis
í hús á norðanverðum Vestflörðum.
Þeir auglýsendur sem áhuga hafa á að auglýsa
í blaðinu eru vinsamlegast beðnir að hafa sam-
band sem fyrst við Sigurjón í síma 456 4560.
ppr’™ .f T
Afmæli
60 ára
I dag, miðvikudaginn
10. nóvember er sextugur,
Einar Ingvarsson, Fagra-
holti 14, ísafirði.
Hann og eiginkona hans
Elín M. Jónsdóttir eru
stödd erlendis.
Vikan
framundan
10. nóvember
Þennan dag árið 1967 voru
Strákagöng formlega tekin í
notkun. Þau voru þá lengstu
veggöngin, um 800 metrar.
Þar með komst Siglufjörður
í vegasamband allt árið.
11. nóvember
Þennan dag árið 1962 var
leikritið Hart í bak eftir Jök-
ul Jakobsson frumsýnt hjá
Leikfélagi Reykjavíkur. Það
naut meiri vinsælda en
dæmi voru um og var sýnt
205 sinnum, alltaf fyrir fullu
húsi.
12. nóvember
Þennan dag árið 1974 lést
Þórbergur Þórðarson rit-
höfundur, 85 ára. Jakob
Benediktsson sagði að hann
hefði verið „einn mesti
snillingur sem við höfum
nokkurn tíma átt.“ Meðal
þekktustu bóka Þórbergs eru
Bréf til Láru, Islenskur
aðall, Ofvitinn og ævisaga
Árna Þórarinssonar.
13. nóvember
Þennan dag árið 1939
sökk þýska flutningaskipið
Parana út af Patreksfirði.
Áhöfnin yfirgaf skipið dag-
inn áður og var tekin til
fanga af breska herskipinu
Newcastle. Þetta var fyrsta
þýska skipið sem sökkt var
við strendur íslands í síðari
heimsstyrjöldinni.
14. nóvember
Þennan dag árið 1963 hófst
eldgos á hafsbotni suðvestur
af Vestmannaeyjum. Þar
sem áður var 130 metra dýpi
kom upp eyja sem nefnd var
Surtsey. Gosið stóð með hlé-
um í þrjú og hálft ár, fram í
júní 1967, og mun vera með
lengstu gosum frá upphafi
íslandsbyggðar. Surtsey var
stærst 2,7 ferkílómetrar en
hefur minnkað um nær
helming. Eyjan var hæst 174
metrar.
15. nóvember
Þennan dag árið 1978 varð
mesta slys íslenskrar flug-
sögu er 197 manns fórust er
þota sem var í eigu Flug-
leiða hf. hrapaði í lendingu á
Colombo á Sri Lanka. Flug-
vélin var í pílagrímaflugi.
Átta íslenskir flugliðar létust
en fimm komust lífs af.
16. nóvember
Þennan dag árið 1957 var
Nonnahús á Akureyri opnað
sem minjasafn þegar hundr-
að ár voru liðin frá fæðingu
Jóns Sveinssonar rithöfund-
ar (f. 1857, d. 1944).
Auglýsingasíminn
er 456 4560
MIÐVIKUDAGUR 10. NÓVEMBER 1999 3