Bæjarins besta


Bæjarins besta - 10.11.1999, Síða 5

Bæjarins besta - 10.11.1999, Síða 5
Greinargerð um öryggismál á leiðinni milli ísafjarðar og Súðavíkur Vestfirðir „Úrræðaleysi verður að skilja sem ábendingu um jarðgöng“ - óskiljanlegt dugleysi og úrræðaleysi tillöguhöfunda varðandi snjóflóðin, segir Ágúst Kr. Björnsson, sveitarstjóri Snjóflóð á Súðavíkurlilíð í apríl 1997. Ráðamenn Súðavíkur- hrepps eru mjög ósáttir við að ekki skuli ráðist í fram- kvæmdir við ofanflóðavarnir á leiðinni milli Súðavíkur og Isafjarðar. I apríl síðastliðnum birti Vegagerðin „greinargerð um öryggismál á Súðavíkur- hlíð og Kirkjubólshlíð ásamt tillögum um úrbætur", sem tveir verkfræðingar stofnunar- innar unnu. Ágúst Kr. Björns- son sveitarstjóri Súðavíkur- hrepps segir að greinargerðin sé að mörgu leyti mjög góð og vel unnin en kveðst ekki sætta sig við að ekki skuli vera tekið á þeim málum er varða snjóflóð á Súðavíkur- hlíð. „Hreppsnefndin fékk skýrsluna til umsagnar á vinnslustigi og samþykkti umsögn um hana og gerði sínar athugasemdir í mars- mánuði síðastliðnum. Þegar skýrslan birtist síðan í endan- legu formi var hún hins vegar efnislega óbreytt“, segir Ágúst. Hreppsnefnd hafnar tillögunum Á fundi 28. september sl. tók hreppsnefnd Súðavíkur- hrepps skýrsluna í endanlegri mynd til formlegrar afgreið- slu. Þaráréttaði hreppsnefnd- in, að hún „hafnar tillögum um snjóflóðavarnir í skýrslu Vegagerðarinnar um öryggis- mál á Súðavíkurhlíð og krefst þess að nú þegar verði hafnar aðgerðir til að auka öryggi vegfarenda fyrir snjóflóðum og grjóthruni á hlíðinni. Jafn- framt ítrekar hreppsnefnd fy rri umsögn sína frá 18. mars.“ Ágúst Kr. segir að engar raunhæfar tillögur hafi komið fram varðandi varnir gegn snjóflóðum á þeim hluta Súðavíkurhlíðar þar sem hætta sé af þeim. Aftur á móti séu tillögur Vegagerðarinnar varðandi grjóthrun ásættan- legar. „Hvað varðar tillögurVega- gerðarinnar um úrbætur á Bás- um og Kirkjubólshlíð, þá hafnar hreppsnefndin þeim. Hreppsnefndin telur einu raunhæfu úrbætur þar að skera veginn innar í hlíðina til að skapa gott vegstæði og nauð- synleg öryggissvæði beggja vegna vegarins eða flytja hann niður í fjöru. Við höfum átt fundi með þingmönnum Vest- firðinga um þessi mál og það er þá kannski að gerast í fyrsta skipti núna, að það eru ein- hverjar tillögur til, þó að við séum f sjálfu sér ósáttir við þær. I greinargerðinni eru til- lögur um að gera endurbætur Agúst Kr. Björnsson. vegna grjóthruns fyrir tíu milljónir króna á eins kíló- metra löngum kafla, að breikka öxl á tveimur stöðum á Súðavíkurhlíð fyrir tvær milljónir og fleira í þeim dúr, en hreppsnefndin hafnar al- gerlega framsetningu Vega- gerðarinnar hvað varðar þessi snjóflóðamál. Við teljum það haldlitlar tillögur að leggja til viðvörunarbúnað sem er ekki til og hefur ekki verið hann- aður. Að vísu hafa verið gerðar tilraunir með slíkan búnað en hann ekki virkað. Við erum undrandi á metnaðarleysi Vegagerðarmanna og vitum að fagmennska þeirra er hér meiri og metnaðarfyllri og þeir geta gert betur.“ Gagnrýndum skipan nefndarinnar „Þarna sannast gagnrýni okkar á skipan nefndarinnar. Hreppsnefndin gerði veruleg- ar athugasemdir við skipan hennar. Það varhreppsnefndin sem stuðlaði að því að þessi nefnd var sett á laggirnar með því að beina erindum sínum til samgönguyfirvalda, til vegamálastjóra, samgöngu- nefndar Alþingis og sam- gönguráðherra og óskaði eftir að eiga aðild að henni. Þegar verið var að fara yfir þessi mál á Óshlíðinni, þá átti Bol- ungarvfkurkaupstaður þar fulltrúa, en í þessa nefnd var skipað án okkar aðildar. Það koma greinilega í ljós gallarágreinargerðinni vegna þess að þar heyrist ekki rödd okkaríþessu máli. Þarnahefði að sjálfsögðu einnig átt að sitja fulltrúi Súðavíkurhrepps, þannig að rödd hans hefði get- að komið inn í skýrsluna, öðruvísi en í einhverju um- sagnarfyrirkomulagi sem svo kemur í ljós að Vegagerðin tekur ekkert tillit til í greinar- gerðinni. Skýrsluhöfundar gefast upp fyrir vandamálinu og sitja því undir þeirri gagn- rýni, að sem starfsmennVega- gerðarinnar, þá hafi þeir átt erfitt um vik að koma með kostnaðarsamar tillögur til úrbóta. Ég veit að þessir ágætu skýrsluhöfundar eru miklir fagmenn og þekkja þessi mál vel og er sannfærður um að þeir kunna miklu betur og geta betur, það hefur vinna þeirra á Óshlíð sannað. Vegagerðin, sem mesti fagaðili og sér- fræðingur á sviði vegamála, á auðvitað að vera í fararbroddi hvað öryggismál og öryggis- úrræði varðar." Greining vandans góð „Ég vil gjarna að það álit mitt komi skýrt fram, að skýrslan ergóð um margt. Þeir greina leiðina mjög vel, skipta henni mjög nákvæmlega nið- ur í kafla og fara mjög vel yfir hana. Þeir eiga mælingar á snjóflóðum langt aftur í tím- ann og fara ágætlega yfir grjót- hrun á þessari leið, þannig að greiningin sjálf er ágæt. Enda gerðum við í sjálfu sér ekki miklar athugasemdir við greininguna að öðru leyti en því, að það vantar algerlega að leggja mat á þykkt, magn og kraft snjóflóðanna. Þegar verið er að telja snjóflóðin, þá er lella sem kemur aðeins upp á vegkantinn lögð að jöfnu við flóð sem spýtist langt út á sjó. Vegagerðin hefur um nokkurn tíma mælt þykkt og magn og því er undarlegt að ekki séu settarfram slíkarupp- lýsingar í greinargerðinni." Tilmæli yfírvalda um að krefjast jarðganga „Vandamálið er alveg þokkalega vel greint, en það eru engar viðunandi tillögur um að taka á því og það er óásættanlegt. Ef Vegagerðin og yfirvöld samgöngumála ætla að ganga fram með þess- um hætti, þá hlýtur það ein- faldlega að vera tilmæli til hreppsnefndar Súðavíkur- hrepps, að fara fram á að það verði boruð göng á þessari leið. Það er óásættanlegt fyrir íbúa á svæðinu að búa við þessa stöðu í öryggismálum og úrræðaleysið verður ekki túlkað nema sem lítilsvirðing við búsetu og atvinnu íbúa á norðanverðum Vestfjörðum. Hér er um að ræða þjóðleið íbúa á norðanverðum Vest- fjörðum og aðalvegtengingu þeirra við þjóðvegakerfi landsins. Svæðið er eitt at- vinnu- og byggðarsvæði og samgöngur eru forsenda bú- setu. Það er skrítin Ella að á sama tíma og ekkert er gert í máli sem þessu, þá hafa menn verið tilbúnir til að láta á þrem- urárum um 200 miljónirkróna til reksturs gamallar og ófull- kominnar ferju á Djúpinu. í skýrslunni koma fram 1.112 flóð á tuttugu ára tíma- bili og allt upp í 163 flóð á einu ári. Annað hvort gera menn úrbætur og gera um það einhverjalangtímaáætlun-ég geri mér grein fyrir að þetta klárast ekki á næsta ári og ekki þar næsta, heldur yrðu menn sáttir við að það yrði gert á á fimm til sjö árum - eða menn hreinlega bora gat. Það er aðeins um þetta tvennt að velja. Og það er ábyrgðar- hluti af yfirmönnum Vega- gerðar og samgöngumála að fara fram í þessari greinargerð með eins miklu úrræðaleysi og þar birtist hvað varðar snjó- flóðaþáttinn." „Óskiljanlegt úrræðaleysi“ „Mér þykir líka einkenni- legt að Vegagerðin skyldi ekki bæta þessa skýrslu eftir að umsögn hreppsnefndarinnar kom fram, hvað varðar stærð flóðanna, magn og þykkt. Við þetta er sérstaklega gerð at- hugasemd í umsögn hrepps- nefndarinnar, vegna þess að ég veit, að Vegagerðin er búin að mæla þykkt og magn um nokkurn tíma. Það er alveg ljóst, að af þeim 22 flóðafar- vegum sem tilgreindir eru myndi vel grafinn skápur gagnast ágætlega og myndi að mínum dómi leysa vand- ann álíklega 10-15 stöðum af þeim 22 sem um ræðir. Slfkur skápur kostar um eina til eina og hálfa milljón króna. Þess vegna skil ég ekki dugleysi og úrræðaleysi tillöguhöfunda hvað þetta varðar, Ég fagna öllum vegabótum hvar sem er á norðanverðum Vestfjörðum og öllum framkvæmdum til þess að auka og styrkja sam- göngur á svæðinu, hverjar sem þær eru. Á hverju einasta ári fara tugmilljónir króna til sambærilegra verkþátta á Bol- ungarvíkurvegi og það er mjög gott. En einn slíkur skammtur, eins og fer á einu ári í Oshlíðarveginn, myndi leysa stóran hluta af þessum 22 farartálmum á Súðavíkur- hlíð.“ Ójafn samanburður við Óshlíð „Ef við tökum leiðina um byggðasvæðið við utanvert Djúpið, frá Súðavík og til ísa- fjarðar, út í Hnífsdal og um Oshlíðarveginn til Bolungar- víkur, þá hafa á þessari leið verið gerðar ágætar umbætur í lýsingu og öryggissvæðum og öðru. Síðan eru þessar sér- stöku og góðu og miklu ör- yggisráðstafaniráÓshlíðinni, sem hafa kostað 500-600 milljónir. Þess vegna er það ekki lengur ásættanlegt að engar fjárveitingar komi til slíkra þátta á Súðavíkurhlíð. Krafaokkarer aðnú þear verði hafist handa, sérstaklega varðandi snjóflóðin og veginn á Básum. Það eru fjórir farvegir sem eru sýnu langverstirafþessum tuttugu og tveimur, þ.e. Djúpagil, Fjárgil, Skjólhamra- vík og Tungugil. Þeir skera sig alls ekki úr hvað fjölda snjóflóða snertir, en eins og áður sagði er það ekki fjöldinn sem gildir heldur hversu stór og öflug þau eru“, sagði Ágúst Kr. Björnsson sveitarstjóri. Miðstöð útlendinga á ísafirði? Páll Pétursson félagsmála- ráðherra greindi frá því í ræðu sinni á ráðstefnu um fjármál sveitarfélaga fyrir skömmu, að í ráðuneyti hans væri verið að vinna að stofnun lands- miðstöðvar um málefni út- lendinga. Þarnefndi hann sér- staklega að hann gæti hugsað sér að slík landsmiðstöð yrði á ísafirði. Hér yrði um að ræða þjón- ustustofnun fyrir útlendinga, í anda þingsályktunartillögu sem þingmenn Vestfirðinga fluttu á síðasta vori um stofn- un nýbúaskrifstofu hér vestra. Körfubolti KFÍ mætír r IR-ingum KFI tekur á móti IR-ingum í 16-liða úrslitum bikarkeppni KKI, en dregið var um síðustu helgi. Af öðrum viðureignum má nefna að Njarðvík mætir Snæfelli, Reynir Sandgerði tekur á móti KR og Grindavík tekur á móti GG. Leikirnir fara fram 11. og 12. desember. Forráðamenn KFI hafa að undanförnu átt í viðræðum við 25 ára grískan miðherja, Babis Patelis að nafni, um að leika með liðinu í vetur. Patelis, sem er 2,04 á hæð, lék í 2. deildinni á Spáni í haust en hefur lýst yfir áhuga á að koma til KFÍ. Náist samningar við Patelis verður hann löglegur með lið- inu í næsta leik gegn Þór sem fram fer 5. desember. Handbolti Afturelding gegn Herði Bikarmeistarar Aftureld- ingar í Mosfellsbæ drógust gegn Herði á Isafirði í 16-liða úrslitum bikarkeppni HSÍ en dregið var á mánudag. Afturelding, sem lagði FH í úrslitum bikarkeppninnar á síðastakeppnistímabili, mætti handknattleiksliði BÍ, í bikar- keppninni 1994-95, en þáfóru leikar 43-20 fyrir liði Aftureld- ingu, en leikið var á Isafirði. ísaQörður Augnlæknir með móttöku Augnlæknir verður með móttöku á Heilsugæslustöð- inni á Isafirði dagana 22.-26. nóvember nk. Hægt er að panta tíma hjá augnlækningum í síma stöðv- arinnar, 450 4500, alla virka daga frá kl. 8-16. Á öðrum tímum eru ekki gefnar upplýsingar um þjón- ustu augnlæknisins. MIÐVIKUDAGUR 10. NÓVEMBER 1999 5

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.