Bæjarins besta - 13.09.2000, Blaðsíða 1
Eyrarskáli
Samon undir einu þaki
Flutningur er okkar fag
Öll flutningsþjónusta á einum stað á ísafirði, í Eyrarskála
við Sundahöfn. Vekjum athygli á nýjum símanúmerum.
Sími: 450 5100
EIMSKIP Fax: 450 5109
íKþ^TfTCÍB Simi: 450 5110
Fax: 450 5119
Stofna014. nðvember 1984 • Sími 456 4560 • Fax 45B 45B4 • Netfang: bb@hb.is • Verð kr. 200 m/vsk
Útvarp
Apótek
FMIOI
Utvarp Apótek eða FM
101 hóf göngu sína á Isafirði
sl. föstudag með ávarpi
Gylfa Olafssonar útvarps-
stjóra, en þá var myndin tek-
in.
Fyrst um sinn verður út-
varpað svo til sleitulaust í
einn mánuð, að sögn þeirra
sem að útvarpinu standa.
Síðan verður árangurinn
metinn og tekin ákvörðun
um framhaldið.
Utvarp Apótek er til húsa
í Gamla apótekinu.
Björgunarbáturinn Gunnar Friðriksson seldur
Nýr bátur væntan-
legur 30. september
Björgunarbátur sem keypt-
ur hefur verið í Englandi er
væntanlegur til Isafjarðar síð-
asta dag þessa mánaðar. Hann
kemur í stað björgunarbátsins
Gunnars Friðrikssonar, sem
ákveðið var að selja til Noregs.
Nýi báturinn er af Arun-gerð
og nokkru stærri en Gunnar
Friðriksson. Arun-bátar eru
þrautreyndir og hafa verið í
notkun frá 1971. Báturinn sem
keyptur hefur verið er úr plasti
og smíðaður árið 1978.
Þrátt fyrir góða reynslu af
núverandi björgunarbáti var
ákveðið að kaupa nýrri og
stærri bát. Gunnar Friðriksson
er tæplega 30 tonn, smíðaður
úr áli í Þýskalandi árið 1969.
Hann kom til ísafjarðar í lok
maí 1997 og hefur sannað
mikilvægi þess að hafa öflug-
an björgunarbát á þessu
svæði. Á þessum tíma hefur
hann farið í um 90 útköll.
Hins vegar hefur reynst tor-
velt að fá varahluti í bátinn og
þess vegna er hann erfiður í
rekstri. Stjórn Björgunarbáta-
sjóðs Slysavarnafélagsins
Landsbjargítr á Vestfjörðum
mæltist til þess við stjórn
SVFI Landsbjargar í sumar,
að heimilað yrði að kaupa
annan bát og var orðið við
því. Verðið er rúmar sex millj-
ónir króna.
Albert Óskarsson, skip-
stjóri og starfsmaður Björgun-
arbátasjóðsins á Vestfjörðum,
siglir bátnum frá Poole til
Immingham, þar sem hann fer
í skip hjá Eimskipum 21.
þessa mánaðar. Honum verð-
ur síðan siglt frá Reykjavík til
ísafjarðar, þangað sem hann
er væntanlegur kl. 13 laugar-
daginn 30. september.
Arun-báturinn er fyrsti
„hraðbjörgunarbáturinn" sem
teiknaður var og smíðaður sér-
staklega í Bretlandi fyrir Kon-
unglegu bresku björgunar-
bátastofnunina (RNLI). Jafn-
framt er hann sá algengasti af
bátum ætluðum fyrir öll veður
sem nú eru í notkun á Bret-
landseyjum. Ganghraði mun
vera um 18 hnútar.
ísaJjörður
Ráðist á
lögreglu
Ráðist var á lögreglumann
á Isafirði rétt fyrir klukkan 5
aðfaranótt sunnudags. Kallað
vareftiraðstoð lögreglu vegna
deilna tveggja manna ITungu-
dal og fór lögreglan þegar á
vettvang.
Eftir að hafa reynt að stilla
til friðar nokkra stund sló ann-
ar mannanna lögreglumann í
andlitið með þeim afleiðing-
um að sauma þurfti nokkur
spor. Maðurinn fékk að sofa
úr sér í fangageymslum lög-
reglunnar.
Um svipað leyti og lögregl-
an var kölluð í Tungudal réð-
ust piltur og stúlka á stúlku
um tvítugt við Hafnarstræti
og spörkuðu í höfuð og maga
hennar. Gert var að sárum
hennar sem reyndust ekki al-
varleg.
Vestflrðir
Slösuðust
í bflveltu
Konur á þrítugs- og fimm-
tugsaldri slösuðust er bifreið
valt út af veginum í Vattarfirði
á Barðastrandasýslu um há-
degisbil á sunnudag.
Femt var í bílnum og voru
allir fluttir með þyrlu Land-
helgisgæslunnar til aðhlynn-
ingaráLandsspítalanum. Karl
og kona sem einnig voru í bif-
reiðinni fengu að fara heim
samdægurs.
Á laugardag var síðan önn-
ur bflvelta í Heydal í Mjóa-
firði. Ökumaður reyndist lítið
slasaður.
Uesturfrakt
ísafirði
Sirni: 456 3701
Alhliða flutningar
flanlonav* FbpAíp
udcpicsgciw b csruis
ReykjaviK - Isafjorður
ísafjörður - ReykjaviK
Rtykjavik
apal
iFtuiiiriNiuiwGAie