Bæjarins besta


Bæjarins besta - 13.09.2000, Blaðsíða 5

Bæjarins besta - 13.09.2000, Blaðsíða 5
Heilbrigðisstofnunin Isafjarðarbæ 16 nianns í kynnisferð - vcriö að nota hluta af milljóninni frá ráðherra gert. Það er mjög óvenju- legt, en jafnframt ánægju- legt, að koma að skóla þar sem fyrir lá svona mikið af rannsóknargögnum. Það auðveldar alla uppbyggingu. Við Jónína Ólöf Emils- dóttir, aðstoðarskólastjóri, fórum í að breyta því sem betur mátti fara að okkar mati. Jónína hafði rnikla staðarþekkingu og reynslu í að vinna með því fólki sem starfaði við skólann. Hennar framlag var ómetanlegt." Batnandi árangur Þau Kristinn og Jónína lögðu mikla áherslu á skilvirkni við stjórn skólans. „Við reyndum að tryggja sem best að öll mál sem upp komu í skólastarfínu og er- indi sem bárust skólanum fengju skjóta og yfírvegaða afgreiðslu. Þá var áhersla lögð á aga og umgengni og viðhald skólahússins. Einnig hefur verið skipulega unnið að því að bæta húsbúnað, kennsluaðsöðu og kennslu- tæki. Fljótlega var farið að endurskipuleggja kennslu- starfið. I fyrstu var lestrar- kennslan tekin sérstaklega fyrir. Síðan höfum við ein- beitt okkur að raungreinum, aðallega stærðfræði og náttúrufræði. Gífurlega mikil vinna hefur verið lögð í þessa upp- byggingu af hálfu kennara, enda tel ég að við höfum verið að uppskera eftir því á allra síðustu árum. Við sjá- um mikla breytingu á náms- árangri 10. bekkjar. Ef við berum okkur saman við aðra skóla í samræmdum prófum, þá sjáum við að meðaleink- unn GÍ var 1,3 undir lands- meðaltali árið 1995, árið eftir var hún 1,0 undir, árið 1997 var hún 0,9 undir með- altali, síðan 0,5 og árið 1999 var meðaleinkunn nemenda skólans komin lítillega yfir landsmeðaltal.“ Þannig er greinilegt að skólinn hefur verið að ná góðum árangri á síðustu árum. „Meginástæðan er sú að hér hafa foreldrar stutt dyggilega við skólann. Einnig hafa kennarar verið starfi sínu vaxnir og hafa lagt mikinn metnað í að bæta skólastarfið.“ Skrautleg byggingarsaga Gott skólahúsnæði og góð skólalóð eru einhverjar mik- ilvægustu forsendur blóm- legs skólastarfs, að mati Kristins. „Það hefur verið unnið töluvert í kringum þau mál. Vinnan hefur reyndar farið fram í skorpum og því miður hefur byggingarsaga Grunnskólans á ísafirði verið æði skrautleg.“ Eins og menn eflaust muna urðu húsnæðismál Grunnskólans að heitu kosningamáli í síðustu bæj- arstjórnarkosningum. „Öll skipulagsvinna hefur því miður að mestu einkennst af ósamstöðu. Þó eru menn farnir að taka sig á og eru nú hættir að rífast. Samt gerist afskaplega lítið. Eg hef reyndar haft spurnir af því að einhver nefndarskipun sé væntanleg hjá bæjaryfir- völdum. Fyrir þremur árum stóð til að byggja húsnæði fyrir Grunnskólann á Torfnesi en hætt var við þær áætlanir. I staðinn var ákveðið að kaupa tvær hæðir á Austur- vegi 2, í kaupfélagshúsinu gamla, og voru þær innrétt- aðar til kennslu. Þar hefur tekist vel til þó að húsnæðið sé einungis hugsað til bráða- birgða." Uppeldið kemur að heiman Kunnugir segja að vart sé hægt að líkja saman hegðun nemenda nú og fyrir fimm árum. Sögur eru til af nem- endum sem kveiktu í kló- settpappírsrúllum, hentu stólum í krítartöflur, svívirtu kennara og höguðu sér eins og flón. Nú er sagt að vinnu- friður sé í skólanum og jan- úar árið 2000 hafi verið fyrsti sprengjufríi janúar- mánuðurinn sem elstu menn muna. „Ég veit náttúrlega lítið um það hvernig ástand- ið var áður en ég kom. Ég hef að vísu heyrt þessar sög- ur en leyfi mér að halda að þær séu örlítið kryddaðar, svo ekki sé meira sagt. Hins vegar hefur náðst mjög góður árangur á þessu sviði og hann er að sjálf- sögðu að mestu leyti foreldr- um og starfsfólki skólans að þakka. Við getum ekki agað nemendur nema upp að vissu marki í skólanum. Uppeldið verður að koma að heiman." Tekið á málum jafnóðum Áfengis-, tóbaks- og vímuefnanotkun unglinga hefur jafnan verið vinsælt fréttaefni. „Við höfum tekið mjög hart á þeim málum. Þá er sama hvort um er að ræða notkun á löglegum eða ólög- legum vímuefnum. Reyk- ingar hafa því miður aukist á landsvísu undanfarin ár en við höfum ákveðnar aðferðir til að bregðast við þeim vanda. Stranglega er bannað að reykja á skólalóð og öfl- ugt forvarnastarf er unnið innan veggja skólans. Vart þarf að minnast á áfengis- og vímuefnabannið sem gildir í skólanum. Sem betur fer hafa æ færri nem- endur reynt að komast undir áhrifum á skemmtanir skól- ans en þó þurfum við alltaf að hafa varan á. Við erum sérstaklega varkár á haustin en þá hafa margir nemendur kynnst áfengi eða öðrum vímuefnum yfir sumarið. Þá koma stundum upp mál sem varða neyslu á þessum efn- um en á þeim er tekið strax í samvinnu við félagsmála- yfirvöld og lögreglu." Auglýsingar og áskrift sími 456 4560 Sextán starfsmenn Heil- brigðisstofnunarinnar Isa- fjarðarbæ eru á morgun vænt- anlegir til íslands að lokinni kynnisferðtil Noregs, þarsem lengst var dvalist áTúnsbergi, vinabæ Isafjarðarbæjar. Til að standa straum af ferðinni var notaður hluti af þeirri milljón króna, sem heilbrigðisráð- herra færði stofnuninni á sín- um tíma í viðurkenningar- skyni fyrir einstaklega góðan rekstur. Það sem safnað hefur verið í sarpinn í ferðinni kemur væntanlega að góðum notum þegar heim kemur. „Menn eru uppfullir af hugmyndum til að fara með heim“, sagði Guð- jón Brjánsson, framkvæmda- stjóri stofnunarinnar og einn ferðalanganna, í símtali við blaðið. Hópurinn sem fór utan má heita þverskurður af starfslið- inu á Heilbrigðisstofnuninni Isafjarðarbæ, nema hvað af þessum sextán eru tveir karlar en aðeins fjórtán konur. Það er lægra hlutfall af konum en starfar í því kvennaríki. Lagt var af stað frá Keflavík á fímmtudagsmorgun í síð- ustu viku og flogið til Kaup- mannahafnar. Þaðan var ekið yfir Eyrarsundsbrúna til Sví- þjóðar og áfram til Túnsbergs í Noregi. Móttökur bæjaryfir- valda voru höfðinglegar og var margt skoðað og víða far- ið. Fyrst og fremst voru þó heimsóttar ýmsar og ólíkar stofnanir fyrir sjúka og aldr- aða í boði bæjarfélagsins. Hlýtt var á fræðslu og fyrir- lestra um heilbrigðisþjónust- una ytra og hugmyndir sem uppi eru. „Sumt hljómaði nokkuð kunnuglega fyrir okk- ur því að það mótast mjög af því að ekki sé allt of mikið af peningum til ráðstöfunar“, sagði Guðjón Brjánsson. Síðasti deginum ytra er var- ið í Kaupmannahöfn, þar sem farið er í Jónshús og um Is- lendi ngaslóðir í borginni. Ætl- unin er að leggja af stað heim frá Kastrup á morgun. Fjarkennslubúnaður í Menntaskólanum á ísafirði Stórgjöf frá Þórði Júlíussyni - búnaðurinn tekinn í notkun 1998 en ennþá ógreiddur Þórður Júlíusson á ísa- fírði hefurgefið eina milljón króna upp í greiðslu á fjar- kennslubúnaði þeim í Menntaskólanum á Isafirði, sem keyptur var og tekinn í notkun fyrir tæpum tveimur árum. Aðspurður um ástæðu gjafarinnar sagði Þórður: „Mér fínnst að við verðum að styrkja þessa leið til að afla menntunar á lands- byggðinni, því að hún er framtíðin. Hér erum við langt frá háskólum og fjar- kennsla getur orðið lyfti- stöng fyrir byggðarlög þar sem svo hagar til.“ Jafnframt skorar Þórður á þá sem eiga nóga peninga að bæta við þetta framlag: „Ef margir leggja saman, þá getur þetta orðið myndarlegt“. Hann kvaðst vita að ýmsum hefði áskotnast mikið fé. „Ég get alveg sagt þeim að það er ekkert varið í að liggja á pen- ingum.“ Fjarkennslubúnaðurinn í Menntaskólanum á ísafirði var tekinn í notkun í nóvember 1998. Hann kostaði um þrjár milljónir krónar sem enn eru ógreiddar. Á sínum tíma var gerður „skammtímasamning- Þórður Júlíusson. ur“ um að Fjórðungssamband Vestfirðinga hefði milligöngu um útvegun búnaðarins vegna fjarkennslu sem þá var að fara í gang í Framhaldsskóla Vest- fjarða (nú Menntaskólinn á ísafirði). Síðan mun ætlunin hafa verið að skólinn sæi um að búnaðurinn yrði keyptur með einhverjum hætti en það hefur ekki gengið eftir. Reynd- ar mun ekki hafa legið fyrir hver ætti að kaupa búnaðinn eða hvernig það ætti að gerast. I vor fékk Fjórðungssam- bandVestfirðinga eina milljón króna frá Fræðslumiðstöð Vestfjarða, sem ganga skyldi til greiðslu á umræddum bún- aði að hluta og til hliðstæðs búnaðar annars staðar á Vest- fjörðum að hluta, en þar hafa Reykhólar forgang. Að sögn Hauks Más Sigurðarsonar, stjórnarformanns Fjórð- ungssambands Vestfirð- inga, er ekki búið að ákveða hvernig þessu fé verður skipt og þess vegna er enn ekkert búið að borga. Haukur Már kveðst von- ast til þess, að hin höfðing- lega gjöf Þórðar Júlíussonar verði til þess að ýta við sveitarfélögum, ríki og ekki síst fyrirtækjum áVestfjörð- um að leggja fram fé, þannig að aðstöðu til fjarkennslu á Vestfjörðum verði komið í gott horf. ísaQarðarbær Sjö bæjar- fulltrúar í stað níu? Bæjarfulltrúarnir Þorsteinn Jóhannesson og Sigurður R. Olafsson leggja til að bæjar- fulltrúum Isafjarðarbæjar fækki úr níu í sjö. Ný bæjar- málasamþykkt Isafjarðarbæj- ar var til fyrri umræðu á bæj- arstjórnarfundi í síðustu viku og lagði Þorsteinn þá fram þessa tillögu, sem Sigurður hafði einnig undirritað. Frá stofnun núverandi bæj- arfélags við sameiningu sex sveitarfélaga árið 1996 hafa bæjarfulltrúarnir verið níu. í samtali við blaðið kvaðst Þor- steinn telja að bæjarstjórn yrði ekki síður skilvirk þótt bæjar- fulltrúum yrði fækkað. I drögum að nýrri bæjar- málasamþy kkt er gert ráð fyrir óbreyttum fjölda bæjarfull- trúa. Bæjarmálasamþykktin hefur verið í endurvinnslu í samræmi við ákvæði í sveitar- stjómarlögum en einnig vegna fyrirhugaðrar stofnunar sér- stakrar atvinnumálanefndar Isafjarðarbæjar. Nýmæli í þeim drögum sem lögð hafa verið fram snúa þess vegna ekki að atriðum eins og fjölda bæjarfulltrúa. Þorsteinn er einn af fulltrú- um meirihlutans í bæjarstjórn en Sigurður einn af fulltrúum minnihlutans. Tillaga þeirra er hins vegar einkaframtak en ekki flutt í umboði meirihluta eða minnihluta. ísafjörður Vínarklass- ík í Hömrum Nýtt og fjölbreytt starfsár Tónlistarfélags Isafjarðar hefst með kammertónleikum í Hömrum, tónlistarhúsi Isa- fjarðar, fimmtudagskvöldið 14. september kl. 20:30. Á tónleikunum mun Cuvill- iés strengjakvartettinn frá Múnchen og Sigurður Ingvi Snorrason klarinettuleikari m.a. leika Klarinettukvintett Mozarts. Tónleikarnir eru fyrstu áskriftartónleikarTónlistarfé- lags Isafjarðar á starfsárinu 2000-2001 og gilda áskriftar- kort því á tónleikana. Hægt er að skrá sig fyrir þeim við innganginn, en einnig er hægt að kaupa staka miða á kr. 1.200. Nemendur Tónlistar- skóla Isafjarðar, 20 ára og yngri fá ókeypis aðgang. Margir fleiri áhugaverðir tónleikar eru á dagskrá Tón- listarfélagsins í vetur og munu ýmsir listamenn heimsækja Isafjörð. Má þar m.a. nefna Gunnar Kvaran sellóleikara, Sönghópinn Rúdolf og Blás- arakvintett Reykj avíkur ásamt Philip Jenkins píanóleikara. Minningartónleikar um hjón- in Sigríði Jónsdóttur og Ragn- ar H. Ragnar verða 7. október svo um fátt eitt sé getið. MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 2000 5

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.