Dagfari - okt. 2016, Blaðsíða 11
11
Húmanistaflokkurinn
Já hiklaust.
Píratar
Tvímælalaust, já.
Samfylkingin
Samfylkingin vill taka á móti fleira flóttafólki og hefur flutt þingsályktanir
þess efnis á kjörtímabilinu sem er að líða. Eitt mikilvægasta úrlausnarefni
samtímans er farsæl sameiginleg lausn ríkja heimsins í málefnum
flóttamanna. Það er baráttumál jafnaðarmanna út um allan heim og líka
Samfylkingarinnar.
Sjálfstæðisflokkurinn
Gerum athugasemdir við forsendur spurningarinnar (sbr. svar nr. 5).
Sjálfstæðisflokkurinn er hins vegar fylgjandi aukinni aðstoð við flóttamenn
frá stríðshrjáðum svæðum, m.a. með móttöku fleiri flóttamanna hingað
til lands.
Viðreisn
Hér er aftur spurning sem endurspeglar skoðanir fyrirspyrjanda. Í
samstarfi þjóða eiga Íslendingar að vera virkir og ábyrgir þátttakendur.
Í því felst einnig að Ísland eins og aðrar þjóðir beri ríka ábyrgð gagnvart
flóttafólki og hælisleitendum.
Vinstrihreyfingin - grænt framboð
Já. Við eigum að taka á móti umtalsvert fleiri flóttamönnum, að lágmarki 500
á ári. Jafna þarf aðstæður hælisleitenda og svokallaðra kvótaflóttamanna
og tryggja fullnægjandi framkvæmd nýrra útlendingalaga með fjármagni
og mannafla.