Dagfari - okt. 2016, Blaðsíða 15

Dagfari - okt. 2016, Blaðsíða 15
15 sýrlenska vígamenn. Eina hlutverk Bandaríkjastjórnar yrði að safna upplýsingum undir stjórn Davids Petraeus, fyrrum forstjóra CIA og miðla til þeirra skæruliða sem bandalagsríkin veldu og sæju sjálf um að vopna. Vissulega vildu sumir, þar á meðal Clinton sjálf, ganga lengra og koma á flugbannssvæði sem gerði uppreisnarmönnum kleift að starfa og þjáfa sig óáreittir. En Obama og herstjórn Bandaríkjanna kærði sig ekki um að stíga slíkt skref í átt til beinnar stríðsþátttöku. Þess í stað vildi stjórnin ráða lögum og lofum í Sýrlandi án þess að þurfa sjálf að óhreinka hendur sínar eða vopna uppreisnarmenn með beinum hætti. En innan fárra mánaða varð það ljóst að draumar embættismanna um „stýrð valdaskipti“ höfðu farið rækilega út um þúfur. Al-Kaída sem náð hafði góðri fótfestu í Írak var farið að sýna tennurnar í Sýrlandi með hrindu árása í Damaskus og víðar. Í ágúst 2012 var það almennt viðurkennd staðreynd að Íslamistar voru að ná yfirhöndinni í stríðinu gegn Assad. Ed Hussein frá hugveitunni Council on Foreign Relations benti á það í tímaritinu The Christian Science Monitor að Sýrland væri orðið segulstál sem drægi til sín trúarofstækismenn hvaðanæva úr heiminum á sama hátt og Írak eftir innrás Bandaríkjamanna 2003. Bandaríska eftirlitsstofnunin Defence Intelligence Agency komst að þeirri niðurstöðu að Al-Kaída, Salafistar og Bræðralag múslima væru þrír helstu vaxtarbroddarnir í stríðinu gegn Assad. Á sama tíma gerði Bandaríkjastjórn sér fyllilega ljóst að Tyrkland, Katar og Sádi Arabía væru að senda vopn, þar á meðal flaugar til að sprengja upp skriðdreka, til hópa í Sýrlandi sem hlutu að starfa með Al-Kaíta og öðrum Íslamistum. Chollet, sem vann að stefnumótun varðandi Sýrland hjá Clinton í utanríkisráðuneytinu og síðar á vettvangi Pentagon, rifjar upp áhyggjur innan stjórnkerfisins frá þessum tíma um að „rangir aðilar“ úr röðum uppreisnarmanna kynnu að eflast, þar á meðal öfgaöfl í nánum tengslum við Al-Kaída. Innherjar í leiknum Ætla hefði mátt að þessi þróun mála yrði til þess að Bandaríkjastjórn sneri við blaðinu og gripi fyrir hendurnar á bandamönnum sínum,

x

Dagfari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagfari
https://timarit.is/publication/968

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.