Dagfari - okt. 2016, Blaðsíða 13
13
Sjálfstæðisflokkurinn
Engin leið er svara svona spurningu fyrirfram. Ríkisstjórn og
Alþingi verða á hverjum tíma að taka ákvarðanir í utanríkismálum,
sem byggja á raunsæju mati á aðstæðum í hverju tilviki fyrir sig.
Viðreisn
Afstaða Íslands hlýtur að mótast af stöðu mála á hverjum tíma.
Vinstrihreyfingin - grænt framboð
Mjög ólíklegt.
Næstu málsverðir í Friðarhúsi
Fjáröflunarmálsverðir Friðarhúss eru að jafnaði síðasta föstu-
dag í mánuði. Það eru mikilvægar samkomur, bæði fjárhag-
slega til að standa undir rekstri húsnæðisins en ekki síður
félagslega þar sem hernaðarandstæðingar hittast, kynnast og
njóta saman matar og menningardagskrár.
Málsverður októbermánaðar verður föstudaginn 28. ok-
tóber, kvöldið fyrir kjördag. Matseðill og dagskrá má finna á
Friðarvefnum.
Lokamálsverður ársins verður að venju fullveldifögnuðurinn,
en hefð ef fyrir að halda hann sem allra næst fullveldisdegi-
num. Í ár er það föstudagkvöldið 2. desember og eins og
venjulega mun Guðrún (Systa) Bóasdóttir reiða fram glæsilegt
hlaðborð.
Málsverðirnir í Friðarhúsi hefjast alltaf kl. 19 og er verðið
2.000 kr. á manninn. Öll velkomin.