Bæjarins besta - 05.01.2005, Qupperneq 2
MIÐVIKUDAGUR 5. JANÚAR 20052
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins á Ísafirði
Fær 5 milljónir til uppbygging-
ar sjókvía-rannsóknamiðstöðvar
Rannsóknastofnun fisk-
iðnaðarins á Ísafirði (RF)
hefur í samstarfi við Hrað-
frystihúsið – Gunnvör (HG)
fengið 5 milljóna króna fram-
lag frá Byggðastofnun til
uppbyggingar sjókvía-rann-
sóknarmiðstöðvar sem til
stendur að koma á fót á Ísafirði
á næstunni. Miðstöðin verður
samstarfsverkefni RF, HG og
fleiri aðila.
„Stefnan er að byggja sjó-
kvíar sem nýtast við rannsókn-
ir í tengslum við fiskeldi með
áherslu á þorskeldi“, segir Dr.
Þorleifur Ágústsson, verkefn-
isstjóri RF á Ísafirði. „Ætlunin
er að miðstöðin þjóni aðilum
á landinu öllu sem stunda fisk-
eldi og taka þátt í rannsóknum
af þessu tagi. Mjög fljótlega
verður hafist handa við að
koma miðstöðinni á koppinn.
Fljótlega verður svo leitað til-
boða í gerð sjókvíanna og
reiknað er með því að þær
verði hannaðar og smíðaðar á
Ísafirði. Þetta undirstrikar bara
hversu vænlegur kostur Vest-
firðir eru til að stunda rann-
sóknir í sjókvíum.“
Dr. Þorleifur Ágústsson meðhöndlar blóðsýni
úr eldisþorski. Mynd: Hjalti Karlsson.
Líkamsárás varð í Hafn-
arstræti á Ísafirði kl. 3:15
aðfararnótt mánudagsins
27.desember. Þar réðst
kona á aðra konu, að til-
efnislausu að því er virðist.
Svo virðist sem konan sem
framdi árásina stundi slíkt,
en á nærri hverri helgi er
hún kærð fyrir misgrófar
árásir að því er fram
kemur í dagbók lögregl-
unnar á Ísafirði. Aðfara-
nótt sunnudags kl. 4 kom
dyravörður frá skemmti-
staðnum Krúsinni inn á
lögreglustöðina á Ísafirði
og kærði árás. Hafði einn
af gestum staðarins skallað
hann í andlitið. Dyravörð-
urinn fór á Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Ísafirði til
skoðunar og aðhlynningar.
Líkamsárás
á Ísafirði
Kveiktu í
flugeldatertu
í göngunum
Að kvöldi nýársdags kom-
ust lögreglumenn á Ísafirði
að því að einhver eða ein-
hverjir höfðu gert sér að
leik að sprengja flugelda-
tertu í Breiðadalslegg Vest-
fjarðaganganna. Segir
Önundur Jónsson yfirlög-
regluþjónn að þarna séu
menn að stofna lífi sínu og
annarra í hættu því reykur
sem kom af sprengjunni
var það þykkur að til
árekstrar hefði getað kom-
ið vegna slæms skyggnis.
Kveikt var á loftblásurum
ganganna til að ræsta þau.
Nýársdagskvöld og að-
faranótt 2. janúar var
frekar annasamur tími hjá
lögreglunni á Ísafirði og
var nokkuð um ófrið vegna
skemmtanahalds. Rétt eftir
klukkan fjögur um nóttina
kom dyravörður skemmti-
staðar á lögreglustöðina og
sagði einn gesta staðarins
hafa kýlt sig í andlitið. Á
svipuðum tíma hentu tveir
drengir logandi flugeld úr
bíl sínum í annan bíl með
þeim afleiðingum að dekk
á honum sprakk. Báðir
drengirnir fundust og
fengu tiltal. Þá má þess
geta að lögreglu hefur bor-
ist fjölda kvartanna yfir
akstri vélsleðamanna á
götum í þéttbýli.
Litlu munaði að Gunnbjörn
ÍS sykki í Flateyrarhöfn
Litlu munaði að togarinn
Gunnbjörn ÍS sykki í höfn-
inni á Flateyri á þriðja
tímanum á mánudag en
fyrir snarræði vélstjóra á
öðrum báti var komið í veg
fyrir að illa færi. Sjór
komst af einhverjum
ástæðum inn á millidekk
togarans svo að hann tók
að halla uns hans lá á
bryggjukantinum. Vél-
stjórinn sá hvert stefndi og
hafði samband við eig-
endur sem lóðsuðu hann
að ljósavél Gunnbjörns.
Eftir að hafa komið henni í
gang tókst honum að dæla
sjónum úr skipinu svo það
rétti sig við. Ekki er talið
að skemmdir hafi orðið í
skipinu eða á því vegna
atviksins. Gunnbjörn er
með heimahöfn í Bolung-
arvík en leggur upp afla
sinn á Flateyri.
– halfdan@bb.is Gunnbjörn ÍS.
Skarfar hvíla lúin bein við höfnina á Ísafirði á gamlársdag.
Ellefu tilnefningar
Íþróttamaður Ísafjarðarbæj-
ar árið 2004 verður útnefndur
við hátíðlega athöfn kl. 15 á
sunnudag. Samkoman fer fram
á 4. hæð Stjórnsýsluhússins á
Ísafirði. Ellefu íþróttamenn
eru tilnefndir. Útnefningin fer
fram í hófi sem bæjarstjórn,
Afreksmannasjóður og Hér-
aðssamband Vestfirðinga efna
til og verður haldið á efstu
hæð Stjórnsýsluhússins á Ísa-
firði. Þeir sem eru tilnefndir
eru eftirfarandi:
Laufey Björk Sigmunds-
dóttir, Þingeyri, Höfrungur.
Tómas Emil Guðmundsson,
Ísafjörður, Boltafélag Ísafjarð-
ar. Bragi Þorsteinsson, Ísa-
fjörður, Sundfélagið Vestri.
Markús Þór Björnsson, Ísa-
fjörður, Skíðafélag Ísafjarðar.
Jens Magnússon, Ísafjörður,
Skotíþróttafélag Ísafjarðar.
Sigurður Gunnar Þorsteins-
son, Ísafjörður, Körfuboltafé-
lag Ísafjarðar. Sveinbjörn
Hrafn Kristjánsson, Bolungar-
vík, Sæfari Siglingafélag.
Guðmundur Bjarni Jónsson,
Þingeyri, Hestamannafélagið
Stormur. Sigurður Fannar
Grétarsson, Ísafjörður, Golf-
klúbbur Ísafjarðar. Svala B.
Einarsdóttir, Ísafjörður, Hesta-
mannafélagið Hending. Stefán
Þór Ólafsson, Reynir Hnífs-
dal. – thelma@bb.is
Íþróttamaður Ísafjarðarbæjar 2004
Allar FM útvarpsútsending-
ar á Ísafirði duttu út aðfaranótt
þriðjudags. Þá náðust engar
sjónvarpsútsendingar í Skut-
ulsfirði nema frá Ríkisútvarp-
inu, en útsending þess var þó
ekki á fullum styrk. Að sögn
Eggerts Stefánssonar, raf-
eindavirkja hjá Símanum,
virðist sem rafmagnsvandamál
hafi verið orsök bilunarinnar.
„Bæði 220 volta kerfið og
48 volta kerfið eru úti. Ljósa-
vél er í húsinu á Arnarnesi og
hún er í gangi, en eitthvað
hefur gerst við þessar raf-
magnstruflanir.“ Eins og gefur
að skilja eiga tæknimenn erfitt
með að komast að biluninni.
„Við vitum ekkert hvenær
það verður hægt. Ég er ekki
farinn að kanna möguleikana
á að fara landleiðina, en er að
kanna hvort ekki verði hægt
að fara sjóleiðina og labba úr
fjörunni“, sagði Eggert í sam-
tali við blaðið snemma á
þriðjudagsmorgun.
Útsendingar útvarps
og sjónvarps lágu niðri
Endurvarpstöðin á Arnarnesi við Skutulsfjörð.
01.PM5 6.4.2017, 09:192