Bæjarins besta - 05.01.2005, Síða 3
MIÐVIKUDAGUR 5. JANÚAR 2005 3
GSM- og talsímasamband
til Súðavíkur lá niðri á þriðju-
dag eftir að snjóflóð féll á
rafmagnsstaura á Arnarnesi
um tvöleytið aðfaranótt þrið-
judags.
Þá voru NMT stöðvar á
Bæjum, Nauteyri og Vigur
einnig óvirkar vegna raf-
magnstruflana.
Símasambands-
laust við Súðavík
Snjóflóðið er talið vera um 100-150 metra breitt.
Stórt snjóflóð féll við Karlsá
á Skutulsfjarðarbraut síðdegis
á mánudag. Lögreglan á Ísa-
firði fékk tilkynningu um snjó-
flóðið kl. 16:29 og um 20 mín-
útum síðar kom tilkynning um
að lítið snjóflóð hefði fallið á
veginn um Eyrarhlíð milli Ísa-
fjarðar og Hnífsdals.Flóðið á
Skutulsfjarðarbraut var talið
vera um 100-150 metra breitt
og allt að 3-4 metrar á þykkt.
Hreif það með sér einn ljósa-
staur auk þess sem það lenti á
snjóruðningstæki. Ökumann
þess sakaði ekki og engar
skemmdir urðu á tækinu.
Fyrr um daginn féllu tvö
snjóflóð úr Búðargili og Trað-
argili í Hnífsdal. Annað flóðið
náði að hesthúsum sem þar
eru og hitt náði að fjárhúsum
við Heimabæ. Öll umferð var
bönnuð um Engidalsvog í
Skutulsfirði, frá kirkjugarðin-
um og allan hringinn að Ísa-
fjarðarflugvelli. Þar eru fjár-
hús, hesthús og sorpbrennslan
Funi, en þar féll snjóflóð á
varnargarð fyrr um daginn.
Ljósmyndari blaðsins tók
meðfylgjandi myndir er hann
ók í gegnum snjóflóðið á Skut-
ulsfjarðarbraut síðdegis á
mánudag.
– bb@bb.is
Stórt snjóflóð féll á
Skutulsfjarðarbraut
Þykkt snjóflóðsins er talið vera 3-4 metrar. Flóðið þreif með sér einn ljósastaur.
Snjóflóð féll úr Hraunsgili í Hnífsdal
Flóðið tók með sér gamla
bæinn að Hrauni í Hnífsdal
Stórt snjóflóð féll úr
Hraunsgili í Hnífsdal á
þriðjudag. Flóðið hefur
klofnað og tók annar hluti
þess með sér gamla bæinn í
Hrauni í Hnífsdal. Hinn hluti
flóðsins virðist hafa tekið
með sér spennistöð við Ár-
velli í Hnífsdal og er svo að
sjá að flóðið hafi stöðvast við
fjölbýlishús og raðhús við Ár-
velli. Sjónarvottar telja að
flóðið hafi í það minnsta brotið
glugga á þeim húsum.
Að sögn sjónarvotts hefur
flóðið farið yfir gamla bæinn
og sést þak hans nokkru
neðar en bærinn stóð. Gamli
bærinn var reistur árið 1937
en árið 1978 var byggt nýtt
íbúðarhús á jörðinni en það
slapp við flóðið ásamt úti-
húsum. Engir íbúar voru í
Hrauni þegar flóðið féll.
Öldurnar
brotnuðu hver
á annarri nokk-
uð frá landi
Öldurnar brotna nokkuð frá landi.
Mikið brim var við norðurenda eyrarinnar í Skutuls-
firði í gær. Stórar öldur gengu á land og m.a. yfir
slökkviliðsstöðina á Ísafirði, þar sem almanna-
varnanefnd bæjarins hefur aðstöðu. Þá var einnig mikið
öldurót út á miðjum Skutulsfirði og tilkomumikil sjón
að sjá brimið svo langt út á Ísafjarðardjúp.
Meðfylgjandi myndir tók Halldór Sveinbjörnsson.
Mikið og furðulegt
brim er var víða í fjörum
í Skutulsfirði í gær.
Aldan gekk á land og út
aftur þar sem hún mætir
annarri aðkomandi.
Afleiðingar þessa sjást á
meðfylgjandi myndum
þar sem öldurnar brotna
hver á annarri nokkuð
frá landi. Þá var mikið
öldurót úti í miðjum
firðinum.
– halfdan@bb.is
01.PM5 6.4.2017, 09:193