Bæjarins besta - 05.01.2005, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 5. JANÚAR 20056
ritstjórnargrein
Öðruvísi?
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
orðrétt af netinu
murinn.is – Halla Gunnarsdóttir
Mölvuspá ársins 2005
Útgefandi: H-prent ehf., kt. 600690-1169, Sólgötu 9,
400 Ísafjörður, sími 456 4560, fax 456 4564 ·
Ritstjóri: Sigurjón J. Sigurðsson, sími 892 5362, bb@bb.is ·
Fréttastjóri: Hálfdán Bjarki Hálfdánsson, sími 863 7655,
halfdan@bb.is – Blaðamenn: Halldór Jónsson, sími 892 2132
hj@bb.is – Thelma Hjaltadóttir, sími 849 8699, thelma@bb.is ·
Ritstjóri netútgáfu: Sigurjón J. Sigurðsson · Ljósmyndari:
Halldór Sveinbjörnsson, sími 894 6125, halldor@bb.is
· Ábyrgðarmenn: Sigurjón J. Sigurðsson og Halldór Svein-
björnsson · Lausasöluverð er kr. 250 eintakið með vsk.
Áskriftarverð er kr. 215 eintakið. Veittur er afsláttur til elli- og
örorkulífeyrisþega. Einnig sé greitt með greiðslukorti.
ISSN 1670 - 021X
Mölvan leit í kristalskúlu sína á dögunum og sá þar fyrir
nánast allt sem gerist á árinu 2005. Þversumma ársins er sjö og
mun það án efa hafa áhrif á stórviðburði ársins. T.a.m. má nefna
að nýtt félag verður stofnað með sjö nefndarmeðlimum og
a.m.k. sjö manns sem skipta eitthvert fólk mjög miklu máli
munu deyja á árinu. Þá verður 7. júlí merkilegur dagur þótt
erfitt sé að segja til um hvers vegna.
Alþingi verður með líflegra móti í ár. Þar takast á andstæðar
fylkingar með mismunandi stefnumál. Þó nokkrar lagabreyt-
ingar verða gerðar. Mikið verður rifist um fjölmiðla og utan-
ríkismál en núverandi forseti Alþingis mun koma með sérstakt
útspil í einhverju máli.
,,Það er heiður fyrir Íþrótta- og Ólympíusamband Ís-
lands að eiga sambandið (Íþróttasamband fatlaðra) að
og geta ljáð því stuðning. Þar standa fatlaðir jafnfætis
öðrum, með skyldum og réttindum og ábyrgð, sem hver
og einn í röðum FÍ hefur fyllilega unnið til,“ reit Ellert B.
Schram, forseti ÍSÍ, í afmælisútgáfu Hvata 2004, rits
Íþróttasambands fatlaðra, skömmu fyrir áramótin.
Daginn áður en að Samtök íþróttafréttamanna kunn-
gerðu val sitt á íþróttamanni ársins 2004 sýndi sjónvarps-
rásin Sýn mynd frá ferli hnefaleikakappans Joe Louis,
sem varð annar blökkumaðurinn til að vinna heimsmeist-
aratitilinn í þungavigt í hnefaleikum. Í myndinni kom
glöggt fram að íþróttaafrek og fordómar eiga ekki sam-
leið. Titillinn, sem hinn ungi Joe Louis vann með glæstum
hætti ,,tilheyrði“ á þeim tíma hvítamanninum, ekki svert-
ingja, sem aðeins mátti stíga fæti sínum inn á tiltekin
kaffihús og varð að sitja í sérmerktu sæti í sporvagninum.
Joe Louis hafði sömu skyldur við samfélagið og aðrir
hvað herskyldu varðaði, en hann var ekki fullgildur
þjóðfélagsþegn sem íþróttamaður. Íþróttaafrek hans voru
ekki metin til jafns við afrek þeirra, sem voru ,,öðruvísi“
en hann.
Vera má að ,,hefðin“ hafi fært íþróttafréttamönnum
einkarétt á að velja íþróttamann ársins og það sé því ekki
annara þar um að dæma. Í því sambandi er þó rétt að
benda á, að á mörgum sviðum er val á ,,manni ársins“, í
einu eða öðru samhengi, í höndum fjöldans. Með þessari
ábendingu er á engan hátt verið að gera lítið úr afrekum
þess íþróttafólks, sem trjónaði í 10 þrepa afrekströppunni,
né hinna, sem á eftir komu, en þar í hópi var maður með
tvenn silfurverðlaun á Ólympíuleikum! Gengi Ólympíu-
silfursins hefur greinilega fallið! Gull, silfur og heimsmet
á Ólympíuleikum hefði einhvern tíma þótt saga til næsta
bæjar!
Í vali íþróttafréttamanna á íþróttamanni ársins 2004
fólst því miður yfirlýsing um að íþróttafólk úr röðum
fatlaðra eigi enga möguleika á að bera hið eftirsótta
sæmdarheiti: Íþróttamaður ársins. Mál er því að linni
sýndarmennsku íþróttafréttamanna í mati á afrekum
fatlaðra íþróttamanna, sem dugar í besta falli fyrir blóm-
um og lófaklappi elítunnar á uppskeruhátíðinni. Ástæðu-
laust er að íþróttafréttamenn falli oftar á prófinu.
,,Mörg af okkar mestu og bestu afrekum í íþróttum
hafa verið unnin af fötluðu íþróttafólki“, er vitnisburður
forseta ÍSÍ. Undir þau orð skal heilshugar tekið. s.h.
Litið um öxl
Við áramót er algengt að menn líti yfir farinn
veg og eru þá oft ákveðin mál sem standa upp
úr á liðnu ári. Haft var samband við fimm ein-
staklinga og þeir spurðir hvað staðið hefði upp
úr á liðnu ári af innlendum málum, erlendum
málum og hjá þeim persónulega. Þá voru þeir
spurðir hvaða væntingar þeir bæru til nýs árs.
Kristinn Her-
mannsson, nemi:
„Markverðast á innlendum
vettvangi fannst mér hversu
félagsleg íhaldsemi fór vax-
andi. Þetta virðist vera ákveðin
þróun sem á sér stað. Siðvenju-
postular og kerfiskallar njóta
sín sem aldrei fyrr.
Erlendis er sama leiðinda-
þróunin í gangi. Kristnir ofs-
tækismenn og aðrir ofstækis-
menn fara hamförum. Homm-
ar eru farnir að ógna banda-
rísku þjóðlífi og allskyns bá-
biljur sem maður hélt að væru
dauðar eru farnar að fljóta upp
á yfirborðið.
Árið hefur verið það gott
hjá mér persónulega að ég get
pirrað mig á því að hafa núna
fyrir jólin þurft að borga 650
króna sekt til ríkissjóðs fyrir
að hafa reynt að koma með
spægipylsu með landsins. Út
af einhverju kerfisrugli sem
enginn skilur var spægipylsan
gerð upptæk.
Ég ætla að vona að á nýju
ári fari frjálslyndi, umburðar-
lyndi og skynsemi aftur að
verða kjörgildi Íslendinga og
annarra íbúa heimsins og þeir
láti af meðvirkni með kerfinu
og alls kyns íhaldsofstæki.“
Óðinn Gestsson,
framkvæmdastjóri:
„Af innlendum málum
fannst mér þessi fjölmiðlavit-
leysa standa upp úr og þá sér-
staklega þáttur forsetans sem
mér fannst fara langt út fyrir
sitt verksvið. Þá hafa fíkni-
efnamálin vakið athygli mína
og sú harka sem er komin upp
í þeim geira. Mér, eins og öðr-
um, finnst þetta mjög slæm
þróun og ég er uggandi yfir
henni. Þetta ætlar að verða eins
og í erlendum stórborgum. Þá
veldur þróunin í fjármálaheim-
inum mér áhyggjum. Stór hluti
af hagnaði fjármálafyrirtækja
kemur til vegna gengishagn-
aðar og hækkunar á verði
hlutabréfa, en lítill hluti er
hagnaður af rekstri. Þetta er
áhyggjuefni fyrir þá sem starfa
í sjávarútvegi og mér finnst
stjórnvöld ekki standa sig í að
verja samkeppnisstöðu sjávar-
útvegsins gagnvart öðrum
greinum og ég tel að efnahags-
stefna ríkisstjórnarinnar hljóti
að bíða skipbrot.
Af erlendum vettvangi þóttu
mér kosningarnar í Bandaríkj-
unum minnisstæðastar. Ég
varð fyrir verulegum von-
brigðum því ég var að vona að
menn hefðu kjark til að setja í
embætti nýjan forseta með
aðrar áherslur. Þá væri eflaust
margt öðruvísi í okkar efna-
hag. Lágdollarastefnan þjónar
ekki hagsmunum Bandaríkj-
anna til langs tíma litið og er
náttúrlega skelfileg fyrir okkur
á Íslandi sem stöndum í út-
flutningi. Þá skyggja hörm-
ungarnar í Asíu á margt annað
sem gerðist á árinu.
Af mér persónulega er það
helst að frétta að við hjónin
tókum til í eigin garði, í orðsins
fyllstu merkingu. Þá komu upp
veikindi í fjölskyldunni sem
hafa verið mjög erfið. En ég
gerði góðan samning við kaup-
endur í Bandaríkjunum, auk
annarra samninga um útflutn-
ing á ferskum fiski sem lofa
mjög góðu til langs tíma litið.
Ég ber þær væntingar til nýs
árs að gengi íslensku krónunn-
ar aðlagi sig svo menn geti
áfram unnið við sjávarútveg í
landinu. Ég er þokkalega bjart-
sýnn og held að eftirspurn eftir
fiski eigi eftir að aukast á nýju
ári.“
Bryndís Friðgeirsdóttir,
svæðisstjóri RKÍ:
„Heimastjórnarhátíð alþýð-
unnar á Ísafirði fannst mér
standa upp úr á landsvísu. Þó
svo að aðrir landsmenn hafi
kannski ekki tekið jafn mikið
eftir henni fannst mér mjög
merkilegt hvernig Vestfirð-
ingar tóku hátíðina í sínar
hendur og buðu engum nema
forsetanum. Síðan er mér
minnisstætt þegar Jón Steinar
var skipaður hæstaréttadóm-
ari. Þeir kunna að raða þessi
menn, enda kemur þetta til að
skipta miklu máli þegar taka
þarf stórar ákvarðanir sem
varða alla. Þeir vita alveg hvað
þeir eru að gera. Svo voru
gæsalappirnar hans Hannesar
alveg kostulegar.
Af erlendum málum er það
náttúrlega þetta dæmalausa
Íraksstríð sem hefur kvalið
Íslendinga að hafa tekið þátt í.
Það sér ekki fyrir endann á því
og ástandið virðist vera að
versna frekar en hitt. Þá er það
dauði Arafats, spurning hvern-
ig framhaldið verður þar. Og
að sjálfsögðu er það jarð-
skjálftinn í Asíu skömmu fyrir
áramót, hann situr í manni.
Hjá okkur persónulega
fannst mér fæðing Bryndísar
Heklu, fyrsta barnabarnsins,
merkilegust. Það er mjög
ánægjulegt að fá í heiminn
Bryndísi sem er enn minni en
ég. Síðan varð Már eiginmaður
minn fimmtugur á árinu og
við héldum upp á það í Mós-
ambík. Einnig fór sonur minn
og kærasta hans í tveggja mán-
aða heimsreisu.
Nýja árið leggst vel í mig
þó allir séu að fjasa yfir slæm-
um horfum í efnahagsmálum.
Það verður reyndar ekkert bjart
í efnahagsmálum og þetta
virkjanabrölt verður erfitt, en
í heildina held ég að þetta verði
farsælt ár.“
Kristinn Níelsson,
skólastjóri:
fats, flóðin í Asíu og kosning-
arnar í Úkraínu og allt dramað
í kringum þær. Maður verður
bjartsýnn á lífið þegar maður
sér hvernig samstaða fólksins
skilar sér og mér finnst jákvætt
að her eða lögreglu hafi ekki
verið sigað á mótmælendur.
Ógnvekjandi þótti mér hins
vegar morðið á hollenska kvik-
myndagerðarmanninum. Það
var ákveðin aðför að tjáning-
arfrelsi.
Hjá mér persónulega standa
upp úr afmæli Tónlistarskóla
Bolungarvíkur og gott veður í
sumar.
Ég ber þær væntingar til nýs
árs að þessi neikvæðu mál með
Orkubúið og ratsjárstöðina
leysist farsællega. Ég vonast
eftir áframhaldandi eftirspurn
eftir húsnæði á svæðinu og
vona að fólk leiti í auknum
mæli út á land til okkar. Þá
veit ég að það verður mikil
gerjun í listum og á þá ekki
bara við skólana heldur hljóm-
sveitir og annað. Þá vona ég
að menningarmiðstöðin Edin-
borg styrkist og fái að þjóna
betur hlutverki sínu. Að lokum
vona ég og trúi að menningar-
líf í Bolungarvík haldi áfram
að blómstra.“
Guðmundur Kristjáns-
son, hafnarstjóri
„Það sem mér finnst standa
upp úr á innlendum vettvangi
er samráð olíufélaganna, sam-
ráð og svívirðing gagnvart
þjóðinni. Það kom í ljós að
þessir menn höfðu komist upp
með það í fjölda ára að ljúga
að þjóðinni þó þeir hefðu alltaf
svarið af sér samráð.
Af erlendum málum eru það
náttúrlega þessar hörmungar
við Súmötru í Asíu sem standa
upp úr. Þetta snertir mig per-
sónulega þar sem ég bjó í
Malasíu í þrjú ár. Í bænum þar
sem ég bjó veit ég til þess að
margir kunningja minna miss-
tu báta sína, þeim skolaði á
land og brotnuðu. Sem betur
fer hef ég þó ekki heyrt um að
neinn hafi látist.
Persónulega var það vel-
gengni sonar míns á tónlistar-
sviðinu sem stóð upp úr. Ég
fylgdist með honum síðasta
sumar þegar hann var að vinna
að plötunni og hafði heyrt flest
lögin áður en þau voru fullbúin
og það er mjög gaman að heyra
hvernig þau koma út. Þá hefur
verið verulega ánægjulegt að
verða vitni að þeirri viður-
kenningu sem hann hefur hlot-
ið, hérlendis og erlendis.
Ég held að nýtt ár verði bjart
og gott. Hér á höfninni hefur
komum skemmtiferðaskipa
fjölgað um 100% milli áranna
2002 og 2004 og á næsta ári
verður 40% aukning í viðbót.“
„Af innlendum fréttum voru
markverðastar þessar í kring-
um fjölmiðlamálið, olíusam-
ráðið og útrás banka og fyrir-
tækja. Þá voru það neikvæðar
fréttir varðandi Orkubú Vest-
fjarða og ratsjárstöðina á Bola-
fjalli sem stóðu svolítið upp
úr. Af jákvæðum hlutum
fannst mér áhugaverðast
hækkandi fasteignaverð á
norðanverðum Vestfjörðum
og fjölgun íbúa í Ísafjarðarbæ.
Þá var mikið líf í alþýðutón-
listinni, hátíðin Aldrei fór ég
suður, velgengni Mugison og
fleira. Einnig er mér minnis-
stæð heimastjórnarhátíð al-
þýðunnar í ágúst.
Á erlendum vettvangi stóðu
upp úr forsetakosningarnar í
Bandaríkjunum, dauði Ara-
01.PM5 6.4.2017, 09:196