Bæjarins besta


Bæjarins besta - 05.01.2005, Side 10

Bæjarins besta - 05.01.2005, Side 10
MIÐVIKUDAGUR 5. JANÚAR 200510 Sælkeri vikunnar er Þórunn Guðmundsdóttir á Ísafirði Einfaldur ýsuréttur og melónu- salat Sælkeri vikunnar býður upp á einfaldan ýsurétt því hún segir að eftir allan þenn- an þunga jólamat sé tilvalið að breyta aðeins til og gæða fjölskyldunni á fiski. Þórunn mælir hún bera réttinn fram með hrásalati sem einnig er uppskrift af. Að lokum er heitur eftirréttur sem lengi hefur verið vinsæll á heimili Þórunnar. Hún segir að kak- an hafi einnig komið sér vel með kaffinu og sé best borin fram með rjóma eða ís. Einfaldur ýsuréttur Ný ýsa beinlaus, roðflett og flökuð er skorin smátt. Stráið salti yfir og dreypið sítrónusafa yfir. Látið standa í nokkrar mínútur. Fiskurinn er þerraður og velt upp úr hveiti. Stráið salti og sítrónu- pipar yfir eftir smekk. Steik- ið fiskinn á pönnu upp úr olíu eða smjöri. Setjið í eld- fast mót. Sjóðið upp á pönn- unni með vatni og bætið Kínasoja út í. Ef vill má bæta rjóma eða matarjóma út í eða heitum osti. Hellið yfir fiskinn í mótinu. Bakið í ofni í 10 mínútur. Tilvalið er að bera réttinn fram með nýju brauði eða hvítlauksbrauði og eins er mjög gott að bera hann fram með banana steiktum upp úr smjöri og chutny sósu. Melónusalat Ísbergskál ½ gul melóna ½ græn melóna Ferskt sellerí Muldar valhnetur Grófskerið ísbergið, seller- íið og melónurnar. Einnig má nota perur, epli og fleiri ávexti eftir smekk. Bætið valhnetum við eftir smekk. Sósa með salatinu er melónujógúrt eða jógúrt eftir smekk. Sívinsæll eftir- réttur eða kaka 1 bolli hveiti ½ bolli sykur 1 tsk salt 1 tsk natrón ½ blandaðir ávextir 1-2 egg ½ bolli kókosmjöl ½ bolli púðursykur Hrærið öllum hráefnun- um saman nema kókosmjöl- inu og púðursykrinum. Blandið því saman og stráið yfir deigið. Bakið við 180°- 200° í um 30-40 mínútur. Ég skora á Hörpu Böðv- arsdóttur að koma með gómsæta uppskrift. Bensínorkan ehf., vill byggja sjálfsafgreiðslustöð á Skeiði Býðst til að greiða kostn- að við breytingar á lóð Bensínorkan ehf. hefur með bréfi til bæjarstjórnar Ísafjarð- arbæjar boðist til að kosta nauðsynlegar breytingar á skipulagi og akvegum til þess að flýta fyrir því að fyrirtækið geti sett upp sjálfsafgreiðslu- stöð fyrir eldsneyti á lóðinni að Skeiði 1 á Ísafirði. Í því húsi er meðal annars verslunin Bónus. Fyrir skömmu sótti fyrir- tækið um leyfi til þess að setja upp eldsneytisafgreiðslu á lóð- inni og tók umhverfisnefnd já- kvætt í erindið en gat þess jafnframt að til þess að hægt væri að verða við því þyrfti að breyta skipulagi og fjármunir til þess væru ekki á fjárhags- áætlun næsta árs. Bæjarráð tók boð Bensínorkunnar fyrir á fundi fyrir áramót og tók já- kvætt í boðið og fól bæjarstjóra að ræða við framkvæmda- stjóra Bensínorkunnar ehf. um málið. – hj@bb.is Fyrirhuguð bensínstöð verður á Skeiði á Ísafirði. Óðinn Gestsson, framkvæmdastjóri Fiskvinnslunnar Íslandssögu á Suðureyri Ánægður með ákvörðun bæjarstjórnar Óðinn Gestsson framkvæm- dastjóri Fiskvinnslunnar Ís- landssögu á Suðureyri segist ánægður með þá ákvörðun bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar að veita 60 tonna byggðakvóta til báta sem leggja upp hjá fyrirtækinu. Óðinn hefur sem kunnugt er gagnrýnt harðlega úthlutanir byggðakvóta á liðn- um árum. Í reglugerð sjávar- útvegsráðuneytisins um út- hlutun byggðakvótans segir að tillögur sveitarstjórna skuli byggjast á almennum hlutlæg- um reglum og jafnræðissjónar- miða skuli gætt. Aðspurður hvort að hann telji ákvörðun bæjarstjórnar uppfylla þessi skilyrði segir Óðinn svo vera gagnvart sínu fyrirtæki. Hann segist ekki hafa mótað þær aðferðir sem beitt verður þegar kemur að skiptingu þess kvóta sem út- hlutað var enda sé hann ekki í hendi. „Ég reikna með því að menn setjist saman yfir þau mál þegar endanleg úthlutun verður ljós“, segir Óðinn. Lárus G. Valdimarsson bæj- arfulltrúi segir að það kunni aldrei góðri lukku að stýra að sveitarstjórn skuli gert að mis- muna þegnum sínum eins og alltof oft hefur orðið raunin við úthlutun byggðakvóta að hans mati. Óðinn segist sam- mála Lárusi og tímabært sé að finna þessum málum annan farveg en þau hafa verið í und- anfarin ár. „Hinsvegar verða stjórnmálamenn að klára þau verkefni sem þeim eru falin. Það gengur ekki að vísa þeim málum á herðar annarra,“sagði Óðinn Gestsson. – hj@bb.is Óðinn Gestsson. Kómedíuleikhúsið á Ísafirði Kómedíuleikhúsið mun setja á svið einleik byggðan á Íslendingasögunni Gísla Sögu Súrssonar. Elfar Logi Hann- esson flytur einleikinn en leik- stjóri að þessu sinni er Jón Stefán Kristjánsson. Þeir vinna nú baki brotnu við hand- ritsskrif og stefnt er að því að leikurinn verði frumsýndur um miðjan febrúar. Frumsýnt verður á söguslóðum á Þing- eyri. Einnig verður sýnt á Flat- eyri, Suðureyri, Súðavík, Bol- ungarvík og á Ísafirði. „Kómedíuleikhúsinu hefur þegar verið boðið að sýna leik- inn á tveimur staðarhátíðum hér vestra í sumar. Í sumar stendur svo til að skella Gísla Súra yfir á engilsaxnesku og sýna fyrir ferðamenn sem sækja Vestfirði heim“, segir í annál Kómedíuhússins fyrir árið 2004. Kómedíuleikhúsið mun halda einleikjahátíð í lok júní sem ber yfirskriftina ACT ALONE. Leikhúsið hefur Einleikur byggður á Gísla sögu Súrssonar fengið Jón Viðar Jónsson og Brynju Benediktsdóttur til að undirbúa og skipuleggja hátíð- ina. Stefnt er að því að bjóða upp á þrjá íslenska einleiki, einn erlendan gestaleik, fyrir- lestra um einleiksformið og síðast en ekki síst masterclass í leiklist. Hátíðin verður haldin dagana 30. júní – 3. júlí 2005. Aðgangur að hátíðinni er ókeypis en þátttökugjald verð- ur á masterclass. – thelma@bb.is Frá fyrirlestri Jóns Viðars á fyrstu einleikjahátíð Kóm- edíuleikhússins á Ísafirði í sumar. Nú hefur hann gengið til liðs við leikhúsið við undirbúning næstu hátíðar. 01.PM5 6.4.2017, 09:1910

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.