Bæjarins besta


Bæjarins besta - 05.01.2005, Side 12

Bæjarins besta - 05.01.2005, Side 12
MIÐVIKUDAGUR 5. JANÚAR 200512 STAKKUR SKRIFAR Er gatan greið? Stakkur hefur ritað vikulega pistla í Bæjarins besta í mörg ár. Skoðanir hans á mönnum og málefn- um hafa oft verið umdeildar og vakið umræður. Þær þurfa alls ekki að fara saman við skoðanir útgefenda blaðsins. Þrátt fyrir það bera ábyrgðarmenn blaðsins ábyrgð á skrifum Stakks á meðan hann notar dulnefni sitt. Smáauglýsingar Gleraugu með blárri, ferkant- aðri umgjörð, töpuðust fyrir jól. Finnandi vinsamlegast hringi í síma 866 9552. Óska eftir sófasetti og horn- sófa. Uppl. í síma 843 0101. Vantar snjóbrettaskó nr. 45. Uppl. í síma 456 6202 eða 845 2683. Til sölu er MMC Pajero árg. 95, ekinn 161 þús. km, sjálfskiptur, sumar- og vetrardekk. Uppl. í síma 456 5210 og 661 5042. Til leigu er 2ja herb. íbúð að Urðarvegi 78 með sérinngangi. Uppl. í símum 456 3928 eða 456 4323. Til sölu er Suzuki Vitara árgerð 1995, breyttur á 30" með nýleg- um nagladekkjum og sumar- dekkjum. Skipti á Toyota Cor- olla eða sambærilegum bíl koma til greina. Uppl. í símum 456 4324 eða 846 7479. Íbúð óskast til leigu! Óska eftir 4-5 herb. íbúð til leigu á Ísafirði. Uppl. gefur Jónína í símum 587 3538 eða 450 3100 (skilaboð). Óska eftir snjóbretti ca. 120 cm að stærð og viðeigandi skó og bindingar. Upplýsingar í síma 456 3135. Óska eftir að kaupa ódýran en sæmilega traustan bíl. Upplýs- ingar í síma 863 7655. Bráðvantar sem fyrst til kaups eða leigu, 4-5 herb. íbúð á Ísa- firði. Upplýsingar í símum 863 3880 eða 699 8710. Óska eftir 2ja herb. íbúð eða lítilli íbúð til leigu á eyrinni á Ísafirði. Uppl. í síma 456 5298. Aðalfundur Átthagafélags Sléttu- hreppinga verður haldinn 9. janúar nk. kl. 15 í Sigurðarbúð. Til sölu er eldhúsborð og stól- ar, píanó, uppþvottavél og ís- skápur. Uppl. í síma 456 4338. Til sölu er MMC Lancer, 4x4, station, árg. 1996. Upplýsingar í síma 861 7845. Nýtt ár er gengið í garð. Til hamingju og megi það færa ykkur gleði, lesendur góð- ir. Ekki er ætlunin að spá neinu um árið. Það verður senn liðið. Engu að síður er for- vitnilegt að velta því fyrir sér hvað tekur við. Hörmungar hamfara í Indlandshafi fylgja okkur út árið. Ef til vill er merkilegt að íbúar Svíþjóðar og annarra Norðurlanda telja að ríkið beri fulla ábyrgð á þeim í sumarfríi langt út fyrir landamærin. Ef út af ber á að sækja þá strax. Of hæg viðbrögð þýða að utanríkisráðherra beri að segja af sér. Viðbrögð annarra ríkja voru hægari. Getur verið að við höfum gengið of langt í þjónustunni við ríkisborgara okkar hér á norðurhjara veraldar. Ljóst má nú vera að velferðarkerfi Skandinavíu er ætlað að ná um allan heim séu það ríkisborgarar þeirra sem eiga í hlut. Við erum góðu vön á Íslandi undir sömu formerkjum. Grunur er uppi um að heimamenn á hamfarasvæðunum séu annars flokks í þessu samhengi. Gengur það? Eru það skilaboð Norðurlandanna til umheims að við séum öðrum æðri? Náttúruhamfarir eru okkur Vestfirðingum rækilega kunnar. Árið 2005 heilsar með ógn snjóflóða. Við höfum lært talsvert síðasta áratuginn. Gripið hefur verið til varna, bæði mannvirkja og viðbúnaðarkerfis. Þær eru lægri raddirnar nú um að það sé hræðsla og gunguskapur að moka ekki vegi strax og halda þeim ætíð opnum. Engum stendur nær en íbúum Vestfjarða að virða varúðarráðstafanir og gæta ávallt fyllsta öryggis í umgengni við náttúruöflin. Náttúran kostaði mörg mannslífin á síð- ustu öld. Við skulum geyma með okkur þessa varúð út allt árið. Ekki mun af veita. Fróðlegt að velta fyrir sér boðskap forsetans, forsætisráðherra og biskups. Nú skal fjölskyldunni skipað í fyrirrúm ásamt menntun. Forvitnilegt verður að sjá hvort stefnu verður breytt. Stjórnarandstaðan með Guðjón Arnar, Steingrím J. Sig- fússon og Össur Skarphéðinsson í fararbroddi andskotast út í ríkisstjórnina fyrir að lækka skatta. R listinn í Reykjavík fer fyrir sveitarstjórnum landsins hækkun álaga á fjölskyldufólk. Hver getur tekið mark á hástemmdum yfirlýsingum að velferð fjölskyldunnar skuli höfð í fyrirrúmi? Ekki var hún ofarlega í hugum aðila í kjara- deilu kennara. Enn er sú skoðun viðruð hvort ekki eigi að kanna aðrar leiðir í rekstri grunnskóla, en að ríki eða sveitarfélög annist hann. Þjóðin þolir ekki kennaraverkfall. Tvennt mun fylgja okkur næsta ár. Annars vegar ógnir umferðarinnar. Ekkert lát er á slysum, þrátt fyrir betri bíla og vegi. Ökumennirnir batna ekki. Sífellt bætast ungir og óreyndir í hópinn. Hækka ber bílprófsaldurinn í 18 ár hið allra fyrsta. Taka verður á vandanum sem fylgir eldri ökumönnum í vaxandi og harðnandi umferð, þar sem ,,kappakstur” ræður því miður ríkjum. Hinn stóri vandinn, sem versnar á árinu, er fíkniefnaógnin. Henni verður ekki bægt frá fyrr en þjóðfélagið verður með þeim hætti að fólki líði vel. Aukin löggæsla er bráðnauðsynleg og hana ber enn að efla. En hún dugir ekki ein. Aukin fjöldi barna sem leggjast í fíkniefni ætti enn að herða á því, að gera fjölskyldunni kleift að skrimta. En vonirnar eru daufar. Fjölskyldan mun verða út undan á þessu ári, hvað sem síðar kann að gerast. Hún verður að bjarga sér sjálf. Árið mun færa okkur fram á veginn til góðs eða ills. Við skulum gera okkar besta. Munum að mannkynið er eitt og fleirum þarf að bjarga en Vesturlandabúum í nauð að heiman. Einar Hreinsson á Ísafirði skrifar Opið bréf til stjórnar Heilbrigð- isstofnunar Ísafjarðarbæjar Ég undirritaður óska hér með eftir því að stjórn Heil- brigðisstofnunar Ísafjarðar- bæjar geri opinberlega grein fyrir þeirri ákvörðun sinni að taka sérstakt gjald af langlegu- sjúklingum fyrir þvott á eigin fatnaði þeirra. Jafnframt óska ég eftir því að stjórnin geri opinberlega grein fyrir þeim sparnaði sem orðið hefur (eða ætlaður er) af einkavæðingu þvottahúss stofnunarinnar. Enn fremur óska ég eftir því að ársreikningar stofnunarinn- ar fyrir árið 2003 og rekstrar- áætlanir 2004 og 2005 verði birtar opinberlega, og þá þann- ig að almenningur fái séð hvar hinir ýmsu kostnaðarliðir í þessum 600-700 milljóna rek- stri liggja. Ef þessi ákvörðun er tekin samkvæmt fyrirmælum af einhverju tagi úr ráðuneytum, þá óska ég eftir að þau verði einnig birt. Ef stjórn Heilbrigð- isstofnunar Ísafjarðarbæjar er kunnugt um að þessi sparnað- arleið sé í samræmi við stefnu ríkisstjórnarinnar í heilbrigðis- eða velferðarmálum þá óska ég eftir því að fá upplýst hvar sú stefna kemur fram. Þessar óskir ber ég fram vegna þess að ég fæ alls ekki skilið hvers vegna þetta sam- félag telur sig ekki lengur hafa efni á að skola plögg af gömlu fólki sem lagst er í kör. Ég fullyrði að allt frá landnámi hafi aldrei orðið svo bágt ástand í landinu að ekki hafi verið hægt að sinna þessu lítil- ræði án þess að það ylli teljandi búsifjum, eða hafi haft áhrif á forgangsröðun mikilvægari verkefna. Ef stofnanir samfé- lagsins geta ekki lengur sinnt þessu smáverki, eða vilja það ekki, án þess að sultast í smá- aura viðkomandi sjúklinga þá eru pípulagnir hagkerfisins ekki lengur í lagi. Þá er þetta samfélag gengið inn á ugg- vænlegar brautir og ástæða til að spyrna við fótum. Ég skora á stjórn Heilbrigð- isstofnunar Ísafjarðar að falla frá þessari ákvörðun. Hún er rakin mistök, sem okkur öllum getur orðið á, ef út í það er farið, og fengist að ég hygg fyrirgefin ef hún verður aftur- kölluð. Það getur ekki verið, að eina lausnin á rekstrarjafn- vægi stofnunarinnar sé að afla fjár af eftirstandandi vasapen- ingum einstaklinga, sem þegar hafa verið sviptir réttindum úr almannatryggingakerfinu og þær tekjur þeirra látnar renna beint til Heilbrigðisstofnunar- innar. Það er í stærri pósta að sækja í okkar samfélagi og með ríflegra svigrúmi. Ísafirði 29. desember 2004, Einar Hreinsson, kt. 041154-2259, Urðarvegi 28, 400 Ísafirði.Einar Hreinsson. ÍÞRÓTTAMAÐUR ÍSAFJARÐARBÆJAR Kjör íþróttamanns Ísafjarðarbæjar fyrir árið 2004 fer fram í Stjórnsýslu- húsinu á Ísafirði, 4. hæð, sunnudaginn 9. janúar 2005, kl. 15:00. Allt íþróttaáhugafólk og velunnarar eru boðin velkomin. Dagskrá verður með hefðbundnum hætti. Glæsilegar veitingar. Ísafjarðarbær, Héraðssamband Vestfirðinga , Afreksmannasjóður. Fimm ára gömul stelpa var flutt á sjúkrahús með heila- hristing eftir að hafa lent á bíl á Ísafirði um klukkan átta mið- vikudagskvöldið 29. desember sl. Stúlkan var að renna sér á sleða í brekku ofan við Selja- landsveg þegar hún rann niður á veginn og lenti á vinstra fram- horni bifreiðar sem ók hjá. Ung stúlka varð fyrir bíl Ísafjörður Netagerð Vestfjarða hf., hefur verið sameinuð Neta- gerð Friðriks Vilhjálmssonar hf., undir nafninu Fjarðanet hf. Þá hefur Gúmmíbátaþjón- ustan ehf., á Ísafirði og Gúmmíbátaþjónusta Austur- lands ehf., verið sameinaðar inn í sama fyrirtæki. Er sam- einað fyrirtæki með starfsemi á sjö stöðum á landinu; rekur alhliða veiðarfæraþjónustu á sex stöðum, gúmmíbátaþjón- ustu á tveimur stöðum ásamt þvottastöð fyrir fiskeldispoka á einum stað. Áætluð heildar- velta er um 400 milljónir á þessu ári og starfsmannafjöldi um 40. Jón Einar Marteinsson verð- ur framkvæmdastjóri Fjarða- nets. Netagerð Vestfjarða er dótturfélag Netagerðar Frið- riks Vilhjálmssonar, sem á um 81% hlutafjár í félaginu. Gúmmíbátaþjónusta Austur- lands er að fullu í eigu Neta- gerðar Friðriks Vilhjálmsson- ar og Gúmmíbátaþjónustan er að fullu í eigu Netagerðar Vestfjarða. Sameiningin mun gilda frá og með 1. janúar 2005. Netagerðir sameinast 01.PM5 6.4.2017, 09:1912

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.