Bæjarins besta - 05.01.2005, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 5. JANÚAR 2005 13
Glæsileg flug-
eldasýning
Björgunarfélag Ísafjarð-
ar efndi til mikillar flug-
eldasýningar við Hauga-
nes í Skutulsfirði síðdegis
á sunnudag. Samhliða
var haldin hin árlega ára-
mótabrenna sem fresta
þurfti í tvígang vegna
veðurs. Páll Önundarson
var á svæðinu og tók þar
meðfylgjandi myndir.
Húsið við Hafnarstræti 17 á
Ísafirði verður rifið í nánustu
framtíð ef ekki finnst kaupandi
að því. Eins og kunnugt er
eignast Ísafjarðarbær húsið
fyrir nokkrum mánuðum, en
það hefur lengi þótt hinn mesti
umferðartálmi á Eyrinni.
„Við höfum auglýst það til
sölu og vorum að vona að ein-
hver myndi sjá sér hag í að
kaupa það og flytja. Við eigum
til dæmis lóð undir það við
Fjarðarstræti og á fleiri stöð-
um“, segir Halldór Halldórs-
son, bæjarstjóri Ísafjarðarbæj-
ar. „Mér er sagt að húsið sé
vel byggð og að hægt sé að
gera það upp. Þó hefur áhugi
ekki verið nægur hingað til og
ef ekki gengur að selja húsið
verður það rifið.“
Mikil og góð lóð er við húsið
að sunnan- og vestanverðu.
Aðspurður segir Halldór að
hún hafi verið skipulögð undir
stórar verslunar- og/eða þjón-
ustubyggingar. „Hugmyndin
er sú að stór hús, eins og mál-
arablokkin, Hótel Ísafjörður,
Stjórnsýsluhúsið og fleiri
rammi inn gamla bæinn“, segir
Halldór.
– halfdan@bb.is
Húsið við Hafnarstræti 17 á Ísafirði
Rifið í nánustu framtíð
ef ekki finnst kaupandi
Húsið við Hafnarstræti 17.
01.PM5 6.4.2017, 09:1913