Bæjarins besta - 05.01.2005, Side 16
Stofnað 14. nóvember 1984 · Sími 456 4560 · Veffang: www.bb.is · Verð kr. 250 m/vsk
www.bb.is – daglegar fréttir á netinu
Lögreglan stöðvaði för karlmanns á þrítugsaldri
Tekinn með fíkniefni
Á fimmtudag í síðustu viku
stöðvaði lögreglan á Ísafirði
för karlmanns á þrítugsaldri
og stúlku á sautjánda ári á
Kirkjubólshlíð í Skutulsfirði
sem virtust vera að koma ak-
andi innan úr Ísafjarðardjúpi.
Grunur lék á um að ökumaður
væri með fíkniefni í fórum
sínum, en hann hefur áður
komið við sögu vegna fíkni-
efnamála. Við leit í bifreiðinni
fundust tæp 4 grömm af ætluðu
amfetamíni og tæp 3 grömm
af ætluðum kannabisefnum.
Stúlkunni var ekið til síns
heima og komið í hendur for-
eldris, að leit lokinni. Tilkynn-
ing um afskipti lögreglunnar
af stúlkunni verður send barna-
verndaryfirvöldum, eins og
lög gera ráð fyrir. Karlmann-
inum var sleppt að leit og
yfirheyrslu lokinni.
Athygli vekur að um er að
ræða sama aðila og var stöðv-
aður í Álftafirði aðfaranótt
21. desember sl. Þá var hann,
ásamt fleirum, að koma ak-
andi frá Reykjavík. Þá fund-
ust um 50 grömm af kanna-
bisefnum við þá handtöku.
– bb@bb.is
ir að tekið hafi verið tillit til
þeirra sjónarmiða að aðeins
megi úthluta byggðakvótanum
til fiskiskipa. Guðni segist
vonast til þess að tillagan verði
samþykkt í sjávarútvegsráðu-
neytinu en sveitarstjórnum bar
að skila tillögum um úthlutun
fyrir 1. janúar.
Lárus G. Valdimarsson seg-
ir það auðvitað vekja furðu að
hvorki ráðuneytismenn, ef
marka megi viðtal við ráðu-
neytisstjóra á bb.is, né fulltrúar
meirihluta bæjarstjórnar hafi
áttað sig á útlínum helstu leik-
reglna við úthlutun byggða-
kvóta. „Eru þó allir þessir að-
ilar sérstakir áhugamenn um
þann óskapnað sem þetta
stjórnkerfi, og allur umbún-
aður þess, er orðinn. Ég vona
nú að allur þessi vandræða-
unnar Kambs á Flateyri og Ís-
landssögu á Suðureyri. Guðni
Geir Jóhannesson formaður
bæjarráðs Ísafjarðarbæjar seg-
tonna byggðakvóta sem kom í
hlut Ísafjarðarbæjar verði út-
hlutað til báta og skipa sem
landa afla sínum til Fiskvinnsl-
Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar
samþykkti með sex samhljóða
atkvæðum að leggja til við
sjávarútvegsráðuneytið að 120
gangur í bæjarstjórn Ísafjarð-
arbæjar í máli þessu kenni
stjórnvöldum að horfa í fram-
tíðinni til einstakra svæða við
aðgerðir sem þessar en ekki til
einstakra byggðarlaga á sama
svæði. Það kann aldrei góðri
lukku að stýra að sveitarstjórn
skuli gert að mismuna þegnum
sínum eins og alltof oft hefur
orðið raunin við úthlutun
byggðakvóta“, segir Lárus.
Aðspurður segist Lárus ef-
ast um að máli þessu sé lokið
með samþykkt bæjarstjórnar.
„Því miður sýnist mér stjórn-
sýslan vera með þeim hætti í
þessu máli að við hana verði
eflaust gerðar athugasemdir.
Hvort þær athugasemdir koma
úr ráðuneytinu eða frá ein-
staklingum eða fyrirtækjum
skal ég ekkert um segja.“
– hj@bb.is
Stjórnsýsluhúsið á Ísafirði.
Samþykkt að úthluta byggðakvóta til skipa
sem landa hjá Kambi hf. og Íslandssögu ehf
Íbúar í þremur húsum við
Dísarland í Bolungarvík
ákváðu á sunnudagskvöld að
fara ekki að tilmælum al-
mannavarnarnefndar Bol-
ungarvíkur um að yfirgefa
hús sín. Dvöldu því átta íbúar
í þremur húsum sem nefndin
óskaði eftir að yrðu rýmd.
Gylfi Þór Gíslason, varð-
stjóri í lögreglunni í Bolung-
arvík segir það mjög leitt að
fólk skuli ekki hlíta tilmælum
sem þessum. Hann segist
hafa heyrt þá skýringu hjá
íbúum að lítil hætta væri á
snjóflóðum eins og veðurspá
hljóðaði um kvöldið. Það hafi
hinsvegar verið mat Veður-
stofu Íslands að rétt væri að
rýma þar sem mikilli snjó-
komu var spáð. Gylfi segir
að lögreglan hafi ekki treyst
sér í neinar aðgerðir gagnvart
því fólki sem kaus að yfirgefa
ekki hús sín.
Sem kunnugt er fjarlægði
lögreglan einn íbúa við
Dísarland úr húsi sínu síðast-
liðinn vetur þegar hús voru
rýmd vegna snjóflóðahættu.
Gylfi sagði að þar sem engin
viðurlög væru við óhlýðni
sem þessari ætti lögreglan
erfitt um vik. „Við upplýst-
um fólk um stöðu mála en
meira treystum við okkur
ekki til þess að gera. Þarna
er um fullorðið fólk að ræða
sem vill ekki hlíta tilmælum
yfirvalda og þar við situr.“
– hj@bb.is
Íbúar við Dísarland í Bolungarvík
Neituðu að yf-
irgefa hús sín
Dísarland er efsta gatan í Bolungarvík.
Fjölmenni var við ára-
mótabrennu á Hauganesi
Áramótabrenna Sigurðar Sveinssonar frá
Góustöðum og lærisveina hans var á Hauganesi
á sunnudag. Henni hafði þá verið frestað í tví-
gang vegna veðurs og ófærðar. Mun slíkt afar
fátítt í áratuga sögu brennuhalds þeirra félaga
í Skutulsfirði. Mikill snjór hafði sest í brennuna
en Sigurður og félagar voru fljótir að ná upp
dampi. Fjölmenni var viðstatt brennuna að vanda
og einnig var Björgunarfélag Ísafjarðar með
flugeldasýningu. Þegar þetta er ritað hafði ekki
tekist að kveikja í brennu þeirra Hnífsdælinga
og var óákveðið hvenær það yrði næst reynt.
– hj@bb.is
01.PM5 6.4.2017, 09:1916