Bæjarins besta


Bæjarins besta - 01.04.2015, Page 6

Bæjarins besta - 01.04.2015, Page 6
6 MIÐVIKUDAGUR 1. APRÍL 2015 Unnar Steinunnar Kristjánsdóttur frá Bæ í Súgandafirði – Hlíf II Ísafirði Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu Sérstakar þakkir færum við heimahjúkrun á Ísafirði og starfsfólki Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða fyrir góða umönnun. Aðstandendur gestum Edinborg Bistro. Furðufatadagur verður í Tungu- dal og á Seljalandsdal á föstudag- inn langa. Löng hefð er fyrir því að fjölskyldan skemmti sér sam- an í dölunum tveimur þennan dag og er fólk hvatt til að mæta uppáklætt. Kveikt verður á grilli um hádegi og börnin geta málað sig við undirleik tónlistar og sæl- gæti mun venju samkvæmt rigna af himni. Íþróttaálfurinn og Solla stirða munu heimsækja Tungudal af þessu tilefni. Kl. 10 hefst svo- kölluð helgiganga frá Kirkjubóli í Valþjófsdal í Önundarfirði að Holti og frá kl. 13-16 verður list- rænn sölumarkaður á vegum Fé- lags vestfirskra listamanna í skátaheimilinu á Ísafirði. Páll Óskar skemmtir ungviðinu í Edinborg kl. 16 á föstudaginn langa. Klukkustund síðar sýnir leikdeild Höfrungs á Þingeyri Galdrakarlinn í OZ í félagsheim- ilinu og Kómedíuleikhúsið sýnir Gísla Súrsson og Grettir í Arnar- dal kl. 20. Á sama tíma hefjast órafmagnir tónleikar AFÉS í Ísafjarðarkirkju þar sem fram koma fjölmargir listamenn. Á sama tíma hefst tónlistarveisla í Húsinu sem standa mun til kl. 04. Þar koma fram Sigríður Thor- lacius, Snorri Helgason, Bjartey og Gígja úr Ylju, hljómsveitin Hörmung, Smiths Tribute og hljómsveitin Boogie Trouble. Síðan mun DJ Matti á Rás 2 halda uppi stuðinu til kl. 04. Svo- kallaður bræðingur hefst í Ísa- fjarðarbíói kl. 22. Þar koma fram Saga Garðarsdóttir, Hugleikur Dagsson og Kæsti safírinn. Á miðnætti hefst síðan stórdans- leikur með Helga Björns og SSSól í Krúsinni og stuðdans- leikur með Páli Óskari í Edin- borgarhúsinu. Laugardaginn 4. apríl verður boðið upp á íþrótta- og leikjadag í Íþróttamiðstöð Þingeyrar, Pop- Up markaður verður í anddyri Dekurstofu Dagnýjar og páska- eggjamót HG, sem ætlað er börnum fæddum 2003 eða síðar, hefst á Seljalandsdal og í Tungu- dal kl. 13. Opið hús verður í Safnahúsinu á Ísafirði frá kl. 13- 16, páskaleikur verður í Náttúru- gripasafninu í Bolungarvík frá kl. 13-17 og svokallaðir súputón- leikar verða í Krúsinni frá kl. 14- 16. Svokölluð heimkomuhátíð stendur yfir í Vestrahúsinu frá kl. 15:00-16:30. Þar munu fyrir- tæki kynna starfsemi sína. Hátíð- in er ætluð öllum þeim sem hafa áhuga á að búa á norðanverðum Vestfjörðum. Aldrei fór ég suður hátíðin hefst á Grænagarði kl. 17 og stendur til miðnættis. Þar kemur fram fjöldi tónlistarmanna sem getið er um í annarri frétt. Presi- dent Bongo úr Gus Gus skemmtir í Krúsinni frá kl. 23 og stórdans- leikur með Sniglabandinu hefst á miðnætti í Edinborgarhúsinu. Í Húsinu mun DJ Óli Dóri sjá um að skemmta lýðnum. Dagskrá sunnudagsins (páska- dags) hefst kl. 14 með garpamóti í svigi í Tungudal og í göngu á Seljalandsdal. Tónlistarveisla verður í Húsinu frá kl. 16-18 þar sem fram koma Valdimar Guð- mundsson, Snorri Helgason, Bjartey og Gígja úr Ylju og Sigríður Thorlacius. Biggi Ol- geirs skemmtir í Félagsheimilinu í Bolungarvík frá miðnætti og vinsælasta hljómsveit landsins AmabaDama lokar páskunum með partíballi í Krúsinni. Snigla- bandið verður á Edinborg. svæðin í Tungudal og á Selja- landsdal verða opin frá kl. 10-21 og kl. 11 hefst árlega páskaeggja- mót KFÍ og Nóa Síríus í íþrótta- húsinu á Torfnesi. Á hádegi hefst síðan skíða- skotfimi á Seljalandsdal og frá kl. 13-17 verður boðið upp á páskaleik í Náttúrugripasafninu í Bolungarvík. Um er að ræða þrautaleik sem ætlaður er börnum að fjórtán ára aldri. Um kaffi- leytið hefst síðan snjóbretta- keppni í Tungudal. Upphitunar- kvöld Aldrei fór ég suður hefst í Krúsinni kl. 20 og á Hótel Ísafirði verður boðið upp á tónlistarveislu þar sem fram koma Bjartey og Gígja úr Ylju, Sigga T. Snorri Helga og Valdimar úr samnefndri hljómsveit. Þá verður boðið upp á sögukvöld í Kaupfélagi Súg- firðinga og Biggi Olgeirs skemmt- ir í Húsinu. DJ Rebel skemmtir Ísafjarðar masserar frá Ísafjarð- arkirkju að Silfurtorgi ásamt fé- lögum úr Skíðafélagi Ísfirðinga. Á Silfurtorgi verður boðið upp á heitt kakó og pönnukökur og því næst tekur við sprettganga Núps. Fjölbreytt dagskrá verður í boði fimmtudaginn 2. apríl. Skíða- Mikið verður um að vera á Ísa- firði um páskana líkt og endra- nær. Skíðavikan er fastur punktur í tilverunni yfir hátíðarnar sem og tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður. Skíðavikan á Ísafirði verð- ur sett kl. 16:30 miðvikudaginn 1. apríl á Silfurtorgi. Lúðrasveit Fjölbreytt dagskrá um páskana

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.