Bæjarins besta - 01.04.2015, Qupperneq 8
8 MIÐVIKUDAGUR 1. APRÍL 2015
Leita skýringa á
hruni refastofnsins
Refastofninn á Hornströnd-
um hrundi síðastliðið sumar og
er ástand hans svipað og það
var á áttunda áratug síðustu
aldar þegar hann var í lág-
marki. Í byrjun síðasta sumars
virtist allt með felldu en í júlí
og ágúst var hins vegar orðið
ljós að got hafði misfarist hjá
mörgum pörum sem hafði
aldrei gerst frá því rannsóknir
hófust. Ester Rut Unnsteins-
dóttir, spendýravistfræðingur
hjá Náttúrufræðistofnun Íslands
og fyrrum forstöðumaður
Melrakkasetursins í Súðavík,
fjallaði nýlega á Hrafnaþingi
NÍ um refastofninn á Horn-
ströndum.
Hugsanleg skýring sem
vísindamenn vinna með er að
veðurlag síðla vetrar og vorhret
gætu hafa haft neikvæð áhrif á
varp fugla og þar með óbein
áhrif á tímgun refa. Fundist
hefur mikið magn kvikasilfurs í
tófum við ströndina á Íslandi.
Verið gæti að mengun sé meiri
á þessu svæði en annars staðar
þar sem uppistaða fæðunnar
eru sjófuglar og sjórekin spen-
dýr, og ekki er hægt að útiloka
sjúkdóma. Þá bendir margt til
þess að ágangur ferðamanna
hafi neikvæð áhrif á afkomu
yrðlinga á svæðinu.
Önnur ljósmóðir sinnir ómskoðunum
Ljósmóðir sem venjulega hef-
ur farið til Ísafjarðar tvisvar sinn-
um í mánuði til að ómskoða barns-
hafandi konur hefur verið leyst
af hólmi, og mun önnur ljós-
móðir sinna ómskoðunum á
svæðinu frá og með næsta mán-
uði. Sú er búsett í Reykjavík og
mun því einnig þurfa að ferðast
vestur til að sinna ómskoðunum.
Frá þessu er greint á mbl.is. Eins
og greint hefur verið frá kom-
ust ófrískar konur á Vestfjörðum
ekki í ómskoðun á Heilbrigðis-
stofnun Vestfjarða á Ísafirði frá
því í nóvember 2014 fram í fe-
brúar á þessu ári, og hafa nokkr-
ar þurft að fljúga suður til að
komast í sónar. Ástæðan er sú að
ljósmóðirin sem venjulega hefur
komið þangað tvisvar í mánuði
hefur ekki komist vegna veðurs.
Nú hefur ljósmóðirin, Ásthildur
Gestsdóttir, sagt starfi sínu lausu
frá og með 1. apríl og ríkti mikil
óvissa um framhaldið fyrr í mán-
uðinum.
Ásthildur á eftir að koma einu
sinni áður en hún hættir, en að
sögn Þrastar Óskarssonar, for-
stjóra Heilbrigðisstofnunar Vest-
fjarða, tekur hin ljósmóðirin við
strax í apríl og verður því ekkert
rof á þjónustunni. Ljósmóðirin
mun koma tvisvar sinnum í mán-
uði eins og Ásthildur gerði, en
Þröstur segir komurnar þó einnig
munu ráðast af því hversu mikil
þörfin verður. Hann segir nýju
ljósmóðurina þekkja vel til, þar
sem hún hafi leyst af hjá Heil-
brigðisstofnun Vestfjarða áður.
Í samtali við mbl.is fyrr í mán-
uðinum sagði Þröstur að stefnt
væri að því að ljósmóðir sem er á
svæðinu myndi læra að ómskoða
og taka við af Ásthildi. Hann
segir þetta ennþá stefnuna, en
þar sem þjálfun í ómskoðun geti
tekið yfir ár hafi verið nauðsyn-
legt að fá aðra ljósmóður til að
sinna ómskoðunum á meðan.
„Það er langtímaverkefni. Við
byrjum á þessu og síðan tekur
hitt sinn tíma,“ segir hann.
Mikil umræða myndaðist í
kjölfar óvissunnar sem var uppi
fyrr í mánuðinum, og var meðal
annars rætt um málið á Alþingi.
Lýsti Sigríður Ingibjörg Ingadótt-
ir, þingmaður Samfylkingarinn-
ar, þar yfir áhyggjum af stöðu
barnshafandi kvenna á Vestfjörð-
um. Þá var samþykkt ályktun á
fundi bæjarstjórnar Ísafjarðar-
bæjar, þar sem kom fram að
ástandið á heilbrigðisstofnuninni
væri óásættanlegt með öllu og
afturhvarf mörg ár aftur í tím-
ann. Voru aðilar málsins hvattir
til að leita allra leiða til að hægt
yrði að bjóða upp á ómskoðanir
á heimaslóðum, svo verðandi
mæður þyrftu ekki að ferðast til
Reykjavíkur í slíka skoðun.
„Þetta voru mikil ósköp og það
er mikið búið að kalla „úlfur,
úlfur,““ segir Þröstur. Hann seg-
ir umræðuna þó ekki hafa breytt
neinu þar sem þetta hafi verið
forgangsverkefni frá upphafi. Þá
segir hann engin rof hafa orðið
af mannavöldum, þar sem veður
hafi verið það eina sem setti strik
í reikninginn. Nú sjái hann hins
vegar fram á að starfsemin kom-
ist í góðar horfur.
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða.