Bæjarins besta - 01.04.2015, Síða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 1. APRÍL 2015
Starfsmenn óskast
ÍAV óskar eftir að ráða bílstjóra og verkamenn
til starfa við gerð ofanflóðavarna á Ísafirði í sum-
ar. Mikil vinna í boði.
Nánari upplýsingar gefur Jón Gunnar í síma
660 8126.
þess að jafnréttishreyfingin var
ekki komin eins vel á veg og núna
í dag, þá komst maður kannski
upp með meira en stelpurnar.“
– Ertu þá kannski karlremba?
„Nei, ég held að ég kæmist
ekkert upp með það!“ segir Helgi
og hlær. „Ég er líka svo vel giftur,
það er búið að siða mig svo vel
til!“
Giftust eftir 25 ára sambúð
Eiginkona Helga er Vilborg
Halldórsdóttir frá Ísafirði, eins
og áður hefur komið fram. „Við
erum búin að vera saman í bráð-
um þrjátíu og átta ár, Vilborg var
tvítug og ég nítján ára þegar við
kynntumst. Við giftum okkur svo
loksins árið 2002 eftir tuttugu og
fimm ára sambúð og höfum verið
gift síðan.“
Börn þeirra Vilborgar og Helga
eru þrjú. Elstur er Orri, 36 ára,
búsettur í Singapore þar sem hann
er að ljúka mastersnámi. Hann
býr þar ásamt kærustu sinni og
fyrsta barnabarni þeirra Vilborg-
ar og Helga. Í miðjunni er Björn
Halldór, 31 árs, búsettur í London
ásamt kærustu sinni, sem er þar
við nám, en sjálfur er hann út-
skrifaður úr Listaháskóla Íslands
sem tónskáld. Yngst barnanna
þriggja er Hanna Alexandra,
rúmlega tvítug. Hún er stúdent
frá MH en er núna á fimm mánaða
ferðalagi um Ameríku.
Mér finnst rigningin góð
En hverfum núna í lokin aftur
í tímann og rifjum upp gamlan
og góðan texta.
Húsið er að gráta alveg eins og
ég. Það eru tár ár rúðunni sem
leka svo niður veggina. Gæsin
flýgur á rúðunni, eða er hún að
fljúga á auganu á mér? Ætli húsið
geti látið sig dreyma, ætli það fái
martraðir?
Hárið á mér er ljóst, þakið á
húsinu er grænt, ég Íslendingur,
það Grænlendingur. Mér finnst
rigningin góð, la-la-la-la-la, o-ó.
Mér finnst rigningin góð, la-la-
la-la-la, o-ó.
Einu sinni fórum við í bað og
ferðuðumst til Balí. Við heyrðum
í gæsunum og regninu. Það var í
öðru húsi, það var í öðru húsi.
Það var í öðru húsi, það á að flytja
húsið í vor.
Mér finnst rigningin góð, la-
la-la-la-la, o-ó ...
– Viðtal: Hlynur Þór
Magnússon.
Ljósmynd: Spessi.
Eftirspurn eftir raforku hér-
lendis eykst með hverju árinu
eins og fréttir af kísilverum,
gagnaverum og stækkunum ál-
vera bera með sér. Orkubú Vest-
fjarða fylgist með þessari þróun
á markaði í ljósi þess að einungis
40% af raforkuþörf Vestfjarða
er framleidd í fjórðungnum. Sölvi
R. Sólbergsson, framkvæmda-
stjóri orkusviðs Orkubúsins, seg-
ir stefnu fyrirtækisins vera að
minnka vægi raforku í húsakynd-
ingu.
„Við erum að sigla inn í nýja
tíma. Byggðalínuhringurinn er
sprunginn og veruleg eftirspurn
eftir orku. Við stefnum t.d. að
því leynt og ljóst að losa okkur
úr rafmagni á Suðureyri af því að
þar erum við með þennan grunn
sem er heita vatnið,“ segir Sölvi.
Í dag er heitt vatn í Súgandafirði
leitt í kyndistöð sem er kynt með
rafmagni eða olíu eftir atvikum.
Framtíðin liggur að sögn Sölva í
að nota lághitavatn í varmadælur
og minnka mikilvægi rafmagns í
orkuþörfinni verulega. „Hvað
varðar aðra staði þá er ekki búið
að útiloka að það finnist lághiti í
nægilegu magni á öðrum þéttbýl-
isstöðum. Við þurfum að fara
markvisst í að finna lághita sem
er hægt að setja inn á varmadælur.
Við vitum af lághita á Ísafirði og
í Bolungarvík og það er berghiti
á Patreksfirði en ekki fundist
vatn. Ég á von á því að það fari
eitthvað að gerast í þessu á næsta
ári og það verði settir peningar í
Orkusjóð,“ segir Sölvi.
Fyrir liggur hjá Orkubúinu
bora eftir vatni á Laugum í Súg-
andafirði. „Það eru tvær holur
þar og er búið að afskrifa aðra.
Fyrr en seinna þurfum við að
koma upp annarri holu en það
ekkert ákveðið um tímasetningar
enn. Núna er verið að fara í gegn-
um staðsetningar á holu,“ segir
hann.
– smari@bb.is
Leitað verði markvisst að lághita
Sveitarfélögin við Djúp, Aldrei
fór ég suður og fyrirtæki á svæð-
inu standa fyrir svokallaðri heim-
komuhátíð laugardaginn 4. apríl.
Hátíðinni er ætlað að kynna þau
fyrirtæki sem starfa á norðan-
verðum Vestfjörðum og þau
tækifæri sem felast í því að taka
vinnuna með sér vestur. Einnig
verður kynning á öðrum þáttum
sem hafa áhrif á búsetu, hvað
hefur breyst á síðustu 20 árum
og hvað það er sem gerir samfé-
lagið fyrir vestan að góðum stað
til að búa á. Tilgangur heim-
komuhátíðar er einnig að sýna
íbúum svæðisins, brottfluttum og
aðkomufólki fjölbreytileika at-
vinnulífsins og hversu mikla
möguleika nútímasamfélagið
hefur upp á að bjóða.
Allir þátttakendur fá pláss á
opna svæðinu í Háskólasetri Vest-
fjarða. Þátttakendur hafa frjálsar
hendur með hvernig þeir nýta
plássið, hvort sem er með kynn-
ingarstöndum, tölvum eða öðrum
tækjum en þátttakendum er uppá-
lagt að reyna að hafa plássið eins
spennandi og kostur er, til dæmis
með gagnvirkum leiðum. Á dag-
skrá heimkomuhátíðar verða auk
kynninga frá þátttakendum svo-
kallaðar örkynningar og hug-
myndahorn. Á örkynningum
verða ýmis verkefni sem eru í
gangi á svæðinu kynnt og á hug-
myndahorni geta allir sem sækja
hátíðina komið með hugmyndir
að starfi eða þjónustu sem væri
hægt að hefja á svæðinu.
– smari@bb.is
Heimkomuhátíð á páskum
Heimkomuhátíð til að heilla og lokka nýja íbúa vestur.