Bæjarins besta


Bæjarins besta - 01.04.2015, Side 18

Bæjarins besta - 01.04.2015, Side 18
18 MIÐVIKUDAGUR 1. APRÍL 2015 Sælkeri vikunnar er Þóra Björk Elvarsdóttir frá Ísafirði Paella með kínóa og mangókremi Það sem mér finnst skemmti- legast við að elda mat er að gefa öðrum að borða og þetta Paella, sem ég ætla að gefa ykkur uppskrift af, hefur komið hverjum þeim á óvart sem smakkað hefur, sem eykur enn á gleði mína við að elda mat. Það skemmir heldur ekki fyrir að uppskriftin er góð fyrir kroppinn, en hún er fengin úr einni af bókum Þorbjargar Haf- steinsdóttur. Svo ætla ég að gefa ykkur uppskrift af synd- samlega góðri súkkulaði-hrá- köku sem ég held að svíki eng- ann. Ég verð samt að taka fram að ég reyni eftir fremsta megni að nota alltaf lífrænt hráefni, þó dýrara sé, því þeir sem það hafa prófað vita að maturinn verður bæði bragðmeiri og bragðbetri fyrir vikið. Og það sem mér finnst það allra besta við að borða mat er að vita að hann er bæði hollur og án allra þeirra aukaefna sem kroppur- inn þarf ekki á að halda. Paella með kínóa og mangókremi 2 dl kínóagrjón, þurristuð í potti en það þarf að hræra í á meðan þau eru ristuð þar til þau fara að „poppa“ en þá eru 8 dl af vatni hellt yfir og suðan látin koma upp. Lækkað í hitan- um, lokið sett á og látið krauma í 25 mínútur, eða þar til grjónin verða mjúk án þess að þau verið grautarkennd. Það þarf að hafa auga með grjónunum því þau mega ekki brenna við né klístrast saman. Þegar vatnið er að verða búið af þeim þarf að taka þau af hellunni og setja svolitla ólífuolíu yfir þau. 1 poki þýddar rækjur, steiktar í olífuolíu og smátt skornum hvít- lauk, í ½ mínútu á hvorri hlið. Tekið af og sett til hliðar meðan grænmetið er græjað. 1 kúrbítur, þveginn og flysjað- ur langsum með grænmetisflysj- ara ½ fennikka í fíngerðum striml- um 1 rauð paprika, fyrst skorin langsum og svo í langa granna strimla. ½ tsk fennikufræ Salt og nýmalaður pipar Saffranduft á hnífsoddi eða nokkrir saffranþræðir (má sleppa) Ólífuolía og kókosolía sett á pönnu með grænmetinu og krydd- inu og það svitað þar til það mýk- ist en tekið af pönnunni áður en það verður slappt. Settu aðeins meiri olíu á pönn- una og ristaðu þar 1 tsk af gurke- meje og settu kínóagrjónin út á pönnuna svo þau fái á sig gulan lit. Settu þau svo á fat, grænmetið yfir og rækjurnar þar ofan á. Þetta er svo toppað með safa úr hálfri sítrónu og berkinum (ef sítrónan er lífræn og ljúf). Magnókrem 1 þroskað mangó sem er flysj- að og skorið í bita (má líka nota frosna mangóbita sem búið er að þýða). 6-8 msk kaldpressuð jómfrúar repjuolía 3-4 msk sítrónusafi Gróft sjávarsalt 2 hnífsoddar vanilluduft Öllu blandað saman með töfra- sprota þar til áferðin verður rjómakennd og mjúk. Súkkulaði-hrákaka Kökubotn: 250 gr pekan hnetur 150 gr döðlur 80 gr gróft kókosmjöl 60 ml kókosolía 20 gr kakóduft Ögn sjávarsalt Setjið allt í matvinnsluvél og maukið. Smyrjið hringform (sem hægt er að taka botninn af og er ca 26 cm í þvermál) og þrýstið deginu upp að miðjum hliðum formsins. Látið það bíða í ísskáp eða frysti á meðan fyllingin er löguð. Fylling: 250 gr kasjúhnetur sem lagðar hafa verið í bleyti í 4-6 klst (vatninu hellt af). 85 gr kakóduft 250 ml vatn 100 ml agavesiróp 120 ml kókosolía 1 tsk vanilluduft Setjið allt í matvinnsluvél og þeytið þar til silkimjúkt. Smyrjið fyllingunni á botninn og frystið yfir nótt. Taka þarf kökuna út nokkru áður en hún er borin fram þar sem hún getur orðið nokkuð hörð undir tönn nýkomin úr frysti. Frábært er að skreyta hana með ferskum berjum og ávöxtum og jafnvel bera fram með rjóma eða heimagerðum ís. Verði ykkur að góðu. Ég skora á elskulegu systur mína hana Hrafnhildi Ýr Elv- arsdóttur að vera næsti sæl- keri vikunnar. Góð fasteigna- sala á Vestfjörðum Góð fasteignasala hefur verið á Vestfjörðum undanfarin miss- eri og virðist sem framhald verði þar á. „Það hefur verið góð sala, það er vorfílingur í fólki. Það vantar samt íbúðir á eyrinni og í kringum eyrina,“ segir Guð- mundur Óli Tryggvason, fast- eignasali hjá Fasteignasölu Vest- fjarða á Ísafirði. Samkvæmt upp- lýsingum blaðsins er nokkuð um að eldra fólk sé að minnka við sig og það yngra að stækka við sig. Verð fasteigna er aðeins á uppleið og fer að mestu eftir stað- setningu og ástandi eigna. Gott einbýlishús á Ísafirði fer á ca. 120 þúsund krónur á fer- metra og jafnvel meira eftir ástandi eignarinnar. Svipað verð á íbúðum á eyrinni á Ísafirði. Stöðugt ástand er í Bolungarvík en þar munu mörg hús vera til sölu sakvæmt upplýsingum blaðsins. Að sögn Guðmundar Óla er einn- ig góð sala á suðurfjörðunum þ.e. á Patreksfirði, Tálknafirði og á Bíldudal.

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.