Bæjarins besta


Bæjarins besta - 13.05.2015, Qupperneq 2

Bæjarins besta - 13.05.2015, Qupperneq 2
2 MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 2015 Versnandi rekstur Ísafjarðarbæjar Rekstrarniðurstaða A-hluta bæjarsjóðs Ísafjarðarbæjar var neikvæð um 25 milljónir króna á síðasta ári. Fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir 52 milljóna króna af- gangi samanborið við 187 millj- ónir króna árið 2013. Ársreikn- ingur Ísafjarðarbæjar var sam- þykktur á bæjarstjórnarfundi í gær. Rekstrarniðurstaða A og B hluta er jákvæð um 78 milljónir sem er 29 milljónum krónum meira en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir. A og B hluti skiluðu 302 milljóna króna afgangi árið 2013. Til A-hluta telst bæjarsjóður sem sinnir starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatt- tekjum. Til B-hluta teljast stofn- anir og fyrirtæki í meirihlutaeigu Ísafjarðarbæjar og eru reknar sem fjárhagslega sjálfstæðar einingar. Heildartekur Ísafjarðarbæjar og stofnana voru í fyrra 3.520 milljónir og lækka úr 3.598 millj- ónum árið 2013. Veltufé frá rekstri lækkar um 252 milljónir króna milli ára, var 443 milljónir árið 2013 en 191 milljón í árs- reikningi 2014. Veltufé frá rekstri segir til um fjárfestingargetu sveitarfélagsins og sömuleiðis getu þess til að greiða niður skuldir. Skuldir Ísafjarðarbæjar hækkuðu á síðasta ári um rúmar 500 milljónir króna og heildar- skuldir bæjarsjóðs og stofnana eru 5,8 milljarðar, þar af eru líf- eyrisskuldbindingar 1,1 milljarð- ur. – smari@bb.is 39 milljóna króna sekt fyrir skatta- lagabrot Héraðsdómur Vestfjarða hefur dæmt athafnamann á Ísafirði til að greiða 39 milljónir króna í sekt fyrir skattalagabrot á árunum 2006 – 2011. Í ákæru Em- bættis sérstaks saksóknara var honum gefið að sök að hafa á tímabilinu ekki staðið skil á virðisaukaskatti að fjárhæð 19 milljónir króna. Ákærði gekkst við brotun- um og leit dómurinn til þess við ákvörðun refsingar. Hann gerði þá kröfu að hann yrði dæmdur til vægustu refsingar er lög leyfa og refsing verði að öllu leyti skilorðsbundin. Auk sektargreiðslu er hann dæmdur í sex mánaða fangelsi en refsingin fellur niður að tveimur árum liðn- um að uppfyltum ákvæðum um almennt skilorð. Hann hefur fjórar vikur til að greiða sektina og skal ella sitja í fangelsi í sex mánuði. Ákærði hefur tvisvar áður verðið sakfelldur í Héraðs- dómi Vestfjarða fyrir brot gegn skattalögum. Árið 2005 var hann dæmdur til 11 milljóna króna sektar og í sex mánaða skilorðsbund- ið fangelsi og 2008 var hann dæmdur til greiðslu 11 millj- ónar króna sektar og í 2ja mánaða skilorðsb. fangelsi.

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.