Bæjarins besta - 13.05.2015, Page 6
6 MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 2015
Fangelsi fyrir hættulega líkamsárás
Héraðsdómur Vestfjarða hefur
dæmt 25 ára karlmann í sex mán-
aða fangelsi fyrir sérstaklega
hættulega líkamsrárás, með því
að hafa aðfararnótt laugardagsins
20. september 2014, við veitinga-
staðinn Edinborgarhúsið á Ísa-
firði, slegið mann með gleríláti í
andlitið með þeim afleiðingum
að hann hlaut nokkra skurði
vinstra megin á andliti. Ákærði
mætti við þingfestingu málsins
og viðurkenndi þá háttsemi sem
honum er gefin að sök í ákæru.
Farið var með málið samkvæmt
ákvæðum 164. gr. laga nr. 88/
2008 um meðferð sakamála og
það tekið til dóms án frekari sönn-
unarfærslu eftir að sækjandi og
verjandi ákærða höfðu tjáð sig
um lagaatriði og ákvörðun viður-
laga. Um málavaxtalýsingu er
skírskotað til ákæru.
Játning ákærða fær fulla stoð í
gögnum málsins. Sannað er með
játningu ákærða og öðrum gögn-
um málsins að ákærði hefur gerst
sekur um þá háttsemi sem honum
er gefin að sök og er brot hans
rétt heimfært til refsiákvæða í
ákæru. Ákærði er fæddur árið
1990. Samkvæmt vottorði saka-
skrár ríkisins hefur hann fimm
sinnum síðan árið 2008 gengist
undir sektargerð eða verið dæmd-
ur til refsingar. Það sem hér skipt-
ir máli er að hann var með dómi
Héraðsdóms Reykjaness 9. jan-
úar 2009 dæmdur í eins mánaða
fangelsi skilorðsbundið í tvö ár
fyrir brot gegn 219. gr. almennra
hegningarlaga nr. 19/1940. Þá
var hann með dómi Héraðsdóms
Suðurlands 13. mars 2009 dæmd-
ur í tveggja mánaða fangelsi skil-
orðsbundið í tvö ár fyrir brot gegn
244. gr. almennra hengingarlaga.
Voru brot þau sem ákærði var
þá sakfelldur fyrir talin vera
hegningarauki vegna þeirra brota
sem ákærði var sakfelldur fyrir
með dómi 9. janúar 2009 og
gekkst undir með sektargerð 12.
mars 2008 vegna brots gegn lög-
um um ávana- og fíkniefni.
Ákærði stóðst skilorð dómsins
frá 13. mars 2009 og verður því,
með vísan til 61. gr. almennra
hegningarlaga, ekki talið að dóm-
urinn hafi ítrekunaráhrif á ákvör-
ðun refsingar nú. Við ákvörðun
refsingar ákærða er litið til ský-
lausrar játningar hans og afleið-
inga brotsins og hættueiginleika
verknaðarins, sbr. 2. og 3. tölu-
liður 1. mgr. 70. gr. almennra
hegningarlaga.
Fresta skal fullnustu refsingar-
innar og skal hún falla niður að
tveimur árum liðnum frá upp-
kvaðningu dóms þessa haldi
ákærði almennt skilorð. Ákærði
greiðir allan sakarkostað málsins,
20.000 krónur.
– bb@bb.is
Hagnaður tíunda árið í röð
Afkoma Orkubús Vestfjarða
var óviðunandi á síðasta ári að
mati Kristjáns Haraldssonar
orkubússtjóra. Hagnaður fyrir
skatta nam 112,3 milljónum
króna samanborið við 278 millj-
ónir árið 2013. Fyrirtækið skilar
hagnaði 10 árið í röð. Í árskýrslu
fyrirtækisins segir Kristján Har-
aldsson orkubússtjóri að afkoman
sé óviðunandi, hvort sem horft er
til fjárfestingarþarfar eða ávöxt-
unar eigin fjár þess. Afkoman er
mun slakari en áætlanir gerðu
ráð fyrir og segir Kristján að það
skýrist af kostnaðarauka vegna
skerðingar Landsvirkjunar á af-
hendingu á orku fyrir hitaveitu-
katla.
Í lok febrúar í fyrra boðaði
Landsvirkjun skerðingu á raforku
inn á katla hitaveitna Orkubúsins
vegna óvenjulágrar vatnsstöðu í
miðlunarlónum sínum. Þessi
skerðing stóð í rúma tvo mánuði.
Orkubúið þurfti að kynda hita-
veitur sínar með olíu að mestu
meðan þetta ástand varði og varð
aukinn kostnaður Orkubúsins um
200 milljónir króna af þessum
sökum.
Rekstrartekjur hækkuðu milli
ára, fóru úr 2.117 milljónum árið
2013 í 2.208 milljónir árið 2014.
Eignir Orkubúsins í árslok 2014
voru alls 6.962 milljónir og
heildarskuldir alls 1.350 millj-
ónir. Eigið fé nam því alls 5.612
milljónum sem er um 81 % af
heildarfjármagni. Afskriftir árs-
ins voru 265 milljónir króna.
Á árinu 2014 var 779 milljón-
um varið til fjárfestinga, þar af
voru tengigjöld og vinna greidd
af öðrum 23,2 millj. kr. Helstu
framkvæmdir voru bygging nýrra
aðveitustöðva í samvinnu við
Landsnet, á Ísafirði og í Bolung-
arvík og framkvæmdir vegna
endurnýjunar Fossárvirkjunar
hófust. Allar fjárfestingar voru
kostaðar af eigin fé fyrirtækisins
eða greiddar af þeim sem þeirra
óskuðu.
– smari@bb.is
Færri kom-
ast en vilja
Vegna anna hjá Landhelg-
isgæslunni þarf að fresta
hreinsunarferð á Hornstrand-
ir um viku. Hálfdán Bjarki
Hálfdánsson, upplýsinga-
fulltrúi Ísafjarðarbæjar, segir
það eðlilega vera forsendu
fyrir ferðinni að koma rusli
sem safnast í burtu af staðn-
um og lykilatriði að fá Land-
helgisgæsluna með í verk-
efnið. „Við höfum fengið
svar um að þeir ætla að hjálpa
okkur, en eru því miður
uppteknir á þeirri helgi sem
lagt hafði verið upp með.
Við verðum því að fresta
hreinsuninni um viku og
ætlum að fara laugardaginn
30. maí,“ segir hann.
Hugmyndin er að fara
snemma morguns þann 30.
maí og týna saman rusl yfir
daginn, grilla á staðnum og
koma til baka um kvöldið.
Nákvæmlega hvenær komið
verður til baka er óvíst, en
það verður eftir kvöldmat.
Aðsóknin hefur verið fram-
ar vonum og búið er að fylla
alla báta. „Það er frábært að
vita til þess að fólk hafi svona
mikinn áhuga á að gjalda
landinu til baka það sem það
hefur gefið okkur,“ segir Hálf-
dán Bjarki.
Síðustu misseri hefur Vél-
smiðja ÞM á Hnífsdalsvegi smíð-
að grindur og palla fyrir sérút-
búna Toyota Hilux jeppa sem
notaðir eru á Suðurskautslandinu.
„Þetta eru grindur undir sex hjóla
Hilux jeppa frá Arctic Trucks.
Við erum búnir að smíða nokkrar
grindur og palla fyrir þá,“ segir
Haraldur Hákonarson járnsmið-
ur. Hiluxarnir sem fara á Suður-
skautið eru engir venjulegir
jeppar eins og sést á meðfylgjandi
mynd enda aðstæður þar afar
erfiðar. Aðspurður hvað valdi að
Arctic Truck láti smíða grind-
urnar vestur á fjörðum segir Har-
aldur það hafa byrjað þegar hann
vann fyrir fyrirtækið í Noregi.
„Svo erum við bara svona klárir,“
segir hann og hlær.
Fyrir utan verkefni fyrir Arctic
Truck er nóg að gera í járnsmíð-
inni. „Það er alveg vitlaust að
gera hjá okkur. Við erum fjórir í
fullu starfi og svo grípur pabbi
ennþá í þetta og mamma er enn
með bókhaldið,“ segir Haraldur.
Fyrir þá sem ekki vita eru for-
eldrar hans þau Þröstur Marsell-
íusson og Halldóra Magnúsdóttir.
Arctic Trucks smíðar bílana á
grunni Toyota Hilux. Breytingin
felur í sér að skipt er um grind í
bílunum og sett í ný grind sem
Arctic Trucks hefur hannað. Þá
eru gerðar miklar breytingar á
drifbúnaði og yfirbyggingu auk
þess sem í bílunum eru fjölmarg-
ar sérhæfðar lausnir, þar með
talið 6 hjóla drif fyrir 44 tommu
dekk. Burður bílsins er þrefald-
aður og olíutankar taka 650 lítra.
Arctic Tucks hefur nú þegar
breytt á þriðja tug bíla til notkunar
á Suðurskautslandinu sem eru í
notkun hjá mörgum af stærstu
pólarstofnunum heims.
Grindur í Suðurskautsjeppa
smíðaðar á Hnífsdalsveginum
Hafþór Ingi Haraldsson járnsmiður við pall sem fer á sex hjóla Hilux frá Arctic Trucks.