Bæjarins besta


Bæjarins besta - 13.05.2015, Qupperneq 8

Bæjarins besta - 13.05.2015, Qupperneq 8
8 MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 2015 Krossgötur Segja má Hermann B. Þor- steinsson á Ísafirði, yfirleitt kall- aður Hemmi múrari, hafi kúvent lífi sínu á allra síðustu árum. Sumarið 2013 eða fyrir tæpum tveimur árum sagði hann skilið við gamla fyrirtækið sitt og vinn- ur núna að nýju og stóru verkefni á allt öðrum vettvangi. Hermann og eiginkona hans skildu en núna á hann kærustu þó að enn haldi þau hvort sitt heimilið. Hann er ekki lengur með leitarhund held- ur eru hann og kærastan hans að þjálfa upp hund til annars verk- efnis, fyrsta hundinn sem ætlaður til slíks hér á landi. Og hann þjáist af sjúkdómi sem fyrir nokkrum árum fór að segja til sín fyrir alvöru og tekur frá hon- um bæði tíma og orku. Hermann Björn Þorsteinsson er 45 ára, sem sagt maður á besta aldri. Hann er fæddur og uppalinn á Flateyri og byrjaði barnungur að vinna eins og algengt var í sjávarplássunum fyrir vestan og miklu víðar. Á unglingsaldri fór hann suður og byrjaði þar að læra múrverk, kom síðan til Ísa- fjarðar átján ára gamall og hefur átt þar heima síðan. Ásamt Mikka, leitarhundinum sínum, varð Hermann landskunn- ur fyrir sameiginlega framgöngu þeirra félaga í björgunarstörfun- um eftir snjóflóðin hörmulegu í Súðavík og á Flateyri á sínum tíma. Hermann er búsettur í Fífu- tungu 7, í nýjasta hverfinu inni í firði á Ísafirði, en það er einmitt hugmyndum og framtakssemi hans einna mest að þakka að það byggðarhverfi varð að veruleika. Alltaf með einhver plön Í frétt á bb.is þann 1. ágúst 2013 segir: Hermann Þorsteinsson, einn af stofnendum stærsta verktaka- fyrirtækis Vestfjarða, Vestfirskra verktaka, hefur selt eignarhlut sinn [þriðjungshlut] í fyrirtækinu og tengdum félögum til meðeig- enda sinna, þeirra Garðars Sig- urgeirssonar og Sveins Inga Guðbjörnssonar. Þremenning- arnir stofnuðu félagið fyrir 10 árum. Hermann segir enga sérstaka ástæðu fyrir því að hann selji hlut sinn í fyrirtækinu. Hann seg- ist verða félögum sínum innan handar um óákveðinn tíma. Her- mann hefur verið í bygginga- bransanum frá árinu 1990 en hann rak áður fyrirtækið Múr- kraft ehf. á Ísafirði. „Ég er alltaf með einhver plön. Það eru mörg og skemmtileg tækifæri á þessu svæði,“ segir Hermann, sem var ófús til að gefa upp hvað hann tæki sér fyrir hendur. En núna skal Hermann spurð- ur: Hvers vegna fórstu út úr fyrir- tækinu og hvað ertu að gera núna? Er komið að því núna að þú sért tilbúinn að gefa það upp? „Ég var búinn að vera lengi í byggingageiranum og langaði að breyta til, auk þess sem heilsan hefur ekki verið góð. Það voru nú aðalástæðurnar. Síðan urðu á þeim tíma ákveðnar breytingar í mínu lífi, við konan mín vorum að skilja og þess háttar, og þetta var einfaldlega hluti af þessu upp- gjöri öllu.“ Perlur fjarðarins „Það sem ég er að gera núna? Ég er í samkrulli við tvo gamla Flateyringa, Guðmund Konráðs- son og Halldór Bragason, og einn aðfluttan, Bryndísi Sigurðardótt- ur. Við erum að reyna að finna sameiginlega sýn allra heima- manna og ferðaþjóna í Önundar- firði til að markaðssetja fjörðinn sem vænlegan stað til að heim- sækja. Við höfum rætt mikið við fólkið hér í Önundarfirði um það hvert sé helsta aðdráttarafl svæð- isins og ætlum að reyna að „branda“ fjörðinn. Þetta er helsta viðfangsefni mitt um þessar mundir, að efla ferðaþjónustu í Önundarfirði. Núna í febrúar stofnuðum við félag sem heitir Perlur fjarðarins og höfum verið hægt og sígandi að vinna að þessu verkefni síðan. Við fengum styrk frá Vaxtar- samningi Vestfjarða, sem hjálp- aði mikið til að farið var af stað.“ Því má skjóta hér inn, að styrkj- um til atvinnumála kvenna var úthlutað fyrir stuttu. Meðal þrjá- tíu og þriggja verkefna sem styrki fengu að þessu sinni voru tvö vestfirsk, annað þeirra einmitt verkefnið Perlur fjarðarins á Flateyri, sem fékk eina milljón króna „til markaðssetningar á markaðssetri fyrir Önundarfjörð, samþættingar og samvinnu ferða- þjónustufyrirtækja í firðinum“. Meira um það síðar í þessu við- tali. Væntanlega gengið með sóríasis alla tíð „Hluti af þessum breytingum öllum hjá mér núna síðustu árin er líka að ég fékk sóríasis og mikla verki í liði. Einnig fékk ég brjósklos og fór í aðgerð vegna þess fyrir jólin 2013 og er enn að glíma við bakverki og verki niður í fót. Ég hef verið að glíma við þetta í nokkur ár. Sennilega er ég búinn að vera með þetta í mörg ár í tánöglum en það var alltaf talað um að þetta væri fótasveppur. En svo fór þetta að koma fram víðar og varð ansi svæsið. Þegar ég fékk greiningu á þessu var sagt að væntanlega hefði ég geng- ið með sóríasis alla mína tíð án þess að hann kæmi fram fyrr en svona seint. Það er basl að eiga við þennan sjúkdóm, eins og auð- vitað alla aðra sjúkdóma. Þetta tekur frá manni bæði tíma og orku.“ Byrjaði bráðungur að vinna ýmis störf Eins og áður sagði er Hermann upprunninn á Flateyri. Faðir hans er Þorsteinn Guðbjartsson, venju- lega kallaður Steini á Hesti, frá Efrihúsum á Hesti í Önundarfirði. Móðir Hermanns hét Sigrún Bern- ódusdóttir. „Hún dó þegar ég var ellefu ára, þannig að á uppvaxtarárun- um þurfti maður svolítið að sjá um sig sjálfur. Við vorum þrjú systkinin, ein hálfsystir sem þá var tólf ára og albróðir sem var þriggja ára. Það kom talsvert í hlut okkar eldri systkinanna að hjálpa til á heimilinu og aðstæð- urnar voru kannski svolítið öðru- vísi en gengur og gerist.“ Mjög snemma byrjaði Her- mann að vinna, byrjaði að hjálpa til í sláturhúsi þegar hann var sjö-átta ára gamall. Á sumrin var hann mikið í sveit hjá Halldóri Mikkaelssyni í Breiðadal í Ön- undarfirði þangað til vinnan í slát- urhúsinu tók við á haustin. Þegar hann komst á unglingsár fór hann að vinna við að beita og í frysti- húsinu og fór síðan á sjó. Nám hjá Ella Skafta og stofnun Múrkrafts Hermann var einn vetur í Hér- aðsskólanum á Reykjum í Hrúta- firði og síðan tvo vetur í Héraðs- skólanum í Reykjanesi við Ísa- fjarðardjúp. Eftir það fór hann til Reykjavíkur og byrjaði ári síðar eða 1986 að læra múrverk hjá Helga Rafnssyni múrarameist- ara. Um páskana 1987 fluttist hann aftur vestur, settist að á Ísafirði og hélt áfram í múrara- náminu hjá Elíasi Skaftasyni og kláraði það 1990. Strax upp úr því fór hann að vinna sjálfstætt sem múrari, stofnaði fyrirtæki sem hét Múr- kraftur og vann einn í því fram til 1995. Jafnframt var hann í meist- aranámi og útskrifaðist það sama ár. Þá tóku sig saman í ákveðnu verkefni fjórir múrarar á Ísafirði, auk Hermanns þeir Elías Skafta- son, Örn Sveinbjarnarson og Jón Þorláksson, en þeir höfðu allir ver- ið að vinna sjálfstætt hver um sig. Garða-múr og Vestfirskir verktakar Á þessum tíma var verið að byggja kirkjuna á Ísafirði og þeir félagar tóku sig saman og inntu múrverkið við hana af hendi. Upp úr því stofnuðu þeir fyrirtækið Garða-múr, þannig að segja má að kirkjan hafði sameinað þá. Auk múrverks var Garða-múr með hellulagnir og fleira sem snýr að frágangi garða. Það fyrir- tæki var starfandi fram til ársins 2000. Þá fluttist Örn til Reykja- víkur, félaginu var splittað upp en Hermann fór aftur að vinna einn í Múrkrafti, sem hann hafði átt allan tímann, með þeirri und- antekningu að Pétur Albert Sig- urðsson var með honum í hálft annað ár. Þessi lota Hermanns í Múrkrafti stóð fram á árið 2003. Þá um haustið tóku sig saman þrír iðnaðarmenn á svæðinu, auk Hemma múrara smiðirnir Garðar Sigurgeirsson í Súðavík og Sveinn Ingi Guðbjörnsson á Ísafirði, og stofnuðu Vestfirska verktaka ehf. Segja má að þar hafi runnið sam- an starfsemi þriggja fyrirtækja, Múrkrafts, Eiríks og Einars Vals hf. á Ísafirði, þar sem Sveinn Ingi starfaði áður, og GS trésmíði, sem Garðar átti og rak í Súðavík. Þegar Hermann seldi þriðj- ungshlut sinn í Vestfirskum verk- tökum fyrir tæpum tveimur árum var góður gangur hjá fyrirtækinu og er enn. „Eftir hrunið var róð- urinn þungur um tíma eins og víðar en fyrirtækið stóð það samt vel af sér. Fyrirtækið hefur alla tíð notið þeirrar gæfu að hafa næg verkefni og ekki síst að hafa góðan mannskap. Þetta blessaðist allt vel og menn stóðu keikir eftir þessar hremmingar,“ segir Her- mann. Þjálfar hund til að finna húsasvepp – Hvað hefurðu verið að gera í millitíðinni frá því að þú seldir hlut þinn í Vestfirskum verktök- um, fyrir utan undirbúningsvinnu við Perlur fjarðarins? „Ég var að vinna að ýmsum verkefnum, bæði sem iðnaðar- maður og líka hef ég verið að auka þekkingu mína á sviði heilsu- húsa með tilliti til loftunar, raka og myglusvepps í húsum, eða húsasvepps. Meðal annars hef ég sótt námskeið hjá Húsum og heilsu, fyrirtæki sem sérhæfir sig í skoð- un og rannsóknum á húsnæði með tilliti til raka og þeirra lífvera sem vaxa við þær aðstæður. Svo nýtist auðvitað líka reynsla iðn- aðarmannsins varðandi það hvern- ig hús eru uppbyggð.“ Jafnframt hefur Hermann verið að prófa sig áfram að þjálfa hund til þess að finna húsasvepp. Er sú þjálfun langt á veg komin? „Nei, það má segja að hún sé bara á byrjunarstigi. Við höfum

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.