Bæjarins besta


Bæjarins besta - 13.05.2015, Blaðsíða 15

Bæjarins besta - 13.05.2015, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 2015 15 Lausn á síðustu krossgátu Sudoku þrautir Þjónustuauglýsingar Góuholt 14 Til sölu er fallegt og mikið endurnýjað, sex herbergja, 166,3m² einbýlishús á einni hæð í Holtahverfinu á Ísafirði. Að auki er viðbygging, alls 18,6m² sem ekki eru skráðir hjá FMR. Sam- tals 184,9m². Verð: 29,9 milljónir króna. Upplýsingar veitir Sigurður Samúelsson lögg. fasteignasali í síma 896 2312 eða á netfanginu ss@landmark.is. Eva Margrét besti ungi leikmaðurinn Eva Margrét Kristjánsdóttir leikmaður 1. deildar liðs kvenna hjá KFÍ var valin í úrvalslið deild- arinnar á uppskeruhátíð Körfu- knattleikssambands Íslands sem fram fór á föstudag. Hún var einn- ig á meðal sex kvenna sem keppt- ust um að vera valinn besti leik- maður deildarinnar. Fyrir valinu varð leikmaður Stjörnunnar, Bryndís Hanna Hreinsdóttir. Eva Margrét var hins vegar valin besti ungi leikmaður síðasta keppnistímabils. Hreinsunarátak í Bolungarvík Bolungarvíkurkaupstaður býð- ur garðeigendum aðstoð í tengsl- um við vorverkin í garðinum. Afklippur af trjám og runnum og annar garðaúrgangur verður fjar- lægður garðaeigendum að kostn- aðarlausu mánudaginn 25. maí, þriðjudaginn 26. maí og mánu- daginn 1. júní. Garðaúrgangur ætti að vera í pokum, en trjá- greinar bundnar saman og stað- settur þannig að hann sé vel að- gengilegur starfsmönnum. Garðeigendur eru hvattir til að halda sér þeim afklippum af viðju og víðirunnum sem aðrir garð- eigendur gætu nýtt sér til gróður- setningar. Föstudaginn 22. maí stendur bærinn fyrir hreinsunar- átaki sem Bolvíkingum er boðið að taka þátt í . Að venju verður grillað að átakinu loknu. Engi fyrir lista- menn og nýsköpun? Til skoðunar er að nýta hús- eignina Engi við Seljalandsveg á Ísafirði undir listsköpun. Húsið komst í eigu Ísafjarðarbæjar eftir langt og strangt uppkaupaferli í kjölfar ákvörðunar um að reisa varnargarða í Eyrarfjalli. Heils- ársbúseta í Engi er ekki heimil þar sem húsið er utan varnar- garðanna. Atvinnu- og menningarmála- nefnd hefur skoðað húsið að beiðni Gísla Halldórs Halldórs- sonar bæjarstjóra en hann bað nefndina að skoða möguleika á nýtingu hússins. Nefndin er að skoða hvort að ráðlegt sé að nýta húsið fyrir listamenn eða nýsköp- un.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.