Bæjarins besta

Ataaseq assigiiaat ilaat

Bæjarins besta - 07.01.2004, Qupperneq 3

Bæjarins besta - 07.01.2004, Qupperneq 3
3MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 2004 Við hitum upp! 25% afslátturaf öllumvörum 8. 9.og 10. janúar Útsala hefst 12. janúar af völdum vörum Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins í NV-kjördæmi Fagnar undirtektum forsætisráð- herra við löggjöf um hringamyndun Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknar- flokksins í Norðvesturkjör- dæmi segist fagna undirtektum forsætisráðherra, sem komu fram í áramótaávarpi hans, við hugmyndum um að setja lög- gjöf gegn hringamyndun. Til- laga Kristins um málið var samþykkt á flokksþingi fram- sóknarmanna í febrúar á síð- asta ári. Hann segir þetta verða eitt af stóru málunum á vor- þingi en eins reiknar hann með líflegum umræðum um spari- sjóðamálið, sjávarútveginn og stofnun háskóla á Vestfjörð- um. Í samþykkt flokksþingsins er kveðið á um að undirbúin verði löggjöf gegn hringa- myndun og ráðandi markaðs- stöðu í einstökum atvinnu- greinum. M.a. verði athugað „hvort ekki sé rétt að kveða á um skiptingu markaðsráðandi fyrirtækja“, eins og segir í samþykktinni. „Ég spái því að þetta verði eitt af stóru málun- um á vorþinginu því mönnum Kristinn H. Gunnarsson. er ljóst að samþjöppunin er orðin svo mikil í mörgum at- vinnugreinum að samkeppni er vart raunhæf að óbreyttu. Þannig verður að grípa til ráð- stafana svo samkeppnisþjóð- félagið virki eins og til er ætl- ast“, segir Kristinn. Hann álítur að í löggjöfinni eigi að takmarka mjög ráðandi aðila á fjármálamarkaði, s.s. í bankastarfsemi, til beins eignarhalds í öðrum at- vinnugreinum hvort sem það er í sjávarútvegi á fjöl- miðlamarkaði eða á öðrum sviðum. „Það þarf að vera valddreifing í þjóðfélaginu og þessi löggjöf þarf að stuðla að því að ná slíkum markmiðum.“ Hann segir að í sparisjóða- málinu sé tekist á um frekari samþjöppun á fjármálamarkaði eða hvort að koma eigi í veg fyrir hana. Stóru átakamálin í sjávar- útvegi séu tengd sama stefi, sam- þjöppuninni sem býr til stór fyrirtæki með mikil völd á fá- um stöðum. „Við sjáum beina skírskotun til Vestfjarða þar sem samþjöppunin hefur dreg- ið þrótt úr svæðinu eins og sjá má af nýlegum fréttum um fækkun ársverka“, segir Krist- inn. Þásegir hann uppbyggingu menntamála á Vest- fjörðum verða í brennidepli en það sé eitt allra stærsta framfaramál gamla fjórðungs- ins. „Það verður mikið kapp lagt á að ljúka því fyrir lok þings í vor þ.e. að fá ákvörðun um stofnun háskóla á Vest- fjörðum. Að auki verði lögð áhersla á að tryggja stöðug- leika í útgerð dagabáta með því að gólf í fjölda daga sem þeir megi róa. „Þetta er mikið hagsmunamála dagasjómanna og margir á Vestfjörðum sem eiga mikið undir því.“ Loks telur hann að fiskveiði- stjórnunin verði mikið til um- ræðu. Ekki hafi tekist að fá fram sæmilega sátt um málið og áfram verði tekist á um breytingar á kerfinu. „Á Vest- fjarðamiðum er veiddur fjórð- ungur alls þorsks sem veiddur er við landið, nær þriðjungur alls ýsuaflans og tæplega helmingur alls steinbítsaflans. Við hljótum að gera kröfu til þess að auðlind Vestfjarða verði nýtt til að styrkja búsetu og atvinnulíf á Vestfjörðum með sömu rökum og samstaða er um að nýta vatnsorku Aust- firðinga til atvinnuuppbygg- ingar þar“, sagði Kristinn H. Gunnarsson í samtali við blað- ið. – kristinn@bb.is Lögreglan á Ísafirði Metár í fangavistun Árið 2002 var metár í fangageymslum lögreglunn- ar á Ísafirði. Þá voru 102 settir inn og hafa ekki verið fleiri á 10 ára tímabili sam- kvæmt ársskýrslu Sýslu- mannsins á Ísafirði fyrir árið 2002. Næst flestir voru settir inn árið 1996 eða 101 og 100 á árinu 1993. Fæstir voru settir inn á árinu 1999 eða 43. Karl- menn eru í meirihluta þeirra sem hafa gist fangageymslur- nar öll árin. Á árunum 1992 til 2002 voru 722 karlar settir inn en 68 konur. Útsend sektarboð hjá lög- reglunni á Ísafirði voru 589 á árinu 2002 sem er í meðal- lagi miðað við síðustu ár fimm ár, heldur fleiri en á árinu 2001 þegar 541 sektar- boð var sent út og heldur færri en á árinu 1999 þegar þau voru 659, samkvæmt skýrslu sýslumannsins. – kristinn@bb.is 01.PM5 12.4.2017, 09:003

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.