Bæjarins besta - 07.01.2004, Side 5
5MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 2004
Rauða kross deildirnar á
Vestfjörðum ásamt Sigga
Björns, trúbador á Flateyri,
standa fyrir styrktartónleikum
til hjálpar fórnarlömbum jarð-
skjálftans í Íran á kl. 20:30
sunnudagskvöld í Hömrum sal
Tónlistarskóla Ísafjarðar. Fjöl-
margir tónlistarmenn koma
fram og gefa vinnu sína og
allur ágóði rennur óskiptur til
aðstoðar fólkinu sem lifði af
jarðskjálftann.
Að sögn Bryndísar Frið-
geirsdóttur, starfsmanns
Rauða krossins á norðanverð-
um Vestfjörðum, hafa starfs-
menn og sjálfboðaliðar Rauða
krossins og Rauða hálfmánans
í Íran dreift 92.000 tjöldum
sem fólk sem lifði af jarð-
skjálftann í Íran dvelur nú í
meðfram götum Bam.
Bryndís segir Íslendinga
halda áfram að bregðast með
afbrigðum vel við fjársöfnun
Rauða krossins og hafi gefið
rúmar 5 milljónir króna, aðal-
lega með því að hringja í söfn-
unarsímann 907 2020 en einn-
ig með framlögum af greiðslu-
korti á heimasíðu Rauða kross-
ins. – kristinn@bb.is
Styrkja fórnarlömb
jarðskjálfta í Íran
Siggi Björns og Rauði krossinn á Vestfjörðum
Svæðisskrifstofa
málefna fatlaðra
Stuðningsfjölskylda
Svæðisskrifstofa fatlaðra óskar eftir að
ráða stuðningsfjölskyldu í Bolungarvík.
Nánari upplýsingar veitir Helga í síma
456 5224.
Jeb Ivey, leikmaður KFÍ er
besta skyttan í Intersportdeild-
inni í körfuknattleik ef tekið
er mið af svokallaðri þrennu
þ.e. samanlagðri skotnýtingu,
nýtingu þriggja stiga skota og
vítanýtingu. Þetta kemur fram
í samantekt á vefsvæði KFÍ.
Skotjafnan svokallaða nær
eingöngu til þeirra sem hafa
að lágmarki skotið tuttugu
skotum, fimm vítaskotum og
hitt úr tíu vítum.
Jeb fær þá 196,8 stig en í
öðru sæti kemur Falur J Harð-
arson hjá Keflavík með 195,1
stig og Brenton J Birmingham
hjá Njarðvík með 192,2 stig.
Margvíslega tölfræði um leik-
menn Intersportdeildarinnar er
að finna á heimasíðu KKÍ.
– kristinn@bb.is
Jeb Ivey er besta skyttan
Intersportdeildin í körfuknattleik Florinda í Ísafjarðarhöfn.
Flutningaskipið Florinda
kom til hafnar á Ísafirði á
laugardag og losaði um 560
tonn af norskri iðnaðar-
rækju sem fer til vinnslu
hjá verksmiðjum á svæð-
inu. Þá lestaði skipið 260
tonn af afurðum sem
fluttar verða til Portúgals
og Spánar. Florinda lét úr
höfn á sunnudagskvöld og
hafði þá samtals 820
tonnum af sjávarafurðum
verið umskipað.
Kári Þór Jóhannsson,
hjá frystigeymslu Vestra
við Ísafjarðarhöfn, segir
vonir manna standa til
þess að fyrsta helgi ársins
gefi góð fyrirheit fyrir
næstu mánuði ekki síst
þegar aflatölur af höfn-
unum eru að dala.
– kristinn@bb.is
820 tonnum af sjávarafurð-
um umskipað í Ísafjarðarhöfn
Flateyringar skemmtu sér
vel á gamlárskvöld, eins og
vonandi flestir landsmenn,
þegar þeir kvöddu gamla árið
með tilhlýðilegri virðingu og
fögnuðu því nýja.
Fjölmenni sótti brennuna
sem þótti takast vel og fylgdist
með litskrúðugri flugeldahríð.
Páll Önundarson var á staðn-
um og fangaði stemmninguna
á Flateyri þegar árið 2003 var
að renna sitt skeið á enda og
nýtt ár að ganga í garð.
– kristinn@bb.is
Flateyringar fögnuðu nýju
ári með pompi og prakt
01.PM5 12.4.2017, 09:005