Bæjarins besta - 07.01.2004, Page 6
6 MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 2004
Vestfirðingurvikunnar
Nafn: Gísli Aðalsteinn Hjartarson.
Fædd/-ur, hvar og hvenær: Á Ísafirði 27.10.1947.
Atvinna: Starfsmaður Skipstjóra- og stýrimannafél-
agsins Byjgunnar á Vestfjörðum, ritstjóri Skutuls,
blaðs jafnaðarmanna á Vestfjörðum, rithöfundur og
leiðsögumaður í áratugi um óbyggðir Vestfjarðakjálk-
ans og víðar.
Fjölskylda: Einhleypur og býr einn.
Helstu áhugamál: Ritstörf, útivist, skotveiði, ferðalög,
góður matur (eins og sjá má á vextinum), stjórnmál
og grúsk í gömlum vestfirskum fræðum.
Bifreið: Grand Cherokee Limited, árg. 1997.
Hvernig bíl vildir þú helst eiga? Nýjustu árgerð af
Grand Cherokee, flottustu týpunni.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú varst lítill?
Skipstjóri á heimshöfunum sjö.
Uppáhalds matur? Heimasviðin svið og rófustappa
og steikt lambalæri að hætti mömmu með sykurbrún-
uðum kartöflum, brúnni sósu, grænum baunum og
mikilli rabbabarasultu.
Versti matur sem þú hefur smakkað? Þykir allur
matur góður – alltof góður.
Uppáhalds drykkur? Kaffi og af sterkum drykkjum
er það Captain Morgan í kók.
Uppáhalds tónlist? Kántrí og sígild tónlist.
Uppáhalds íþróttamaður eða félag? Sem betur fer
bjargaði brennivínið mér frá íþróttabölinu.
Uppáhalds sjónvarpsefni? Spaugstofan og náttúru-
lífsþættir.
Uppáhalds vefsíðan? bb.is er upphafssíðan mín á
netinu. Ligg gjarnan á fjölmiðlasíðunum.
Besta kvikmynd sem þú hefur séð? Held mikið
upp á gamla vestra og fannst alltaf svonefndar „Doll-
aramyndir“ bestar.
Fallegasti staður hérlendis? Hornvík um sólstöður
í miðnætursól. Þessi vík á milli fuglabjarganna miklu,
Hælavíkurbjargs og Hornbjargs er engu öðru lík.
Fallegasti staður erlendis? Eystribyggð á suður
Grænlandi.
Ertu hjátrúarfull(ur)? Já og nei, jú dálítið.
Uppáhalds heimilistækið? Uppþvottavélin er í fyrsta
sæti og síðan sjónvarpið.
Hvað er það skemmtilegasta sem þú gerir? Að
ferðast með góðum félögum um óbyggðir, deila með
þeim mat, tjaldi og slarkinu sem fylgir slíkum ferðum.
Hvað fer mest í taugarnar á þér og hvers vegna?
Óhreinskilni, lygi og fals.
Hvað gerir þú til að láta þér líða vel? Borða góðan
mat og slappa af með glas í hendi með félögunum yfir
góðu myndbandi eða spjalli.
Áttu þér leyndan draum sem þú ætlar að láta ræt-
ast? Já, en þori ekki að upplýsa um það hér.
Hvað er það neyðarlegasta sem þú hefur lent í?
Þegar ég stóð á typpinu á Djúpvegi, rétt innan við
Eyri í Skötufirði, með dauðan mink í hendinni eftir að
hafa vaðið í sjóinn eftir honum og fullur bíll af hlægj-
andi kellingum stoppaði hjá mér.
Ef þú værir bæjarstjóri í einn dag, hverju myndir
þú breyta? Það er nú svo margt að það væri efni í
heila bók upp á a.m.k. 1000 blaðsíður. Annars ræður
bæjarstjórinn ekki miklu nema hann sé bæjarfulltrúi
og oddviti framboðslista sem hefur hreinan meirihluta
í bæjarstjórn.
Lífsmottó? Láta hverjum degi nægja sína þjáningu
og taka því sem að höndum ber.
Dollara-
myndirnar
eru og voru
alltaf bestar
Mikill samdráttur í lönduðum afla á Vestfjörðum á milli ára
Samdrátturinn nemur 36%
fyrstu níu mánuði ársins
Landaður afli á Vestfjörðum
dróst saman um rúm 36% á
milli ára fyrstu níu mánuði
yfirstandandi árs. Í verðmæt-
um talið er samdrátturinn um
20%. Mestur er samdrátturinn
í þorski, grálúðu, loðnu og
rækju. Samtals var landað
40.330 tonnum á Vestfjörðum
fyrstu níu mánuði yfirstand-
andi árs. Á sama tíma í fyrra
var landað 63.456 tonnum.
Aflaverðmæti landaðs afla var
tæpir 3,6 milljarðar króna á
yfirstandandi ári en var rúmir
4.4 milljarðar króna á sama
tíma í fyrra. Þetta kemur fram
í tölum Hagstofu Íslands.
Samdráttur var verulegur í
þorskafla. Í fyrra var landað
20.579 tonnum af þorski en í
ár einungis 16.290 tonnum og
er það tæplega 21% samdráttur
í magni á milli ára. Aflaverð-
mæti þorsks minnkaði um rúm
18% á milli ára úr tæpum 2.4
milljörðum í tæpa 2 milljarða.
Grálúðuafli minnkaði um
39% á milli ára í tonnum talið,
fór úr 2.385 tonnum í 1.455
tonn og verðmæti aflans minn-
kaði úr 495 milljónum í 280
milljónir króna sem er um 43%
samdráttur á milli ára.
Loðnuafli sem landað var í
höfnum á Vestfjörðum minnk-
aði úr 26.180 tonnum í fyrra í
8.012 tonn í ár sem er um 70%
samdráttur og verðmæti
loðnuaflans minnkaði úr 192
milljónum króna í 55 milljónir
króna sem gerir einnig um
70% samdrátt.
Rækjuafli minnkaði á milli
ára úr 7.043 tonnum í 5.627
tonn sem er um 20% samdrátt-
ur en í verðmætum talið var
samdrátturinn rúm 24%.
Ekki var samdráttur í öllum
tegundum. Þannig jókst stein-
bítsafli úr 4.578 tonnum í
5.663 tonn sem er aukning um
tæp 24% og í verðmætum talið
var aukningin í steinbít úr 370
milljónum króna í 463 millj-
ónir króna sem jafngildir 20
% aukningu.
– hj@bb.is Landað við höfnina í Bolungarvík.
Stjórn KFÍ hefur skrifað
undir samning við banda-
rískan leikmann, Shon Eilen-
stein sem er 206 cm á hæð.
Hann hefur auk heimalands-
ins leikið í Frakklandi.
Eftir því sem kemur fram
á heimasíðu KFÍ er hann
feikilega sterkur undir körf-
unni. – hj@bb.is
Körfuknattleiksfélag Ísafjarðar
Nýr leikmaður
Um þriðjungur foreldra
barna í Grunnskólanum á
Ísafirði hefur hlustað á börn
sín segja frá einelti í skólan-
um. Einungis 40% foreldranna
brást við með því að hafa sam-
band við einhvern af starfs-
mönnum skólans. Þetta kemur
fram í könnun sem gerð var
meðal foreldra barna í skólan-
um á foreldradegi fyrir
skömmu. Nær allir foreldrarnir
sem svöruðu eða 96% höfðu
rætt við börn sín um eineltis-
mál og 94% höfðu orðið varir
við aukna umræðu um eineltis-
mál.
Alls bárust 143 svarblöð en
yfir 300 heimili standa að skól-
anum. Á heimasíðu GÍ segir
að fremur dræm svörun dragi
e.t.v. úr áreiðanleika könnun-
arinnar en niðurstöðurnar gefi
vísbendingar um stöðu mála.
Í skýrslunni segir að einelti í
skólanum sé því miður þekkt.
Fullyrða megi að starfsfólk
skólans hafi almennt lagt sig
fram um að uppræta einelti í
skólanum og tekist það nokk-
uð vel. Hins vegar megi ávallt
gera betur.
Skólinn hefur tekið þátt í
aðgerðaráætlun samkvæmt
svokölluðu Olweusarkerfi
ásamt grunnskólunum á Flat-
eyri og Suðureyri frá árinu
2002. Sagt er frá niðurstöðum
könnunarinnar á heimasíðu
GÍ. – kristinn@bb.is
Þriðjungur foreldra barna í Grunnskólanum á Ísafirði
Hefur hlustað á börn sín
segja frá einelti í skólanum
Ágúst og Flosi ehf. á Ísafirði
Steypa upp nýtt fjölbýlishús
Verktakafyrirtækið Ágúst
og Flosi ehf. á Ísafirði hófu
uppsteypu á veggjum nýs
átta íbúða fjölbýlishúss við
Wardstún á laugardag. Lið-
lega áratugur er síðan nýtt
fjölbýlishús var byggt á Ísa-
firði og er því um tímamót
að ræða.
Þáttaskilin hljóta að teljast
enn athyglisverðari þar sem
steypuvinnan hefst um há-
vetur, þ.e. 3. janúar. Verkið
gekk vel fyrir sig og vonast
smiðirnir til að geta steypt
annan áfanga í næstu viku ef
hlákan helst.
– kristinn@bb.is Steypuvinna í fullum gangi. Ljósm: Þorsteinn J. Tómasson.
01.PM5 12.4.2017, 09:006