Bæjarins besta - 07.01.2004, Qupperneq 7
7MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 2004
Arnar G. Hinriksson hdl.
Silfurtorgi 1 • Ísafirði • Sími: 456 4144 • Fax: 456 4243
Fasteignaviðskipti
Hef til sölu
fasteignir víða
á Vestfjörðum
Allar nánari upplýsingar
eru veittar á skrifstofu
Ræstingar
Hjá Heilbrigðisstofnuninni Ísafjarðarbæ
er nú laus 100% staða starfsmanna í ræst-
ingu. Vinnutími er frá kl. 07:30 til 15:30 alla
daga. Frí er annan hvern þriðjudag, annan
hver föstudag og aðra hverja helgi.
Laun eru samkvæmt kjarasamningu Verka-
lýðsfélags Vestfirðinga og stofnanasamningi
HSÍ. Umsóknareyðublöð fást í afgreiðslu
Fjórðungssjúkrahússins á Ísafirði. Öllum
umsóknum verður svarað er ráðið hefur ver-
ið í starfið.
Frekari upplýsingar gefur Guðrún Krist-
jánsdóttir, ræstingarstjóri í síma 450 4500.
Fjórfalt meira magn fíkniefna haldlagt árið 2003 miðað við árið á undan
Besti árangur lögreglunnar til þessa
Lögreglan á Ísafirði hefur
lagt hald á fjórfalt magn fíkni-
efna á árinu 2003 miðað við
árið á undan að sögn Hlyns
Snorrasonar, lögreglufulltrúa.
Hann segir árangurinn þann
besta sem sést hafi hjá embætt-
inu bæði í að upplýsa mál og í
haldlagningu efna.
Á árinu lagði lögreglan hald
á 334,34 g af ætluðum fíkni-
efnum samanborið við 80,03
g á árinu 2002 ef ýmis óskil-
greind efni s.s. íblöndunarefni
og lyfseðilsskyld lyf eru ótalin.
Í fyrra lágu 29 mál að baki en
þau eru 24 í ár. Málin eru því
fimm færri en lagt er hald á
meira magn í hverju þeirra.
„Okkur hefur tekist enn betur
en á fyrri árum að upplýsa um
dreifinguna, þ.e. ná til sölu-
mannanna. Það skiptir máli
að geta klippt á þá starfsemi“
segir Hlynur.
Hann segir lang stærstan
hluta vera kannabisefni og
hlutfallslega meira hafi verið
haldlagt af kannabisefnum en
verið hafi. Hlynur segir eðli-
legt að fólk spyrji í framhald-
inu hvort fíkniefnaneysla sé
að aukast á svæðinu? „Við
teljum að ástandið sé nokkuð
svipað og verið hefur en em-
bættið er alltaf að leggja meiri
áherslu á þennan málaflokk
samhliða forvörnum. Lögregl-
an er að leggja meiri vinnu í
að grafa dýpra í hvert mál og
embættið í heild er að verða
sterkara í þessari vinnu“, segir
Hlynur.
Hann segir greinilegt að hin-
um almenna íbúa standi ekki á
sama. „Oftar en ekki fáum við
upplýsingar frá þeim sem vilja
leggja málefninu lið, sem er
mjög dýrmætt. Þetta er sam-
vinnuverkefni lögreglunnar og
almennings.“
Aðspurður um hvort telja
megi að minna magn fíkniefna
sé í umferð í kjölfar árangurs
lögreglunnar segir hann að al-
mennt hafi inngrip lögreglu í
fíkniefnamálum þau áhrif að
slá svolítið á ástandið. „Það
má segja að ástandið verði
hlutlaust í smá tíma en síðan
lifnar það við aftur. „Þetta er
eins og með illgresi, ef menn
taka til í lóðinni þá er hún flott
og fín í einhvern tíma en síðan
sprettur illgresið upp aftur
nema menn séu í sífellt að
taka til.
Lögreglan hérna er farin að
finna að afskiptin og áherslan
sem hefur verið lögð í þennan
málaflokk er farin að skila sér
í betri unglingamenningu.
Þegar við finnum svo jákvæða
svörun í þessum málaflokki
þá er ofsalega gaman að lifa
og við eflumst frekar en hitt“,
sagði Hlynur Snorrason.
– kristinn@bb.is
Kannabisefni sem lögreglan hefur lagt hald á.
Stormasamt á árinu og góð
rækjuveiði í Ísafjarðardjúpi?
Hin gamalreynda völva
tímaritsins Vikunnar
spáir stormasömu veðri á
Vestfjörðum og Vestur-
landi á árinu og af vett-
vangi sjávarútvegsmála
segir hún miklar breyt-
ingar verða á kvótamál-
um og hjá smábátaút-
gerðinni. Að hennar
sögn verða rækjumiðin í
Ísafjarðardjúpi gjöfulli
en áður. Margir munu
kætast ef sú spá rætist því
á yfirstandandi vertíð eru
miðin lokuð en rækjustofn-
inn í Djúpinu þykir í sögu-
legu lágmarki. Völvan seg-
ir Íslendinga verða sífellt
meira í umræðunni á
heimsvísu vegna þeirrar
dulúðar sem svífur yfir
landinu. Hún segir Vest-
firðina koma sterkt inn á
því sviði vegna fræðaseturs
og menningarmála. „Vest-
firðirnir eiga eftir að
byggja upp menningar-
setur, mögulega tengt
stjörnuspeki og verður á
öðrum grunni en tíðkast
hefur. Útlendingar koma í
myndina þar og þetta á eft-
ir að laða ferðamenn að“,
sagði völvan í spá sinni.
Framtíðarspár munu
seint teljast óskeikular
hvort sem fjallað er um
veður eða fjármál, hvað
þá framtíð þjóðarinnar
almennt. Má þó telja
hina bestu skemmtun að
rýna í spá völvunnar og
verður forvitnilegt að
fylgjast með hvort
rækjuveiðin glæðist og
hvort vindur muni blása
kröftuglega á árinu.
Sameining
á döfinni?
Á aðalfundi Skipstjóra-
og stýrimannafélagsins
Bylgjunnar á Vestfjörðum
sem haldinn var á gamlárs-
dag, var samþykkt að
kanna vilja félagsmanna til
sameiningar við Félag ís-
lenskra skipstjórnarmanna
sem nýverið var stofnað
með sameiningum nokk-
urra félaga skipstjórnar-
manna. Viðhöfð verður
póstkosning þar sem allir
félagar geta tekið þátt.
Skipstjóra- og stýrimanna-
félagið Bylgjan var stofnað
16. október 1921. Núver-
andi formaður félagsins er
Skarphéðinn Gíslason.
– hj@bb.is
Varaform-
aðurinn féll
Á aðalfundi Sjómannafé-
lags Ísfirðinga sem haldinn
var á öðrum degi jóla féll
Níels R Björnsson mat-
sveinn, í kosningu til
áframhaldandi setu í vara-
formannsstólnum. Ómar
Helgason skipverji á
Júlíusi Geirmundssyni ÍS-
270 bauð sig einnig fram til
varaformanns og var kjör-
inn með 11 atkvæðum gegn
6 atkvæðum Níelsar. Níels
hlaut síðan kosningu sem
meðstjórnandi. Aðrir í
stjórn eru Brynjólfur
Bjarnason gjaldkeri, Pétur
Guðmundsson ritari og
Sævar Gestsson sem var
endurkjörinn formaður.
Starfandi fólki hefur fækkað
um 320 undanfarin 5 ár sam-
kvæmt tölum Hagstofu Ís-
lands. Árið 1998 voru 4.880
manns starfandi einstaklingar
á Vestfjörðum en voru 4.560
á árinu 2002. Nemur fækkunin
um 6,5 %. Á sama tíma hefur
starfandi fólki fjölgað um 7,2
% á landinu öllu og um 10,8
% á höfuðborgarsvæðinu.
Ef litið er á skiptingu milli
aldursflokka kemur í ljós að í
tveimur aldursflokkum hefur
starfandi fólki í fjórðungnum
fjölgað. Í aldursflokknum 45-
49 ára hefur þeim fjölgað um
20 %, úr 440 manns í 530
manns og í aldursflokknum
55-59 ára hefur fjölgað um
11% úr 270 í 300 manns. Í
öllum öðrum aldursflokkum
hefur starfandi fólki á Vest-
fjörðum fækkað eða fjöldinn
staðið í stað.
Á aldrinum 20-45 ára sem
oft er talinn aldur virkustu
starfsáranna, þegar fólk er að
koma þaki yfir höfuðið og
koma börnum sínum á legg,
hefur starfsfólki fækkað um
tæp 11 % úr 2.670 í 2.380
manns. Á sama tíma hefur
þeim aldurhópum fjölgað um
tæp 10% á höfuðborgarsvæð-
inu. Sem dæmi má einnig
nefna að í aldursflokknum 35-
39 ára hefur orðið um 21 %
fækkun starfandi fólks á Vest-
fjörðum á meðan fólki í þeim
aldurflokki fjölgaði um 9,5 %
á höfuðborgarsvæðinu.
Starfandi fólki fækkaði um
3% á Norðurlandi Vestra og
Austfjörðum. Á Suðurnesjum
fjölgaði um 7%, 6% á Suður-
landi og 5% á Vesturlandi.
– hj@bb.is
Hefur fækkað um
liðlega 300 frá 1998
Starfandi fólki á Vestfjörðum
Ísafjarðarkaupstaður mánudaginn 5. janúar 2004.
01.PM5 12.4.2017, 09:007