Bæjarins besta - 07.01.2004, Síða 9
9MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 2004
engri tíma“
son sem sá um það starf var
mjög hvetjandi í okkar garð.
Iðulega ef til stóð að halda
einhver námskeið á sviði lista
þá kom hann þeim til okkar.“
Kerfið léttara en
á stærri stöðum
– Nú hafa komið upp hug-
myndir um að þið bjóðið í
samvinnu við Menntaskólann
á Ísafirði upp á undanfaranám
að námi í Listaháskóla Íslands,
hvernig er það mál statt?
Margrét: „Jú það er næsta
verkefni hjá okkur. Í vor skrif-
uðum við undir samning þess
efnis að bæjarstjórn Ísafjarðar-
bæjar ætlaði að styðja okkur í
að fá það í gegn. Þetta snýst
náttúrlega allt um peningamál-
in, að sveitarstjórnirnar greiði
það sem þeir beri og ríkið sjái
um sitt. Við sóttum um að fá
styrk frá Menntamálaráðu-
neytinu eins og Myndlistar-
skólinn á Akureyri, Mynd-
listarskólinn í Reykjavík ogMyndlistarskólinn í Kópa-
vogi. Þáverandi ráðherra vildi
ekki fallast á að við værum
með sambærilega kennslu í
boði og þessir skólar en við
viljum meina að við getum
það. Við viljum bjóða upp á
fasta kennslu. Það eru nem-
endur að fara héðan af því þeir
eiga ekki möguleika á að
stunda MÍ með listnám sem
braut.“
– Að Listaháskólanum eru
vissar inntökukröfur en það er
eins og ekki hafi verið gert ráð
fyrir að fólk gæti uppfyllt þær
kröfur utan Akureyrar og
Reykjavíkur.
Jón: „Nei það er nákvæm-
lega þannig.“
Margrét: „Þó er gaman að
geta þess að það eru nemendur
héðan í framhaldsnámi í Lista-
háskólanum en síðan veit ég
af menntaskólanemum sem
ætla að færa sig um set af því
þeir komast ekki á hönnunar-
eða listabraut við MÍ. Skóla-
meistari MÍ rekst náttúrlega á
sömu veggi og við í ráðuneyt-
inu hvað þetta mál snertir. En
þetta er næsta baráttumál.“
Jón: „Þetta er samfélagslegt
mál og snýst um að geta haldið
fólki hérna lengur.“
– Hafið þið getað átt sam-
starf við aðra landshluta um
uppbyggingu kennslunnar?
Margrét: „Við vorum í sam-
bandi við Akureyringa og ætl-
uðum að vera í samfloti við þá
um að fá balletkennsluna út á
land. Það var mjög athyglis-
vert því það kom í ljós að
Akureyrarbær er það mikið
stærri en Ísafjarðarbær að hlut-
irnir virtust ganga mikið hægar
fyrir sig og vera þyngri í vöfum
þar en hér. Skólastjóri List-
dansskólans hafði uppi hug-
myndir um að senda kennara
út á land og þegar Katarina
Pavlova, sem hafði kennt hér,
hætti síðasta vor þá leitaði ég
til hans. Að sama skapi var
áhugi á Akureyri og formaður
menningarmálanefndar þar
hefur samband við mig upp á
að við þrýstum í sameiningu á
ráðuneytið að veita Listdans-
skólanum samþykki fyrir að
senda kennsluna út á land.
Það þurfti ekki meira til.
Verkefnið átti ekki að þýða
aukin útgjöld fyrir skólann því
við áttum að sjá um að taka á
móti kennurunum og útvega
húsnæði. Á endanum hringdi
ég í Einar Odd Kristjánsson,
alþingsmann, og spurði hvort
hann væri ekki til í að hringja
í Tómas Inga Olrich, mennta-
málaráðherra, og biðja um
samþykkið – losna frá línuívil-
nun í smástund og hugsa um
litlar ballerínur í staðinn. Það
gekk í gegn. Við vorum búin
að reyna að fara beint í ráðu-
neytið og mættum eintómum
hindrunum þar.
Það gerðist ekkert hjá Akur-
eyringum í málinu en þar voru
fimmtíu nemendur tilbúnir að
byrja. Þeir sögðust einfaldlega
þurfa að bíða og sjá, kerfið
það þyngra en hjá okkur að
málið tæki miklu lengri tíma.
Ég held líka að það sé óhætt
að segja að þingmennirnir
okkar hafa sýnt málefnum
skólans og Edinborgarhússins
mikinn skilning.“
Framkvæmdir
framundan
Jón: „Það er svo gaman t.d.
á vatnslitanámskeiðunum þeg-
ar maður fær til sín fólk sem
hefur aldrei dýft pensli í lit.
Allt í einu rennur upp fyrir því
að það getur búið eitthvað til.“
Margét: „Eins er gaman að
fylgjast með krökkunum sem
byrja í keramikkennslu í 8.
bekk og síðan eru þau farin að
skila frá sér góðum nytjahlut-
um innan fárra missera. Þannig
skilar þetta stúss sér á endan-
um.“
– Er það jafnvel niðurstaðan
að fyrstu tíu árin hafi farið í að
fá viðurkenningu fólksins og
kerfisins?
Pétur: „Já ætli það ekki, við
höfum a.m.k. lært mikið í þol-
inmæði á þessum tíu árum en
viðgangur skólans hefur líka
haldist í hendur við vöxt við
uppbyggingu húsnæðisins.“
Margrét: „Nú erum við ein-
mitt komin á það stig að að-
staðan er orðin fullþröng, þeg-
ar er t.d. gítarnámskeið, söng-
námskeið og píanókennsla í
gangi allt í einu þá er fullmikið
um að vera á sama punktinum
og helst til mikill hávaði. Þann-
ig þurfum við að geta betrum-
bætt aðstöðuna með meiri
hljóðeinangrun og slíku.“
Pétur „Fljótlega á næsta ári
verður farið að bjóða út fram-
kvæmdir í húsinu á grundvelli
samkomulagsins um menn-
ingarhús á landsbyggðinni.
Auðvitað er þetta ótrúlegur
árangur á ekki lengri tíma. Við
náttúrlega gerum ekki neitt
nema hafa fólkið með okkur
og því er ástæða til að þakka
öllum þeim sem hafa tekið þátt
í þessari uppbyggingu“, sagði
Pétur Guðmundsson einn af
frumkvöðlunum að baki Lista-
skóla Rögnvaldar Ólafsonar
og félagar hans taka undir.
Margrét: „Hann
var ekki hræddur
við neitt og kunni
tökin á að ganga
frá svona málum.
Hjónin Margrét Gunnarsdóttir og Jón Sigurpálsson.
Lögreglan á Ísafirði
Fíkniefnamálum
fjölgar á milli ára
Fíkniefnamálum hjá lög-
reglunni á Ísafirði fjölgaði
úr 19 árið 2001 í 34 árið
2002 samkvæmt ársskýrslu
Sýslumannsins á Ísafirði.
Heildarmagn haldlagðra
efna dróst hins vegar saman
úr rúmlega 125 gr. árið 2001
í rúm 90 gr. árið 2002.
Önundur Jónsson, yfirlög-
regluþjónn, segir að almennt
sé umfang fíkniefnamála að
aukast hjá embættinu. Tvö mál
hafi komið upp á árinu 2001
þar sem mjög mikið magn
fíkniefna hafi verið haldlagt
sem geri það óvanalegt í sam-
anburði.
Mest var tekið af kannabis-
efnum eða rúmlega 32 gr. Þá
var lagt hald á tæp 32 gr. af
sveppum, 20 E-pillur, lið-
lega hálft gr. af kókaíni, rúm
15 gr. af amfetamín og rúm
11 gr. af óskilgreindum efn-
um sem Önundur segir í
flestum tilvikum vera ýmis
lyfseðilsskyld lyf í höndum
þeirra sem ekki hafa fengið
þeim ávísað. – kristinn@bb.is
Störfum við fiskveiðar á Vestfjörðum
Hefur fækkað um
36,5% frá árinu 1998
Störfum við fiskveiðar
hefur fækkað allra starfa
mest á Vestfjörðum á síðustu
árum samkvæmt tölum Hag-
stofu Íslands. Þau voru 850
árið 1998 en voru 540 á árinu
2002. Af öðrum störfum má
nefna að störfum í landbún-
aði fækkað um 10 og voru á
síðasta ári um 200. Störfum
í fiskvinnslu fækkaði úr 980
í 920.
Í iðnaði fækkaði störfum
um 30 og í verslun og við-
gerðarþjónustu fækkaði um
20 störf. Athyglisvert er að
þrátt fyrir mikla umræðu um
eflingu ferðaþjónustu þá
fækkar störfum í hótel og
veitingahúsarekstri á þessu
tímabili úr 100 í 90 og störf-
um í samgöngum og flutn-
ingum fækkar úr 270 í 220.
Í sumum flokkum hefur
störfum fjölgað á þessu tíma-
bili. Í fjármálaþjónustu hefur
störfum fjölgað úr 120 í 130. Í
fasteigna- og viðskiptaþjón-
ustu hefur störfum fjölgað úr
110 í 140 og í heilbrigðis- og
félagsþjónustu hefur störfum
fjölgað úr 380 í 430. Í opinberri
þjónustu hefur störfum fjölgað
á þessu tímabili úr 420 í 480
en athygli vekur að störfum
þar hefur verið að fækka á
allra síðustu árum. Þau voru
flest 510 árið 2000 en eru árið
2003 480 talsins.
Á árinu 2002 voru störf í
fiskvinnslu og fiskveiðum 32
% af heildarstörfum á Vest-
fjörðum en voru 37,5 % af
störfum árið 1998. Hlutfall
starfa í fiskvinnslu og fisk-
veiðum er samt sem áður
margfalt hærra hér en á land-
inu öllu. Hlutfall þeirra
starfa á landinu öllu fór úr
10% árið 1998 í 7.9% árið
2002.
Vestfirðir er sá landshluti
þar sem hlutfall starfa í fisk-
veiðum og fiskvinnslu er
langhæst.. Sá landshluti sem
næst kemur er Austurland
með 26 % og þar á eftir eru
Suðurnes með tæp 18 %
starfa í þessum greinum.
Vesturland er með 17 %,
Norðurland eystra er með
15 %, Norðurland vestra er
með 13 %, Suðurland 12 %
og aðeins 2% starfa á höfuð-
borgarsvæðinu eru störf í
fiskvinnslu og fiskveiðum.
Lögsýn
flytur
Lögsýn, lögfræðistofa
Björns Jóhannessonar
hdl. á Ísafirði hefur flutt
yfir Silfurtorg, í Stjórn-
sýsluhúsið og mun þar
deila skrifstofu með lög-
fræðistofu og fasteigna-
sölu Trygga Guðmunds-
sonar hdl. Lögsýn hefur
verið til húsa á 3. hæð í
Aðastræti 24 frá því
Björn hóf rekstur stof-
unnar í mars árið 1992.
Björn segir lögfræði-
rekstur þeirra Tryggva
verða algerlegan aðskilin
áfram en með því að
samnýta húsnæði nýtist
annað starfsfólk stofanna
betur og hægt verði að
samnýta tæki. Hann
segist ekki telja hættu á
að árekstrar komi upp á
milli þeirra kollegana
enda rói þeir á ólík mið í
starfseminni og megi telja
á fingrum annarrar
tilvikin þegar þeir hafi
mæst sem andstæðingar í
málum.
– kristinn@bb.is
Kollegarnir Tryggvi og Björn á skrifstofunni í Stjórnsýslu-
húsinu.
01.PM5 12.4.2017, 09:009